Fylkir sigraði Þrótt R. 3-1
skrifað 20-04-2010 (0 athugasemdir)
Fylkismenn sigruðu Þrótt R. 3-1 í æfingaleik í dag. Jóhann Þórhallsson og Oddur Ingi Guðmundsson skoruðu fyrir Fylki og eitt markanna var sjálfsmark.
Fylkir - Þróttur 3-1
1-0 Dusan Ivkovic (sjálfsmark)
1-1 Muamer Sadikovic
2-1 Jóhann Þórhallsson
3-1 Oddur Ingi Guðmundsson
Dusan Ivkovic varnarmaður Þróttara kom Fylki yfir þegar hann setti boltann í eigið mark. Þróttarar náðu svo að jafna í upphafi seinni hálfleiks með marki frá Muamer Sadikovic. Jóhann Þórhallsson kom Fylki fljótlega aftur yfir með ágætis marki og það var síðan Oddur Ingi sem rak síðasta naglann í líkkistu Þróttara.
Hallur Hallsson fyrirliði Þróttara fékk svo beint rautt spjald rétt fyrir leikslok þegar hann sparkaði á eftir Oddi Inga, eftir að Oddur hafi brotið á honum.
Byrjunarlið Fylkis: Fjalar - Ásgeir Örn, Kristján, Þórir, Tómas - Óli Stígs,Ásgeir Börkur, Friðrik Ingi - Gústi, Andrés, Albert
Inná komu: A. Bazi, Einar P, Davíð , Andri J., Jói, Oddur,

