Umfjöllun: Jafntefli í háspennuleik
skrifað 09-06-2010 (5 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir 2 - 2 FH
1-0 Albert Brynjar Ingason ('5)
2-0 Albert Brynjar Ingason ('29)
2-1 Atli Viðar Björnsson ('30)
2-2 Atli Viðar Björnsson ('53)
Fylkir og FH gerðu 2-2 jafntefli í afar fjörugum og spennandi leik á Fylkisvelli á mánudag. Fylkismenn komust í 2-0 en FH-ingar náðu að svara með tveimur mörkum. Bæði lið fengu svo góð tækifæri til að bæta við mörkum.
Fylkismenn byrjuðu miklu betur og settu strax mikla pressu á FH-inga. Stjáni Vald átti skot í upphafi leiks yfir markið eftir barning í teignum. Fylkismenn komust síðan yfir strax á 5.mínútu. Valur Fannar tók þá aukaspyrnu snöggt á miðjunni og sendi upp kantinn á Ingimund sem gaf fyrir, Gunnleifur náði að slæma hendi í boltann sem barst síðan til Alla sem smellti honum á lofti í slána og inn.
Nýklipptur Alli fagnar hér fyrra marki sínu
Frábær byrjun hjá okkar mönnum sem voru hættulegir fram á við og flöt vörn FH var í talsverðum vandræðum með Alla og Pape. FH-ingar komust þó fljótt í aðeins betri takt og héldu boltanum betur. Á 16 mínútu fengu þeir svo dauðafæri eftir slæm mistök Fjalars í markinu náðu FH-ingar boltanum og Torgeir Motland átti skot sem virtist vera að fara inn en Stjáni bjargaði meistaralega á marklínu. Motland var áfram aðgangsharður og fékk færi eftir ágæta sókn. Atli Guðna bjó sér til smá pláss, sendi á Atla Viðar sem fékk utanáhlaup frá Gumma Sævars sem fékk boltann og sendi fyrir nánast í Motland en Fjalar náði síðan að slá knöttinn frá.
Alli sem var besti maður Fylkis í leiknum sýndi fína takta og hann og félagar hans voru nálægt því að skapa færi og áfram var ágætis taktur í Fylkisliðinu. Félagi hans í framlínunni Pape átti síðan heiðurinn að marki númer tvö þegar hann skaust framúr svifaseinum varnarmönnum Hafnfirðinga sem endaði með því að Pétur Viðarsson felldi hann innan vítateigs og Fylkir fékk víti. Alli skoraði úr vítaspyrnunni og Fylkismenn komnir í vænlega stöðu 2-0.
Það sem var verra var að FH-ingar voru ansi snöggir að svara, settu marga menn í teiginn enda þurftu þeir sárlega á marki að halda. Varnarmenn Fylkis hentu sér fyrir skot og Atli Guðna bjó síðan til mark þegar hann átti skot sem Fjalar blakaði út til Atla Viðars sem skallaði í tómt markið. Spurning hvort Fjalar hafi verið of framarlega þarna því fyrst virtist lítil hætta á ferðum.
Atli Viðar var áfram sprækur og slapp innfyrir skömmu seinna en átti algjörlega misheppnað skot langt framhjá.
Þórir Hannesson átti næst hálffæri þegar hann náði skalla að marki eftir hornspyrnu en Gunnleifur átti í litlum vandræðum með að grípa knöttinn. Leikurinn var áfram nokkuð opinn og Hafnfirðingar sterkari. Fylkismenn félli alltof aftarlega á völlinn og hleyptu FH-ingum alltof mikið inn í leikinn. Atli Guðnason náði skoti eftir fyrirgjöf en Fjalar var vel á verði í markinu. Fleira gerðist ekki í fyrri hálfleik og Fylkismenn höfðu því eins marks forskot.
Síðari hálfleikur byrjaði hræðilega fyrir heimamenn þegar Einari Péturssyni var vikið af velli fyrir tiltöllulega saklaust brot út á miðjum velli. Hann fékk sitt annað gula spjald, það fyrra fékk hann fyrir að sparka boltanum í burtu á 10 mín í fyrri hálfleik. Hann fékk enga sjensa hjá Þóroddi dómara sem reyndar hefur líklega ekki verið viss um að Einar væri á spjaldi þegar hann gaf honum síðara spjaldið. Furðuleg dómgæsla og alls ekki til eftirbreytni enda á ekki að veifa rauðum spjöldum fyrir svona smámuni. Þetta gerði Fylkismönnum mjög erfitt fyrir en FH-ingar gengu hinsvegar á lagið. Þeir tóku öll völd á vellinum og náðu að jafna metin fimm mínútum eftir rauða spjaldið.
