Óli Þórðar: Börkur var sérstaklega duglegur að stinga þessum boltum í gegn
skrifað 17-05-2010 (0 athugasemdir)
Kristján Gylfi Guðmundsson og Valur Ingi Johansen ræddu við menn eftir leik
Þjálfarinn Ólafur Þórðarson var brattur eftir leikinn
Óli draumabyrjun í mótinu, sex stig og við erum bara í frábærum málum eins og staðan er núna?
Já eftir tvær umferðir að þá getum við ekki verið betur settir, þannig að við erum mjög sáttir við það. Þetta var fínn leikur og við stjórnum honum meira og minna frá upphafi til enda og hefðum átt að skora fleiri mörk ef eitthvað var. Auðvitað voru Stjörnumenn hættulegir, en ef við tínum upp færin í leiknum þá áttum við klárlega miklu fleiri færi en þeir.
Við vorum að fara í gegnum bakverðina hjá þeim trekk í trekk og að nýta hraðann hjá okkur á köntunum vel?
Við vissum það að vörnin hjá þeim væri dálítið flöt og við fórum vel yfir það fyrir leik að vera duglegir að stinga okkur í þessi svæði fyrir aftan og Börkur var sérstaklega duglegur að stinga þessum boltum í gegn á Inga og Alla og þetta var bara frábært. Auðvitað voru hinir miðjumennir að gera vel líka en maður hefur kannski ekki séð mikið af þessu hjá Berki áður en hann er að þroskast vel þarna á miðsvæðinu.
Einar og Gústi fara útaf, eru meiðsli þeirra nokkuð alvarleg?
Einar fékk olnbogaskot þarna í fyrri hálfleik og það þurfti að stoppa blæðingu. Það gekk erfiðlega, það lak alltaf undan því og þess vegna fór hann útaf. Gústi var svo bara búinn með sitt, hann er ekki í toppformi og við vissum það og hlutverk hans var fyrst og fremst að fara út á völl og klára allt sem hann ætti og það gerði hann.
Jói að minna á sig með tveimur mörkum í tveimur leikjum?
Já frábært að eiga þessa menn til að koma inn og klára leiki og Jói gerði það líka á Selfossi, þannig það er bara snilld
Breiddinn kannski ekki eins léleg og margir vilja halda?
Breiddin þarna frammi er ágæt og við erum með þrjá góða sentera þannig að við erum ágætlega settir þar. Kannski hefði maður viljað hafa meiri breidd aftar á vellinum, sérstaklega á miðsvæðinu. Það er hlutur sem við erum alltaf að vinna í að búa til þá leikmenn sem við getum nýtt í framtíðinni og á bekknum erum við með Frikka og Andra og hugsanlega fleir sem gætu komið inn í þessar stöður.
Svo erum við með Odd nú meiddist hann um daginn, hvernig er með hann?
Oddur er frá þetta tímabil
Er það alveg staðfest?
Já það er alveg klárt að hann spilar ekkert þetta tímabil, það þarf allavega einhvern lottóvinning til að það verði.
Svo er það Keflavík í næsta leik, hvernig líst þér á það?
Það verður bara spennandi og verður klárlega erfiður leikur þannig við verðum að nýta tímann vel í að undirbúa okkur undir það.
Nú hefur Fylki gengið hræðilega í Keflavík heldur þú að það hjálpi okkur eitthvað að spila í Njarðvík?
Engin spurning, við erum ekki að fara í Keflavík. Við erum að fara spila í Njarðvík þannig það gæti verið það sem þarf, það er nátturlega bara hugfarslegt atriði sem við þurfum að stíga yfir. Það er bara að vinna næsta leik!

