Fylkir til Hvíta-Rússlands
skrifað 21-06-2010 (7 athugasemdir)
Fylkir dróst gegn Torpedo Zhodino frá Hvíta-Rússlandi í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu karla.
Tvö íslensk lið fara til Hvíta-Rússlands í sumar en fyrr í dag dróst FH gegn BATE Borisov í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Leikirnir fara fram 1. og 8. júlí og samkvæmt drættinum á Torpedo fyrri heimaleikinn.
KR og Fylkir leika í 1. umferð keppninnar en Breiðablik situr hjá sem bikarmeistari og kemur til leiks í 2. umferð. Liðunum í 1. umferðinni hefur verið raðað í hópa og það lá því strax fyrir hverjum KR og Fylkir gátu mætt.
Fylkir er í lægri styrkleikaflokki og gat mætt þessum liðum:
Randers, Danmörku
Gefle, Svíþjóð
Torpedo Zhodino, Hvíta-Rússlandi
Skonto Riga, Lettlandi
TPS Turku, Finnlandi
www.mbl.is


eftir TobbZ 03:05 21-06-2010
Já það hefði verið flott að fá eitthvað af þessum skandinavíu liðum. En þótt þetta sé langt ferðalag þá eru miklar líkur á að komast áfram. Þar sem þetta er lið er í 9. sæti í sinni deild úti í Hvíta-Rússlandi...
eftir Viggó 04:08 21-06-2010
já maður hefði nú verið til í betri drátt en þetta.... þessi dráttur er nú samt betri en enginn dráttur
eftir Sigurgeir 05:17 21-06-2010
Held að þeir séu í næstneðsta sæti og eru á leiðinni í umspil um áframhaldandi veru í deildinn samkvæmt wikipedia
http://en.wikipedia.org/wiki/2010_Belarusian_Premier_League
http://en.wikipedia.org/wiki/FC_Torpedo_Zhodino
eftir Dilbert 05:20 21-06-2010
Þetta er lítið lengra en var til Póllands um árið. Þangað var skutlað upp beinu flugi. Nú er bara spurning um árferðið í veskjum okkar Fylkismanna. Dilbert er til í að skoða málið.
Áfram Fylkir, að eilífu um allann heim...
eftir Jói 07:33 21-06-2010
Flug á 90 þús til Vilnius í Litháen. C.a 200 kílómetrar frá bænum sem leikurinn fer fram í Hvíta- Rússlandi..
eftir Gosi 10:52 21-06-2010
Menn eru eitthvað að kvarta undan því í fjölmiðlum að þetta sé svo langt í burtu, en í raun er þetta ekkert lengra í burtu en t.d. Mallorca. Hins vegar er dálítið flókið að komast þangað og dýrt.
Ég á býsna erfitt með að sjá að það sé hægt að komast til Hvíta-Rússlands með 8 daga fyrirvara. Landið er nánast alveg lokað og því þarf vegabréfsáritun til að komast þangað. Hún fæst ekki nema í gegn sendiráð Hv-Rússlands í London eða á flugvellinum í Minsk. Ég geri ráð fyrir því að flug til Minsk séu ekki ódýr :) En það er um að gera að skoða alla mögulega.
eftir Viggó 09:11 22-06-2010
Já, þetta er nú bara 550km frá Varsjá í Póllandi.. Það er hægt að fljúga þangað beint með icelandexpress