Þá skoraði Atli Viðar eftir að Matthías stakk boltanum innfyrir á Atla Guðna sem gerði hárrétt í stöðunni, var óeigingjarn og renndi boltanum yfir á Atla Viðar sem gat ekki annað en skorað.
FH-ingar fengu svo tvö góð færi í kjölfarið. Fyrst bjargaði Valur Fannar á línu eftir skalla Atla Viðars og síðan átti Matthías Vilhjálmsson skalla framhjá af vítapunkti í upplögðu marktækifæri en bæði færin komu eftir frábærar fyrirgjafir frá Hirti Loga vinstri bakverði FH-inga.
Hjörtur Logi átti svo fína aukaspyrnu rétt yfir markið og maður hafði á tilfinningunni að það væri aðeins tímaspursmál hvenær FH-ingar næðu forystunni. Atli Guðna fékk svo dauðafæri eftir sendingu fyrir frá hægri en Fjalar varði meistaralega í markinu.
Pétur Viðarsson fékk síðan sitt annað gula spjald þegar um korter var eftir og það var líka fyrir litlar sakir. Hann braut þá á Jóa Þórhalls en brotið verðskuldaði alls ekki gult spjald og ég get ekki skrifað þetta á annað en að Þóroddur hafi þarna verið að reyna að bæta upp fyrir rauða spjaldið sem Einar fékk.
Atli Viðar gjörsamlega óð í færum og varnarleikur Fylkismanna er hreinlega ekki mjög burðugur þessa dagana enda hafa aðeins Haukar fengið á sig fleiri mörk í sumar. Fjalar Þorgeirsson sem var langbesti maður vallarins í síðari hálfleik bjargaði enn frá Atla Viðari skömmu eftir að FH-ingar urðu jafnmargir á vellinum.
Fylkismenn fengu sín tækifæri þegar leið á leikinn og eitt þeirra var þegar Kristján Valdimarsson skeiðaði fram og sendi á Ingimund sem setti boltann fyrir á Gústa sem ákvað að skjóta með hægri en skotið fór hátt yfir. Færið var hins vegar býsna gott.
Færið var líka býsna gott sem Atli Viðar fékk skömmu síðar þegar hann slapp enn í gegn eftir að Addi ákvað að renna sér og missti þar af leiðandi af boltanum sem hefðu getað reynst dýr mistök en Atli Viðar fór hinsvegar illa að ráði sínu og skaut í hliðarnetið.
Enn var tími fyrir læti og fjör í lokin. Þar voru tvö stór og veigamikil atriði sem menn hafa rætt um af miklum móð allt frá því að leiknum lauk. Það fyrra var þegar Fylkismenn virtust hafa skorað. Þá gaf Þórir fyrir á Val Fannar sem skallaði boltann niður fyrir Stjána sem potaði honum inn. Valur Fannar var hinsvegar dæmdur rangstæður sem verður að teljast afar hæpinn dómur. Ekki er hægt að dæma fullkomlega um þetta í sjónvarpi en þar spilar inní hin frábæra íslenska myndataka. Miðað við hvar Valur Fannar er staddur þegar boltinn kemur til hans er nánast óhugsandi að hann hafi verið í rangstöðu þegar boltanum er spyrnt.
Í næstu sókn var Valur Fannar aftur í aðalhlutverki þegar hann braut augljóslega á Birni Daníel við marklínuna og forðaði því að Björn næði að skora eftir þunga sókn FH liðsins. Dómarinn og aðstoðardómarinn hristu hinsvegar höfuðið á meðan að FH-ingar mótmæltu harkalega sem endaði með því að Heimir Guðjónsson fékk brottvísun.

Heimir var allt annað en sáttur með að fá ekki víti
Ég kann illa við þessa stefnu í dómgæslu að þjálfarar megi ekki opna á sér munnin án þess að fá harðar refsingar fyrir. Manni finnst eins og þeir fái aðvaranir og brottvísanir við minnsta tilefni. Maður skilur gremju Heimis vel, því ef einhverntímann er hægt að réttlæta mótmæli þá var það þarna.
Enn var þó tími fyrir Fylkisliðið að stela sigrinum og Gústi komst í góða stöðu eftir skynisókn en var of lengi að athafna sig og færa boltann yfir á vinstri fótinn og varnarmaður FH komst fyrir.
Addi og Ásgeir Örn spiluðu síðan algjörlega frábærlega saman en Addi reyndi sendingu út sem misheppnaðist þegar mögulega hann hefði getað náð skoti.
