Umfjöllun: Fylkismenn á toppinn
skrifað 17-05-2010 (4 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar
Fylkir - Stjarnan 3-1
1-0 Ingimundur Níels Óskarsson ('4)
1-1 Halldór Orri Björnsson ('13)
2-1 Albert Brynjar Ingason ('70)
3-1 Jóhann Þórhallsson ('88)
Fylkismenn hefja mótið með miklum glæsibrag, hafa sigrað í tveimur fyrsu leikjum sínum og eru nú einir á toppnum. Í gær sigruðu þeir Stjörnumenn á Fylkisvelli 3-1. Keflvíkingar geta reyndar jafnað okkur með sigri á Grindavík í kvöld en Fylkir mætir einmitt Keflvíkingum í næstu umferð á Njarðvíkurvelli.
Strax á 4 mínútu dró til tíðinda í leiknum. Ásgeir Börkur átti þá magnaða sendingu innfyrir flata vörn Stjörnunnar og Ingimundur hamraði knöttinn í netið framhjá Bjarna Þórði í markinu. Fylkismenn þar með komnir með forystuna og fengu þarna sannkallaða draumabyrjun.
Í næstu sókn vildu Stjörnumenn fá vítaspyrnu þegar Einar Pétursson stjakaði við Steinþóri sem fell í grasið eins og svo margoft í leiknum. Ekkert var dæmt. Fylkismenn héldu svo áfram að þjarma að Garðbæingum og sóttu upp kantana af miklum móð. Gústi átti síðan misheppnað skot úr ágætu færi.
Á 13 mínútu fengu Stjörnumenn síðan aukaspyrnu þegar Steinþór var tekinn niður rétt utan teigs. Halldór Orri Björnsson þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að hitta í bláhornið þar sem varnarveggur Fylkismanna var afar illa staðsettur eins og sést á myndinni hér fyrir neðan.

Varnarveggurinn lokar horninu ekki nógu vel
Stjörnumenn hresstust heldur við markið en fylkismenn héldu þó áfram að vera sterkari aðilinn í leiknum.
Ásgeir Börkur sem fór mikinn í Fylkisliðinu átti skot yfir markið og síðan var Daníel Laxdal varnarmaður Garðbæinga nálægt því að skora sjálfsmark eftir fína sókn Fylkis en Bjarni Þórður varði vel. Ólafur Stígsson náði síðan ekki að fylgja þessu á eftir og skaut í sjálfan sig.
Ólafur átti síðan skalla rétt framhjá eftir laglega fyrirgjöf Adda frá hægri. Stjörnumenn unnu sig aðeins inn í leikinn eftir þetta en fleira markvert gerðist ekki í fyrri hálfleik.
Seinni hálfleikur fór frekar rólega af stað en rólegheitin stóðu ekki lengi. Gústi komst í upplagt færi snemma en hitti boltann alls ekki. Áhangendur Fylkis fögnuðu síðan marki þegar Ingimundur virtist vera að skalla knöttinn í nærhornið en boltinn fór víst naumlega framhjá og fagnaðarlátunum var skyndilega aflýst.
Halldór Orri Björnsson lét svo heldur betur til sín taka. Fyrst fór aukaspyrna hans í gegnum alla leikmenn og í stöngina og síðan smellti hann knettinum í þverslána eftir fyrirgjöf. Frábært skot og Fylkismenn sluppu þarna heldur betur með skrekkinn.
Þetta vakti Árbæinga sem blésu nú aftur til sóknar. Ólafur Stígsson sýndi snilldartakta, tók boltann með sér á lofti áður en hann lét ríða af skot sem Bjarni Þórður sló í horn. Pape Mamadou Faye minnti síðan á sig þegar hann slapp í gegn eftir góða vinnu, Bjarni Þórður kom hins vegar vel út á móti og lokaði. En Stjörnumenn hugðu ekki að sér og nokkrum andartökum síðar var Ásgeir Börkur búinn að senda innfyrir á Alla sem var aleinn, lék á Bjarna og skoraði í autt markið. Hræðilegur varnarleikur hjá Garðbæingum þar sem þeir voru víðs fjarri sóknarmönnum Fylkis.
Fylkismenn héldu áfram, Ingimundur komst í upplagða stöðu hægra megin en reyndi sendingu á Pape sem varnarmaður komst inn í, þegar hann hefði sennilega frekar átt að taka skotið sjálfur.
Stjörnumenn komust næst því að jafna þegar tíu mínútur voru til leiksloka, þá átti Baldvin Sturluson furðulega góða bakfallsspyrnu sem Fjalar þurfti að hafa sig allan við að verja.
Það var síðan Jóhann Þórhallsson sem geirnegldi Fylkissigur þegar hann skoraði sigurmarkið skömmu áður en flautað var af. Bjarni átti þá afleita markspyrnu beint á Jóhann sem stakk varnarmennina af og skoraði undir Bjarna sem var kominn of langt út á móti honum.

