STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Umfjöllun: Selfyssingar lagðir að velli í fyrsta leik

skrifað 13-05-2010 (6 athugasemdir)

Kristján Gylfi Guðmundsson skrifar

Selfoss - Fylkir 1-3:
0-1 Ólafur Ingi Stígsson (46)
0-2 Pape Mamadou Faye (54)
1-2 Sævar Þór Gíslason (70)
1-3 Jóhann Þórhallsson (90)

Fylkismenn hirtu þrjú dýrmæt stig á Selfossi í gær þegar þeir lögðu heimamenn að velli 1-3 í miklum bardagaleik. Markaskorarnir voru af athyglisverðri gerð; Ólafur Stígsson reið á vaðið og Pape Mamadou (eða Pappa eins og hann var nefndur í hátalarakerfinu í gær) bætti við marki áður en að okkar gamli vinur og félagi Sævar Þór Gíslason minnkaði muninn fyrir heimamenn. Jóhann Þórhallsson gerði síðan út um leikinn rétt áður en að honum lauk.

Leikurinn fær seint fegurðarverðlaun en það er nokkuð ljóst að leikmenn beggja liða lögðu sig allan í hann. Þetta var auðvitað fyrsti leikur Selfyssinga í efstu deild frá upphafi og mikil stemming í bæjarfélaginu og ljóst að heimamenn myndu ekki gefa tommu eftir. Fylkismenn mættu til leiks með sterkasta lið sem völ var á en mest munaði um að Kjartan Ágúst Breiðdal eða Gústi eins og hann er kallaður gat ekki leikið vegna meiðsla.

Leikurinn fór fjörlega af stað og voru Fylkismenn nálægt því að komast yfir strax á 3.mínútu þegar Ingimundur skaut í slá eftir fína sendingu frá Adda utan af kanti. Það er skemmst frá því að segja að Fylkismenn fengu nánast öll færin í leiknum án þess kannski að hafa mikla yfirburði út á vellinum.

Selfyssingar unnu sig inn í leikinn en náðu ekki að ógna marki Fylkis að ráði, helst var það eftir löng innköst og tvö langskot vel framhjá. Á 23 mínútu átti Einar Pétursson kraftmikinn skalla eftir hornspyrnu sem varnarmaður heimanna náði að verja á línu. Valur Fannar fékk svo annað gott skallafæri en Jóhann í marki Selfoss varði mjög vel. Ingimundur Níels fékk svo upplagðan möguleika þegar hann keyrði á vörnina óvaldaður en skaut framhjá þegar mögulega hefði verið betra að senda boltann til hliðar.

Þrátt fyrir að hafa fengið áðurtöld færi voru Fylkismenn ekki að spila nægilega vel úti á velli, nokkuð um feilsendingar og ómarkvisst spil. Selfyssingar náðu á smá kafla upp ágætis takti í sitt spil en voru ávallt í talsverðum vandræðum í vörninni þegar Fylkismenn beittu sínum eitruðu hröðu sóknum.

Þau vandræði héldu áfram í upphafi síðari hálfleiks því eftir rétt rúmlega mínútu leik í síðari hálfleik tókst Árbæingum að brjóta ísinn. Þar var að verki hinn gamalreyndi Ólafur Stígsson eftir frábæra sendingu frá Alberti Ingasyni. Fylkismenn hafa fengið hressilega ræðu í hálfleik því þeir voru miklu miklu sterkari í byrjun seinni hálfleiks. Ingimundur var sprækur í framlínunni og átti gott skot sem Jóhann varði.