Fylkismenn geta að mörgu leyti prísað sig sæla með eitt stig enda fengu FH-ingar alltof mikið af opnum færum. Varnarleikurinn er mikið áhyggjuefni hjá okkar mönnum enda hefur liðið fengiðp 13 mörk á sig í 6 leikjum sem er allt allt of mikið. Fylkir hefði hinsvegar hæglega getað stolið sigri og skoruðu líklega löglegt mark í stöðunni 2-2 sem má ekki gleymast í umræðunni.
FH-ingar líta mun betur út en í upphafi móts enda að ná sínum sterkustu mönnum saman. Best væri fyrir þá að senda þessa útlendinga sína heim og byggja á öðrum í leikmannahópnum en sókn FH var mun hættulegri eftir að Ólafur Páll kom inná fyrir Motland.
Næsti leikur Fylkismanna er gegn ÍBV í Eyjum næstkomandi sunnudag og þar verðum við að fá þrjú stig.
Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:
Fjalar Þorgeirsson 8 – Varði nokkur dauðafæri og við getum sannarlega þakkað honum þetta stig. Hugsanlega of framarlega í fyrsta markinu, erfitt að meta það. Eins og áður sagði langbesti maður vallarins í síðari hálfleik þar sem hann sýndi flotta takta enda valinn maður leiksins víða í fjölmiðlum
Andrés Már Jóhannesson 6 – Hefur sannarlega átt betri daga varnarlega en honum til vorkunnar er Atli Guðnason ekki auðveldasti andstæðingurinn í boði á Íslandi.
Einar Pétursson 6 – Óheppinn sérstaklega með seinna gula spjaldið og þar er aðeins dómaranum um að kenna en ekki Einari. Stóð sig annars þokkalega en lenti á köflum í vandræðum.
Kristján Valdimarsson 6 – Vörnin var ekki sannfærandi frekar en fyrri daginn og var það frekar heildarsvipurinn frekar en mistök einstakra leikmanna. Annars slapp Kristján ágætlega frá sínum leik, bjargaði frábærlega á línu og skoraði svo mark sem því miður var dæmt af. Það er svo sjaldgæft að þegar það gerist má alls ekki taka þau frá honum sama hvað gerst hefur.
Þórir Hannesson 6 – Fannst hann skila sínu en var eins og kannski öll vörn Fylkis stundum svolítið aftarlega.
Þórir er hér hugsanlega að veifa til aðdáenda Fylkis
Tómas J. Þorsteinsson 5 – Var í nýrri stöðu á kantinum þar sem kom afar lítið út úr honum og hann var nánast týndur. Réttilega tekinn af velli í hálfleik.
Valur Fannar Gíslason 8 – Afar sterkur í þessum leik, gerði mjög vel í að búa til fyrsta markið. Færði síðan kannski aðeins meira öryggi yfir vörnina þegar hann færðist niður í hafsentinn. Gerði svo auðvitað frábærlega í að forða marki í lokin fyrst að aðgerðir hans voru dæmdar löglegar.
Ásgeir Börkur Ásgeirsson 6 – Einn af hans slakari leikjum, sendingarnar voru margar hverjar arfalélegar en þær hafa alls ekki verið þannig fram að þessu í sumar. Ásgeir var í erfiðu hlutverki á miðjunni sérstaklega í síðari hálfleik þegar hann var með Alla með sér sem hætti sér stundum of framarlega. Mikið hefur mætt á honum á miðjunni í sumar og kannski smá þreyta í kallinum.
Kjartan Ágúst Breiðdal 6 – Því miður hafa meiðsli verið að plaga hann og því höfum við ekki fengið að sjá það allra besta hjá þessum gleðigjafa. Barðist af miklum krafti og kom sér í ágætis færi en fór illa að ráði sínu þar.
Albert Brynjar Ingason 8 – Er á miklu skriði þessa dagana og kominn með 5 mörk í 6 leikjum. Með þessu áframhaldi verður hann markakóngur Pepsi deildarinnar og slátrar þessu veðmáli við Óla Þórðar. Þetta er það sem við þurfum og það sem Fylki hefur skort um langa hríð, sóknarmann sem skorar 10-15 mörk á tímabili.
Ingimundur Níels Óskarsson 6 – Vonbrigðatímabil hjá Ingimundi það sem af er, aðeins eitt mark og er ekki að skila nógu miklu. Var nokkuð kaflaskiptur í þessum leik, sprækur á köflum en datt niður þess á milli.
