Fylkismenn.is tveggja ára
skrifað 20-05-2010 (1 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Vefsíðan Fylkismenn.is fagnar í dag tveggja ára afmæli en fyrsta fréttin á síðunni var skrifuð 20.maí árið 2008 en hana má sjá ef smellt er á linkinn hér að neðan.
Síðan hefur frá fyrsta degi verið mjög vinsæl og þá sérstaklega á meðal Fylkisfólks eins og ætlunin var. Stöðugt er unnið að því að efla síðuna og verður sumarið í ár gríðarlega skemmtilegt enda haugur af leikjum framundan.
Ég ætla að nota hér tækifærið og birta pistil sem ég skrifaði í fréttablað frá Fylki sem gefið var út fyrir fyrsta heimaleik ársins 2010 og dreift í öll hús í Árbænum.
Stuðningsmannavefsíðan fylkismenn.is er nú að hefja sitt þriðja starfsár en síðan var tekin í notkun í maí 2008. Hún varð til að frumkvæði nokkurra ötulla manna sem settu hana á fót með framlagi úr eigin vasa. Vefsíðan naut strax mikilla vinsælda, enda var lagt upp úr að gera meistaraflokki karla hjá félaginu ítarleg skil. Í ár mun fylkismenn.is verða öflugri en nokkru sinni enda verða starfsmenn síðunnar fleiri en verið hefur. Við verðum með eins og áður skemmtilegar upphitanir fyrir leiki til að stytta mönnum stundir og síðan er umfjöllun eftir hvern leik þar sem leikirnir eru krufnir til mergjar. Einnig ætlum við að hafa nýjustu fréttir, mikið af viðtölum við leikmenn og þjálfara og einnig verða skemmtilegir pistlar um íslenska boltann. Í sumar ætlum við einnig að gefa meistaraflokk kvenna meiri gaum en verið hefur. Það er því full ástæða til að fylgjast vel með í sumar enda er nóg framundan hjá Fylki. Ég hvet alla sem hafa ekki skráð sig nú þegar, að nýskrá sig til að taka þátt á spjallborðinu okkar og til að geta sett athugasemdir undir fréttir. Þarna er vettvangur til að skapa líflegar umræður. Ég vil líka vekja athygli á að hægt er að senda inn pistla sem geta fengið birtingu á síðunni.
Ég skora á alla fylkismenn til að gera fylkismenn.is að upphafsíðu í sumar, eða setja hana allavega í „favorites“. Við lofum góðri skemmtun. Okkar markmið er að síðan verði fastur liður í veraldarvefjarvappi allra fylkismanna
Góða skemmtun í sumar!
Kristján Gylfi Guðmundsson
Ritstjóri
Að lokum minni ég svo auðvitað á stórleik kvöldsins sem hefst kl. 19:15 á Njarðvíkurvelli. Rútur frá kirkjuplaninu leggja af stað kl.18:15


eftir Dilbert 03:14 20-05-2010
Takk fyrir mig. Þetta er síða númer eitt í hinu daglega vafri.
Áfram Fylkir, að eilífu...