STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Umfjöllun: Klaufagangur í lokin kostaði sigurinn

skrifað 26-05-2010 (2 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

Fylkir 2 - 2 Fram
1-0 Albert Brynjar Ingason (‘2, víti)
2-0 Einar Pétursson (‘32)
2-1 Hjálmar Þórarinsson (‘86)
2-2 Hjálmar Þórarinsson (‘90+3)

Fylkismenn geta nagað sig í handarbökin með að ná aðeins í eitt stig úr viðureign sinni við Fram. Þeir voru yfir nánast allan leikinn en það dugði ekki til því Framarar gáfust ekki upp og skoruðu tvö mörk í blálokin. Þetta var grátlegt að horfa uppá enda fóru þarna tvö dýrmæt stig í súginn.

Ein breyting var á liði Fylkismanna frá leiknum gegn Keflavík. Ólafur Stígsson var meiddur og gat ekki leikið og í hans stað kom Þórir Hannesson. Hann fór niður í vinstri bakvörðinn og Tommi fór inná miðjuna í stöðu Óla. Ég persónulega hefði sett Adda fremst á miðjuna og Þóri í hægr i bakvörð og haldið Tomma í vinstri bakverði. Held að það komi betur út þannig, svo er Baldur Bett allur að koma til og kom inná fyrir Tomma og spilaði í rúmlega tuttugu mínútur.

Leikurinn hófst með miklum látum því strax í byrjun var Addi harkalega sparkaður niður inní vítateig og vítaspyrna að sjálfsögðu dæmd. Alli setti boltann á punktinn og skoraði af miklu öryggi og Fylkismenn komnir yfir.


Alli er gríðarlega örugg vítaskytta og hér er marki hans fagnað

Fylkir var sterkari aðilinn í upphafi leiks og héldu áfram að pressa Framara og fengu nokkrar hornspyrnur sem náðu þó ekki að ógna marki þeirra bláu að ráði. Framarar komust hægt og bítandi inn í leikinn og Tómas Leifsson sýndi smá lífsmark á hægri kantinum. Hann lagði upp skásta færi Fram í fyrri hálfleik þegar hann sendi fyrir á Ívar Björnsson sem skallaði yfir.

Ingimundur átti síðan skot úr ágætis stöðu sem Hannes varði vel eftir um 20 mínútna leik. 12 mínútum síðar jóku Fylkismenn forystu sína í 2-0 þegar Einar Pétursson skallaði inn eftir aukaspyrnu frá Adda sem small í slánni. Boltinn sveif yfir Hannes og allan pakkann í slána og Einar var fyrstur að átta sig og skallaði í tómt markið. Framarar heimtuðu aukaspyrnu en Kristinn dómari dæmdi ekkert líkt og stuttu áður þegar Fjalar Þorgeirsson handsamaði boltann naumlega eftir að sótt hafi verið að honum og mér fannst því Kristinn samkvæmur sjálfum sér að flauta í hvorugt skiptið.

Framarar voru slegnir eftir þetta og voru í vandræðum og Fylkismenn voru sterkari. Addi vann boltann glæsilega, sendi boltann á Ingimund og tók hlaupið innfyrir en Ingimundur gaf boltann of seint og rangstaða dæmd.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk Tommi svo algjört dauðafæri þegar hann slapp í gegn en skaut því miður hátt yfir.

Síðari hálfleikur var ekki eins fjörugur og sá fyrri og lengi framan af gerðist ekki mikið. Fylkismenn voru í þægilegri stöðu með tveggja marka forystu, en tveggja marka forysta er oft á tíðum ekki eins örugg eins og menn halda.

Það fyrsta athyglisverða sem gerðist hjá Fram í síðari hálfleik var þegar Þorvaldur Örlygsson þjálfari gerði þrefalda skiptingu þegar rúmlega hálftími var til leiksloka. Jón Guðni Fjóluson átti síðan þrumufleyg úr aukaspyrnu sem Fjalar varði stórglæsilega.

Gústi átti síðan mjög gott færi á 72 mínútu sem hann kom sér í sjálfur með mikilli baráttu og elju en var sennilega ekki í nógu jafnvægi þegar skotið reið af enda fór það framhjá markinu.

Fylkismenn náðu ekki að setja hið mikilvæga þriðja mark í leiknum en það tókst Frömurum. Það gerðist þó ekki fyrr en á 86 mínútu og var markið afar slysalegt af hálfu heimamanna. Mér líður hálfilla með að þurfa lýsa þessu hræðilega marki og ætla ekki að gera mér það geðheilsunar vegna, enda reikna ég með að flestir hafi séð það nú þegar.

Það var síðan 15 sekúndum fyrir leikslok að Framarar náðu að jafna. Aftur var það hornspyrna og þessu sinni var það Jón Guðni sem tók hana og hitti beint á kollinn á Hjálmari sem skallaði inn einn og óáreittur. Hreint með ólíkindum að allir menn séu ekki dekkaðir í síðustu hornspyrnu leiksins, þegar mest á reyndi að halda þessu nauma forskoti.

