Einar Péturs: Þetta er bara óskiljanlegt
skrifað 24-05-2010 (1 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson og Valur Ingi Johansen ræddu við menn eftir leik
Jæja Einar byrjum frábærlega í þessum leik og erum með þetta í höndunum, en hvað gerist?
Ég veit það ekki, við vorum mjög sterkir í fyrri hálfleik, og þeir fengu eitt tækifæri í fyrri hálfleik, þegar Ívar skallaði yfir, annars gerðu þeir ekki neitt, við vorum bara mjög massívir og góðir. Komnir með góða forystu en í seinni hálfleik ætluðum við bara að halda henni.
Gerðum það nú vel og lengi?
Já en við slökum of mikið á, það var vandamálið, og af einhverjum ótrúlegum ástæðum mætum við ekki eins brjálaðir í seinni hálfleikinn, vorum alltof slakir og vorum að tapa öðrum boltum og þetta er bara óskiljanlegt.
Við erum að detta alltof aftarlega og ætlum að halda og eitthvað rugl?
Já við erum að kýla fram hægri vinstri í staðinn fyrir að anda aðeins, þetta á stundum til að gerast með okkur
Mark hjá þér, ánægður með það?
Já alltaf gaman að skora, ég ætla nú að skora fleiri í ár heldur en í fyrra, þannig ég þarf að fara byrja
Hvernig var þetta mark? Var þetta brot eða eitthvað?
Ég sá Hannes aldrei ég bara bakka inn í teginn og hann keyrir í mig, og ég veit ekkert hvað gerist svo,
Þannig þetta var löglegt?
Já að mínu viti
Þessi mörk sem þeir skora? Hvernig voru þau? Því maður áttar sig eiginlega ekki á því hvað gerist í þeim?
Í fyrra markinu kemur einhver skíta hornspyrna, á nærstöngina og hún virðist fara í einhvern fylkismann í stöngina, í fylkismann og inn, alveg fáranlegt, við eigum að hreinsa þetta í fyrsta. Í seinna markinu er Hjálmar einn á marklínunni og það má ekki
Hver var að dekka hann?
Ekki hugmynd um það! Enginn held ég, fyrst enginn þorir að viðurkenna það, boltinn fór upp í sólina og það sér hann enginn og allt í einu fer hann inn, alveg fáranlegt.
Nú eigum við Val í næsta leik, hvernig líst þér á það?
Bara mjög vel, við erum vanir að sigra þá og við ætlum að gera það aftur.


eftir Dilbert 09:59 25-05-2010
Höfum fengið á okkur 6 mörk. Tvö úr hornum (í gær). Eitt úr aukaspyrnu á móti Stjörnunni. Eitt úr víti (Keflavík). Þá eru tvö (þrjú með vítinu) eftir sem hafa komið úr spili andstæðinga. Þetta er of mikið úr föstum, alltof mikið.
Áfram fylkir, að eilífu...