Pape Mamadou Faye 8 – Einn hans besti leikur í búningi Fylkis. Var varnarmönnum FH virkilega erfiður ljár í þúfu og gerði frábærlega í að búa til annað markið. Hefði að mínu mati mátt vera aðeins lengur inná
Pape var grimmur og átti fínan leik
Jóhann Þórhallsson 6 – Alls ekki slæm innkoma hjá Jóa en hann náði ekki að vera nógu afgerandi en hann hefur verið nokkuð heitur fyrir framan markið og verðskuldaði tækifæri í leiknum.
Ásgeir Örn Arnþórsson – Spilaði ekki margar mínútur en sýndi virkilega fína takta þennan tíma sem hann var inná, er mjög vaxandi í sínum leik og mun fá sín tækifæri með þessu áframhaldi
Ótrúlegt en satt þá var enginn leikmaður með 7, held að þetta sé einsdæmi hjá mér.
Fylkir (4-4-2): Fjalar Þorgeirsson - Andrés Már Jóhannesson, Kristján Valdimarsson, Einar Pétursson, Þórir Hannesson - Ingimundur Níels Óskarsson (Ásgeir Örn Arnþórsson 82), Valur Fannar Gíslason (F), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Tómas Joð Þorsteinsson (Kjartan Ágúst Breiðdal 46) - Pape Mamadou Faye (Jóhann Þórhallsson 60), Albert Brynjar Ingason.
Ónotaðir varamenn: Andrew Bazi (M), Andri Már Hermannsson, Andri Þór Jónsson.
FH (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson, Guðmundur Sævarsson (Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 80), Pétur Viðarsson, Hafþór Þrastarson (Freyr Bjarnason 52), Hjörtur Logi Valgarðsson - Hákon Atli Hallfreðsson, Björn Daníel Sverrisson, Matthías Vilhjálmsson (F) - Atli Viðar Bjönsson, Torger Motland (Ólafur Páll Snorrason 46), Atli Guðnason
Ónotaðir varamenn: Gunnar Sigurðsson (M), Jón Ragnar Jónsson, Einar Karl Ingvarsson, Jacob Neestrup.
Markskot: Fylkir 7(3) - FH14(8)
Horn: Fylkir 8 – FH 4
Aðstæður: Eins og best verður á kosið.
Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr. 5 – Dæmdi þennan leik að mestu leyti ágætlega en þurfti að eyðileggja það fyrir sér með því að vera of spjaldaglaður. Ég held að flestir séu sammála um að rauðu spjöldin bæði séu alveg fáránleg þar sem bæði brotin eru mjög saklaus. Þetta bitnaði auðvitað meira á okkar mönnum sem voru einum færri í nánast hálftíma í seinni háfleik. Svo auðvitað missir hann af augljósu víti hjá FH í lokin, sem og að markið sem Stjáni skoraði rétt áður var að öllum líkindum fullkomlega löglegt en þar er reyndar ekki við hann að sakast heldur aðstoðardómara 2 Eðvarð Eðvarsson.
Aðstoðardómarar: Einar Sigurðsson og Eðvarð Eðvarðsson
Maður leiksins: Albert Brynjar Ingason Fylki
Alli nældi sér í miða á BK Kjúkling
Gul spjöld: Einar Pétursson ('10), Pétur Viðarsson ('27), Hákon Atli Hallfreðsson ('38), Ólafur Þórðarson (’48), Andrés Már Jóhannesson (’75), Atli Guðnason (’85)
Rauð spjöld: Einar Pétursson (’48), Pétur Viðarsson (’77), Heimir Guðjónsson (’85)
Áhorfendur: 1564
Myndir: Sigurgeir Smári Jónsson


eftir Dilbert 11:18 9-06-2010
Þetta er stórfín umfjöllun og samkvæmt bókinni. Set hinsvegar spurningamerki við umfjöllun RÚV. Þar voru ekki myndir af þriðja marki okkar og ekki minnst á það. Hvað átti það að þýða.
Áfram Fylkir, að eilífu...
eftir TobbZ 11:23 9-06-2010
Jafntefli fín úrslit miðað við hvernig leikurinn þróaðist, hefði verið ljúft að stela sigrinum þegar markið var tekið af Stjána.
eftir tom 03:03 9-06-2010
Aldrei víti þarna í lokin. Snyrtileg öxl í öxl hjá Val Fannari
eftir Viggó 03:51 9-06-2010
Flott umfjöllun Krissi... Er Skúli að fá sér eina með öllu á neðstu myndinni ?
eftir Valli 06:56 9-06-2010
eina með öllu...heheh