Viðtal við Pape
skrifað 12-05-2010 (1 athugasemdir)
Valur Ingi Johansen spjallaði við markaskorann Pape eftir leik
Til hamingju med sigurinn Pape
Já takk fyrir það
Fyrsti leikur, 3.stig á útivelli var þetta erfiður leikur?
Fyrri hálfleikurinn var kannski aðeins erfiður, en við mættum dýrvitlausir til leiks i seinni hálfleik og settum strax pressu á þá með því að setja fyrsta markið og svo kom annað markið og menn voru að standa saman i þessum leik.
Hvernig lagði Óli leikinn upp? Lagði hann upp með að pressa hátt?
Við áttum ad pressa fyrstu 10 mínúturnar, en við gerðum það ekki og þið vitið alveg hvernig Óli er, hann skammaði okkur og menn rifu sig upp af rassgatinu. Það var lykillinn að þessum sigri.
Mark i fyrsta leik?
Já nú er stressið farið (og honum er rosalega létt)
Hvað ætlaru að setja mörg í sumar?
Fyrsta markmiðið er að reyna skora 7 mörk
Varstu rangstæður?
Eg hélt það fyrst en Einar (Einar Ásgeirsson ljósmyndari) sagði að ég hafi ekki verið rangstæður og hann var alveg við stöngina á Selfoss markinu.
Við skoðum þetta í Pepsi mörkunum
Já ( og labbar inn i klefa hlæjandi)


eftir Klovn 12:00 13-05-2010
Flott meira svona!