En mistökin eru víst til að læra af þeim, en þetta er mjög ólíkt Fylkisliðinu að missa niður forskot og sérstaklega tveggja marka forskot.

Spilamennskan hjá Fylkismönnum var ágæt, vörnin með Fjalar fyrir aftan var mjög traust enda fá Framarar nánast engin færi úr opnu spili. Valur og Ásgeir gáfu ekkert eftir og voru miðjumönnum Framara erfiðir. Sóknarleikurinn hefur sannarlega verið betri en við skorum þó tvö mörk sem á að duga til sigurs og fáum tvö dauðafæri í viðbót.


Vörnin var traust í leiknum

Næsti leikur er á sunnudaginn gegn Val á hinum sívinsæla Vodafone velli sem hefur verið mikið notaður í upphafi Pepsi deildarinnar. Leikurinn hefst kl 20:00 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport og fróðlegt verður að sjá hvernig sá leikur þróast.

Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:

Fjalar Þorgeirsson 6 – Ekki að leika jafn vel og í fyrra sem sést á því að við erum að fá á okkur of mörg mörk. Mér fannst að hann hefð hugsanlega getað farið út í knöttinn og hirt hann í jöfnunarmarkinu, alltaf erfitt að meta þessi atriði. Var annars búin að standa sig vel allan leikinn eins og öll Fylkisvörnin, en það slokknar á mönnum í lokin.

Andrés Már Jóhannesson 8 – Besti leikur Adda hingað til, byrjar leikinn auðvitað á að næla í víti og var síðan mjög öflugur í öllum sínum aðgerðum. Hefði þó verið gaman að sjá hann fremstan á miðjunni enda held ég að hann gæti skilað þeirri stöðu vel þó að hans besta staða sé í hægri bakverðinum.


Addi átti öflugan leik

Einar Pétursson 8 – Flottur leikur hjá stráknum, skorar mark og stóð sannarlega fyrir sínu í vörninni. Var næstur Hjálmari í jöfnunarmarkinu en eins og kom fram í viðtali við Einar var ekki ljóst hver átti að dekka hann.

Kristján Valdimarsson 8 – Þrátt fyrir þessar hörmungar í lokin var vörnin öll búin að eiga frábæran leik og Framarar náðu nánast aldrei að opna hana að neinu ráði. Kristján stjórnar vörninni af miklum myndarskap enda einn af eldri mönnum liðsins aðeins 26 ára. Stundum finnst manni eins og framlag hans sé ekki nægilega vel metið, sérstaklega í fjölmiðlaumfjöllun. Frammistaða hans hefur þó ekki farið framhjá okkur hér, enda var hann næstefstur í einkunnargjöf leikmanna á síðustu leiktíð.

Þórir Hannesson 7 – Var í smá vandræðum í byrjun leiks þegar Framarar fóru upp hægri kantinn. Hann var þó fljótur að stoppa upp í þau göt og lék mjög vel stærstan hluta leiksins. Alltaf gaman að fylgjast með baráttunni og kraftinum í honum

Valur Fannar Gíslason 8 – Valur mjög góður í þessum leik, gríðarlega vinnusamur og faglegur í nálgun sinni á verkefnið.

Ásgeir Börkur Ásgeirsson 7 – Nokkuð góður í þessum leik þó að hann hafi ekki náð sömu hæðum og í síðasta heimaleik þá skilaði sínu verki býsna vel.

Tómas J. Þorsteinsson 6 – Ekki hans staða og það sást langar leiðir, var lítið í boltanum en vinnusamur og duglegur eins og von var á. Sleppur í sexu því hann gerði ekki mörg mistök en hann er ekki lausnin sem fremsti miðjumaður að mínu mati, frekar að leyfa honum að þróast áfram í bakvarðarstöðunni.

Kjartan Ágúst Breiðdal 6 – Sást ekki mjög mikið en var feykilega duglegur og skilaði varnarvinnunni vel. Komst í dauðafæri í seinni hálfleik upp á sitt einsdæmi en fór illa með það. Vantar aðeins ennþá uppá að hann sýni sitt allra besta.

Albert Brynjar Ingason 7 – Skoraði af fádæma öryggi úr vítinu í upphafi, var síðan nokkuð ógnandi og nálægt því að sleppa frá Kristjáni Haukssyni hinum öfluga varnarmanni sem hefur nánast alltaf verið með Alla í vasanum í þeim fjölmörgu viðureignum sem þeir hafa háð í gegnum tíðina. Það var þó ekki alveg raunin í þessum leik og Alli var ágætlega líflegur.