Marki Jóa fagnað ákaft
Fylkismenn sigruðu því 3-1 annan leikinn í röð og byrja mótið með glæsibrag. Næsti leikur er svo handan við hornið, á fimmtudag gegn Keflavík á Njarðvíkurvelli kl. 19:15
Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:
Fjalar Þorgeirsson 6 – Verð að skrifa mark Stjörnunnar á hann þar sem hann ber ábyrgð á varnarveggnum og eins og sést á myndum var hann ekki í lagi. Greip annars ágætlega inn í en var í vandræðum með spyrnurnar.
Andrés Már Jóhannesson 7 – Fór ekki mikið fyrir honum en átti af og til góða spretti upp hægri vænginn. Á enn meira inni.
Einar Pétursson 6 – Kannski einna sístur í vörninni, mögulega heppinn að fá ekki á sig víti. Mér fannst þetta samt ekki víti, Steinþór féll full auðveldlega. Fór af velli vegna höfuðmeisla eftir olnbogaskot frá Marel.

Marel virðist fara með olnbogann í Einar
Kristján Valdimarsson 7 – Sást kannski ekki mikið en hann er ávallt með sitt á hreinu og Marel og þessar stelpur í Stjörnuliðinu ollu honum ekki teljandi vandræðum.
Tómas J. Þorsteinsson 6 – Náði ekki sama flugi og á Selfossi. Var í smá vandræðum í varnarleiknum en var heilt yfir ágætur samt.
Valur Fannar Gíslason 7 – Betri en gegn Selfossi sem fólst aðallega í að sendingar hans voru nákvæmari. Tapaði óvenju mörgum skallaboltum en það er ekkert til að hafa áhyggjur að.
Ásgeir Börkur Ásgeirsson 9 – Frábær í þessum leik, skilar ávallt 100% vinnuframlagi en hann átti hreint út sagt magnaðar sendingar, margar þeirra í gegnum vörnina. Hann klikkaði varla á sendingu í leiknum og minnti helst á Xavi. Lagði upp tvö mörk og átti toppleik.

