STAÐAN

01
ÍA
3
9
02
FH
3
7
03
Valur
3
6
04
Stjarnan
3
5
05
Keflavík
3
4
06
Breiðablik
3
4
07
KR
3
4
08
Fram
3
3
09
Selfoss
3
3
10
Fylkir
3
2
11
ÍBV
3
1
12
Grindavík
3
1
nánar

Hvernig líst þér á nýja þjálfarateymið?

Mjög vel

(12)

Frekar vel

(1)

Veit ekki

(0)

Frekar illa

(0)

Mjög illa

(0)

Næstu Leikir

Fylkir
H
Valur
FH
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Fram
Selfoss
Ú
Fylkir
Fylkir
H
Breiðablik
KR
Ú
Fylkir
nánar

Nýjustu Úrslit

Fylkir
0-1
ÍA
Stjarnan
1-1
Fylkir
Fylkir
1-1
Keflavík
Breiðablik
3-1
Fylkir
Fylkir
3-3
BÍ/Bolungarvík
Fylkir
1-2
ÍBV
nánar

Þór 3-3 Fylkir

skrifað 28-03-2010 (0 athugasemdir)

Þór 3 - 3 Fylkir
1-0 Sigurður Marinó Kristjánsson ('2)
2-0 Jóhann Helgi Hannesson (víti '24)
3-0 Atli Sigurjónsson ('28)
3-1 Albert Brynjar Ingason ('56)
3-2 Ingimundur Níels Óskarsson ('78)
3-3 Jóhann Þórhallsson ('96)

Þór og Fylkir gerðu 3-3 jafntefli í Lengjubikarnum í kvöld í fjörugum leik í Boganum. Þórsarar leiddu 3-0 í hálfleik en Fylkismenn náðu að koma til baka og Jóhann Þórhallsson skoraði jöfnunarmarkið í viðbótartíma gegn sínum gömlu félögum.

Áhorfendur í Boganum þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta markinu en Sigurður Marinó Kristjánsson skoraði þá eftir hrikaleg mistök í vörn Fylkis.

Jóhann Helgi Hannesson bætti öðru marki við fyrir Þórsara þegar hann skoraði úr vítaspyrnu sem dæmd var Fylkismaður fékk boltann í hendina.

Þórsarar náðu síðan að komast í 3-0 fyrir leikhléi en Atli Sigurjónsson komst þá í gegn og skoraði eftir góða skyndisókn.

Fylkismenn voru ekki ánægðir með gang mála og þeir rifu sig upp og sóttu mikið í síðari hálfleiknum. Það skilaði sér með marki frá Alberti Brynjar Ingasyni.

Þegar um tíu mínútur voru eftir náði Ingimundur Níels Óskarsson að skalla fyrirgjöf í netið og minnka muninn í 3-2.

Þórsarar fengu gullið tækifæri til að innsigla sigurinn undir lokin en Hreinn Hringsson skaut þá yfir úr dauðafæri eftir klaufagang í vörn Fylkis.

Fylkismenn nýttu sér þetta og þeir náðu að jafna seint í viðbótartíma þegar að Jóhann slapp einn í gegn og skoraði. Jóhann hafði fyrr í hálfleiknum misnotaði dauðafæri en honum brást ekki bogalistin í viðbótartímanum og lokatölur 3-3.

Frétt frá Fótbolta.net

Lið Fylkis (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson - Andrés Már Jóhannesson (Ásgeir Örn Arnþórsson 28), Einar Pétursson (Friðrik Ingi Þráinsson 91), Davíð Þór Ásbjörnsson, Tómas Þorsteinsson - Kristján Valdimarsson, Oddur Ingi Guðmundsson (Felix Hjálmarsson 46), Ásgeir Börkur Ásgeirsson - Ingimundur Níels Óskarsson, Pape Mamadou Faye, Albert Brynjar Ingason (Jóhann Þórhallsson 85).