Ingimundur Níels Óskarsson 5 – Hundfúll með Ingimund, getur vel verið að sé orðinn of kröfuharður á þennan frábæra leikmann. Ákvarðanatökurnar voru margar út úr kú, þetta er oft spurning um að velja rétta möguleika; Hvenær á að gefa og hvert, hvenær á að skjóta osfrv. Þetta var bara ekki hans dagur. Óli greinilega líka ekki alveg ánægður með hann því hann tekur hann útaf annan leikinn í röð, en þetta er leikmaður með hæfileika sem eiga að geta nýst liðinu í 90 mínútur í öllum leikjum

Baldur Bett 6 – Má eiginlega segja að Baldur hafi hvorki verið lélegur né góður. Hans fyrsti leikur í langan tíma og tekur eflaust smá tíma fyrir hann að venjast liðinu. Held þó að hann geti skilað góðu verki í sumar.

Pape Mamadou Faye 5 – Náði ekki að setja mark sitt á leikinn og ég man ekki eftir neinu sem hann gerði eða gerði ekki í leiknum. Jú heyrðu hann fékk gult spjald já.

Jóhann Þórhallsson 7 – Langsprækastur af varamönnunum og olli usla í vörn Framara. Virkar í mun betri formi en hann hefur nokkru sinni verið í appelsínugulum búningi. Náði að minna vel á sig á þessum 10 mínútum sem hann fékk


Það er ekki hægt að kvarta yfir vinnusemi leikmanna

Fylkir (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson - Andrés Már Jóhannesson, Kristján Valdimarsson, Einar Pétursson, Þórir Hannesson - Valur Fannar Gíslason (F), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Tómas Þorsteinsson (Baldur Bett ‘69) - Ingimundur Níels Óskarsson (Pape Mamadou Faye ’72), Kjartan Ágúst Breiðdal (Jóhann Þórhallsson ‘83), Albert Brynjar Ingason

Ónotaðir varamenn: Daníel Karlsson (M), Ásgeir Örn Arnþórsson, Andri Már Hermannsson, Andri Þór Jónsson

Fram (4-3-3): Hannes Þór Halldórsson - Daði Guðmundsson, Kristján Hauksson (F), Jón Guðni Fjóluson, Samuel Lee Tillen - Halldór Hermann Jónsson, Jón Gunnar Eysteinsson (Joseph Tillen ’58), Hlynur Atli Magnússon - Almarr Ormarsson, Ívar Björnsson (Hjálmar Þórarinsson ’58), Tómas Leifsson (Guðmundur Magnússon ’58)

Ónotaðir varamenn: Ögmundur Kristinsson (M), Hörður Björgvin Magnússon, Alexander Veigar Þórarinsson, Jón Orri Ólafsson,

Markskot: Fylkir 9(5) - Fram 9(7)

Horn: Fylkir 5 – Fram 8

Aðstæður: Frábært veður og völlurinn að verða flottari. Vantar að merkja völlinn betur til að vítateigs og endalínur sjáist betur, engin leið að sjá þetta og beini ég þeim tilmælum til vallarstjóra að úrbætur verði gerðar á þessu.

Dómari: Kristinn Jakobsson 8 – Mjög góður

Aðstoðardómarar: Gunnar Sverrir Gunnarsson og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson

Maður leiksins: Einar Pétursson Fylki og fékk að launum gjafabréf fyrir tvo á BK Kjúkling.

Gul spjöld: Kristján Hauksson (’30), Hannes Þór Halldórsson (’31), Jón Guðni Fjóluson (‘33), Ingimundur Níels Óskarsson (’44), Pape Mamadou Faye (’84), Guðmundur Magnússon (’90).

Áhorfendur: 1.813

eftir Dilbert 08:54 27-05-2010

Þetta var þyngra en tárum taki. Og alveg svakalega úr karakter hjá okkar mönnum. Það vita þeir best sjálfir og sennilega eru engir fúlari með þetta en þeir sjálfir. Liðið var að spila fínann bolta. Spilaði hann fullaftarlega undir það síðasta. Það má setja smá spurningamerki við hvernig fjarvera Óla var leyst, en samt virtist það ganga þokkalega upp. Skiptingarnar hjá okkur eru orðnar nokkuð fyrirsjáanlegar og Pape kallinn hefur nú ekki skilað miklu í sínum innkomum. Hann er ekki með sömu vinnusemi á vellinum og einkennir hina strákana. En það kemur vonandi.

Áfram Fylkir, að eilífu...

eftir Valli 09:30 27-05-2010

Sammála þessu, liðið hætti að spila boltanum í seinni hálfleik og það var kýlt fram í hvert einasta skiptið. Mér fannst reyndar Tommi standa sig bara ágætlega í þessari stöðu og leysti hana svo sem alveg. Hefði viljað sjá Jóa koma inn á á undan Pape, þar sem mér finnst Jói í feiknaformi. En það er bara 3 stig á Vodafone vellinum! Ekkert annað... Áfram Fylkir