Óli Stígs var á skotskónum

Jóhann Þórhallsson kom síðan inná fyrir Pape og var mikið í boltanum. Hann fór illa með gott færi eftir um 65 mínútna leik þegar hann slapp innfyrir, en enn var Jóhann Ólafur í marki Selfoss á tánum. Sóknarleikur Selfyssinga var afar tilþrifalítill en þeir eiga mann sem heitir Sævar Þór Gíslason sem getur alltaf skorað. Það gerði hann einmitt þegar um tuttugu mínútur voru eftir, slapp þá úr gæslu miðvarðanna Kristjáns og Einars sem höfðu gætt hans vel fram að þessu. Þeir seldu sig báðir og gamli maðurinn óð í gegn enda ennþá eldfljótur og skoraði framhjá Fjalari Þorgeirssyni.

Heimamenn náðu hins vegar engan veginn að fylgja þessu eftir og voru áfram slakara liðið sem sést best á því að markið hjá þeim var eina skot þeirra sem hitti markið í öllum leiknum.

Fylkismenn voru skynsamir og héldu boltanum vel og sköpuðu af og til hættu, sérstaklega í gegnum bakverði Selfossliðsins sem eru mjög slakir og sérstaklega Andri Freyr vinstra megin.

Náðarhöggið kom svo andartökum fyrir leikslok þegar Jóhann Þórhallsson náði boltanum eftir frekar slaka sendingu fyrir og kláraði dæmið frábærlega – meira að segja með hægri.

Verðskuldaður sigur okkar manna í fyrsta leik og gefur hann góð fyrirheit um framhaldið. Næsti leikur er okkar fyrsti heimaleikur, hann verður á sunnudaginn gegn Stjörnumönnum og hefst kl 19:15


Það var hart barist á Selfossvelli

Einkunnargjöf leikmanna Fylkis:

Fjalar Þorgeirsson 6 – Fjalar kom lítið við sögu og eina skotið sem fór á markið fór inn. Fjalar er alltaf traustur og veitir vörninni mikið öryggi.

Andrés Már Jóhannesson 7 – Stóð fyrir sínu eins og ævinlega, en kannski oft verið beittari fram á við en í þessum leik.

Einar Pétursson 7 – Stóð fyrir sínu og var harðákveðinn í öllum návígjum. Var með Sævar í góðri gæslu að undanskildu markinu sem Selfoss
skoraði.

Kristján Valdimarsson 7 – Sama með Kristján, virkilega þéttur og öruggur í miðverðinum en missteig sig aðeins þegar Sævar slapp í gegn og skoraði.

Tómas Jens Þorsteinsson 8 – Stóð kannski uppúr í nokkuð jöfnu Fylkisliði. Gríðarlega grimmur og öflugur fram á við, góðar sendingar í hættuleg svæði og stóð sig einnig vel varnarlega.

Valur Fannar Gíslason 6 – Oft verið betri, sérstaklega í sendingum á samherja. Mjög baráttuglaður og dreif samherja sína áfram með dugnaði, elju og krafti.

Ásgeir Börkur Ásgeirsson 6 – Var lítið í boltanum, svolítið týndur en gerði vel þegar hann fékk hann. Skynsamur og skilaði honum vel frá sér

Ólafur Stígsson 8– Frábær leikur hjá honum, sérstaklega með tilliti til að hann hefur lítið æft í vetur og er í lítillli leikæfingu.

Pape Mamadou Faye 6 – Gekk frekar erfiðlega að komast í takt við leikinn, en það sem skiptir mestu máli; Hann skoraði og er kominn á blað.

Albert Brynjar Ingason 7 – Flottur leikur hjá Alla. Síógnandi og lagði upp gott mark fyrir Óla Stígs.

Ingimundur Níels Óskarsson 7 – Sama með Ingimund, fínn leikur, hef þó séð hann sterkari og verður hann vonandi enn beittari í næstu leikjum.

Jóhann Þórhallsson 6 – Kom sér í nokkur góð færi, óvenju mikið í boltanum miðað við oft áður en voru mislagðar fætur fram að þessu afar smekklega marki sem hann skoraði í lok leiks.

Ásgeir Örn Arnþórsson – Kom inná seint.