Ásgeir Börkur smellti sér í viðtal við Hödda Magg
Ólafur Stígsson 8 – Einstaklega ánægður með framlag Óla til liðsins og það er ekki að sjá á honum að hann hafi hætt knattspyrnuiðkun um stundarsakir. Enginn ástæða fyrir hann að hætta meðan að getan er enn til staðar.
Kjartan Ágúst Breiðdal 7 – Gaf allt sem að hann átti í leikinn, vantar auðvitað uppá leikformið en hann var samt hættulegur á vængnum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Dró aðeins af honum í seinni og fór útaf eftir rúmlega klukkutíma leik.
Albert Brynjar Ingason 8 – Mjög góður leikur. Var hættulegur allan tímann, hélt boltanum betur en oft áður og sýndi mikla yfirvegun þegar hann lék framhjá Bjarna og skoraði í tómt markið. Féll aftur á miðjuna þegar Jói kom inná og stóð sig vel þar.
Ingimundur Níels Óskarsson 8 – Einn af betri mönnum liðsins. Skoraði gott mark og hefði hugsanlega getað skorað eða búið til fleiri. Bakverðir Stjörnunnar voru í stökustu vandræðum með hraða hans og leikni.
Þórir Hannesson 7 – Kom inn í hafsentinn snemma í seinni hálfleik og leysti það hlutverk af miklum sóma og mikilli festu.
Pape Mamadou Faye 7 – Mér fannst hann koma ágætlega inn, gerði sérstaklega vel í að koma sér í færi rétt áður en Alli skoraði. Sást annars kannski ekki mikið en skilaði sínu prýðilega.
Jóhann Þórhallsson 7 – Gerði út um leikinn annan leikinn í röð. Þetta er nákvæmlega hlutverk Jóa að koma inn og skora mikilvæg mörk. Með þessu áframhaldi verður hann mikilvægur hlekkur í liðinu.
Fylkir (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson - Andrés Már Jóhannesson, Kristján Valdimarsson, Einar Pétursson (Þórir Hannesson ‘55), Tómas Þorsteinsson - Valur Fannar Gíslason (F), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Ólafur Ingi Stígsson (Jóhann Þórhallsson ‘74) - Ingimundur Níels Óskarsson, Kjartan Ágúst Breiðdal (Pape Mamadou Faye ’61), Albert Brynjar Ingason
Ónotaðir varamenn: Andrew Bazi (M), Ásgeir Örn Arnþórsson, Andri Már Hermannsson, Friðrik Ingi Þráinsson.
Stjarnan (4-3-3): Bjarni Þórður Halldórsson, Baldvin Sturluson, Tryggvi Sveinn Bjarnason (Bjarki Páll Eysteinsson '62), Daníel.Laxdal, Hafsteinn Rúnar Helgason, - Atli Jóhannsson, Denis Danry, Steinþór Freyr Þorsteinsson – Jóhann Laxdal, Halldór Orri Björnsson, Marel Jóhann Baldvinsson (Þorvaldur Árnason '70).
Ónotaðir varamenn: Magnús Karl Pétursson (M), Björn Pálsson, Birgir Hrafn Birgisson, Hilmar Þór Hilmarsson, Víðir Þorvarðsson
Markskot: Fylkir 16(10) - Stjarnan 9(8)
Horn: Fylkir 8 – Stjarnan 4
Aðstæður: Gott veður og völlurinn í ágætu ásigkomulagi. Fín mæting á völlinn og ljóst að sumarið verður skemmtilegt.
Dómari: Einar Örn Daníelsson 6 – Ekkert voðalega sannfærandi dómgæsla hjá honum.
Aðstoðardómarar: Einar Sigurðsson og Sindri Kristinsson
Maður leiksins: Ásgeir Börkur Ásgeirsson Fylki

Ásgeir Börkur var maður leiksins og vann sér inn gjafabréf fyrir tvo á BK Kjúkling. Á myndinni með honum eru starfsmenn fylkismenn.is þeir Kristján Gylfi Guðmundsson, Valur Ingi Johansen og Sverrir Rafn Sigmundsson í sínu besta skapi eftir góðan sigur
Gul spjöld: Tómas Þorsteinsson ('32), Marel Jóhann Baldvinsson ('50), Þórir Hannesson ('73).
Áhorfendur: 1506


eftir freysi 07:40 17-05-2010
Grein í topp klassa að vanda
eftir Valli 09:06 18-05-2010
frábær umfjöllun og myndirnar eru frábær viðbót við þessar umfjallanir !
eftir Sprelli 11:07 18-05-2010
Þetta er að verða ein af topp þremur síðum hjá mér. Glæsilegt
eftir Dilbert 12:28 19-05-2010
Þessar umfjallanir eru stórglæsilegar. Og leikur okkar manna var frábær, ef undan er skilinn varnarvegurinn góði. Tek sérstaklega eftir því að flestir okkar manna eru í stutterma. Það er karlmennskumerki og sýnir að þar fara Íslendingar um völlin sem ekkert hræðast.
Sjáumst í Njarðvík.
Áfram Fylkir, að eilífu...