Þórir Hannesson – Kom inná ennþá seinna


Fylkismenn fagna marki

Fylkir: (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson - Andrés Már Jóhannesson, Kristján Valdimarsson, Einar Pétursson, Tómas Þorsteinsson - Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Valur Fannar Gíslason (F), Ólafur Ingi Stígsson (Ásgeir Örn Arnþórsson ‘77) - Ingimundur Níels Óskarsson, Pape Mamadou Faye (Jóhann Þórhallsson ‘65), Albert Brynjar Ingason (Þórir Hannesson ‘86).

Ónotaðir varamenn: Andrew Bazi (M), Andri Már Hermannsson, Friðrik Ingi Þráinsson, Andri Þór Jónsson

Selfoss: (4-4-2): Jóhann Ólafur Sigurðsson - Kjartan Sigurðsson, Agnar Bragi Magnússon, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Andri Freyr Björnsson (Ingólfur Þórarinsson ´86) - Jón Daði Böðvarsson, Guðmundur Þórarinsson, Jón Guðbrandsson (Arilíus Marteinsson ´65) , Henning Eyþór Jónasson - Davíð Birgisson (Ingi Rafn Ingibergsson ´65), Sævar Þór Gíslason (F).

Ónotaðir varamenn: Elías Örn Einarsson (M), Sigurður Eyberg Guðlaugsson, Ingþór Jóhann Guðmundsson, Gunnar Rafn Borgþórsson.


Fyrrum fylkismaðurinn Jóhann Ólafur var líklega besti maður Selfoss

Markskot: Selfoss 5(1) – Fylkir 12(8)

Horn: Selfoss 4 – Fylkir 4

Aðstæður: Nokkuð erfiðar. Gervigras og rigning. Áhorfendaaðstaða auðvitað ekki boðleg í Úrvalsdeild en við fyrirgefum Selfyssingum það, þeir eru að byggja stúku.

Dómari: Magnús Þórisson 8 – Dæmdi mjög vel, leikurinn fékk að fljóta vel.

Aðstoðardómarar: Áskell Þór Gíslason og Gylfi Már Sigurðsson

Maður leiksins: Tómas Þorsteinsson Fylki


Tommi átti flottan leik og var ásamt Óla Stígs í liði umferðarinnar á fótbolta.net

Gul spjöld: Jón Daði Böðvarsson (’55), Andri Freyr Björnsson (’65), Stefán Ragnar Guðlaugsson (’76)

Áhorfendur: Um 1400

eftir tom 08:33 13-05-2010

mjög góð umfjöllun. hefði annars gefið óla stígs 10 í einkunn

eftir freysi 09:11 13-05-2010

Já glæsileg umfjöllun. Gaman líka að fá fullt af myndum með!

eftir Klovn 11:20 13-05-2010

Frábær umfjöllun.Flottar myndir, tökum svo stjörnuna !

eftir Tryggvi 07:58 14-05-2010

Já mögnuð umfjöllun um leikinn!

eftir fylkismadur 08:01 14-05-2010

Þetta var auðvitað erfiður baráttuleikur framan af. Erfiðar aðstæður, slæmt veður, gervigras og svo var gríðarlegur stuðningur og stemmning með heimamönnum. Þannig að heilt yfir tel ég mjög gott að setja 3 mörk og landa þarna góðum útisigri í fyrsta leik Selfoss þar sem að í rauninni allt var með heimamönnum. Selfyssingar áttu samt bara þetta eina færi svosem sem þeir skora úr. Annars sammála með umfjöllunina um leikinn... alveg frábær og ef þeta er það sem koma skal þá kvíð ég ekki sumrinu. Langar samt að segja að upphitunin var svolítið þynnri en oft áður en það vonandi verður betra líka með hverjum leiknum. Áfram Fylkir!!!!!

eftir TobbZ 01:13 14-05-2010

Klassa umfjöllun og mér líst vel á að hafa myndir frá leiknum með. Helviti gott að byrja á sigri á útivelli. Núna er það bara að flengja Stjörnuna í næsta leik. Jee