Eldri fréttir
Lengjubikarinn: Jafnt í fyrsta leik
20-02-2012
Fylkir og Valur áttust við í fyrsta leiknum í Lengjubikarnum í ár. Liðin höfðu áður mæst í Reykjarvíkurmótinu þar sem Fylkir hafði betur 3-2 í hörku leik. Fylkismenn byrjuðu betur í leiknum og komust yfir á 7 mínútu með stórbrotnu marki frá Elís en hann þrumaði boltanum upp í bláhornið af 30 metra færi.
athugasemdir: 0
lesa áframLengjubikarinn hefst í kvöld - Valur fyrstu andstæðingarnir
17-02-2012
Fylkismenn hefja leik í Lengjubikarnum í kvöld er liðið mætir Valsmönnum. Þetta er annað sinn á undirbúningstímabilinu sem þessi lið mætast, en þau voru einnig saman í riðli í Reykjarvíkurmótinu. Þar höfðu okkar menn betur 3-2
athugasemdir: 0
lesa áframTap gegn Víkingi Ólafsvík í æfingaleik
13-02-2012
Fylkismenn hafa spilað æfingaleiki síðustu tvær helgar. Í gær tapaði liðið fyrir Víkingi Ólafsvík 4-2 í Akraneshöllinni en þann 4. febrúar tapaðist leikur gegn Aftureldingu 1-0 í Mosfellsbæ.
athugasemdir: 0
lesa áframÁsgeir Börkur til Atvidabergs FF á reynslu
11-02-2012
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, leikmaður Fylkis mun halda út til Svíþjóðar næsta mánudag þar sem hann verður til skoðunar hjá Atvidabergs FF sem leikur í efstu deild þar í landi.
athugasemdir: 1
lesa áframDrög að leikjaniðurröðun í Pepsi deild karla 2012
10-02-2012
Drög að leikjaniðurröðun í Pepsi deild karla 2012 eru komin inná heimasíðu KSÍ. Fylkir byrjar tímabilið á heimaleik gegn Keflvíkingum sunnudaginn 6. maí og lokaleikurinn er útileikur gegn Grindvíkingum laugardaginn 29. september.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Naumt tap gegn KR
10-02-2012
Þátttöku Fylkismanna í Reykjavíkurmótinu er lokið eftir tap gegn KR. Dofri Snorrason skoraði eina mark leiksins rétt fyrir lok fyrri hálfleiks en hvorugu liðinu tókst að bæta við mörkum eftir það og KR-ingar fara því í úrslitaleikinn þar sem þeir mæta Frömurum.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir mætir KR í kvöld kl. 20:45
09-02-2012
Fylkismenn mæta KR-ingum í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins í Egilshöll í kvöld kl. 20:45. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta, en fyrir þá sem komast ekki verður leikurinn í beinni útsendingu á Sport TV.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Jafntefli gegn Þrótti R.
05-02-2012
Fylkismenn gerðu 1-1 jafntefli við Þróttara í Reykjavíkurmótinu á fimmtudaginn. Fylkir vann því riðilinn og Þróttarar fara áfram í öðru sæti. Árni Freyr Guðnason skoraði mark Fylkis. Fylkir mætir KR í undanúrslitum mótsins næsta fimmtudag
athugasemdir: 0
lesa áframFylkismenn óvænt komnir áfram - leikur gegn Þrótti R. í kvöld kl 19:00
02-02-2012
Fylkismenn komust óvænt áfram í Reykjavíkurmótinu í dag. Fylki var dæmdur 3-0 sigur gegn Fjölni þar sem Fjölnismenn notuðu ólöglegan leikmann, en leikurinn fór 2-2. Fylkir mætir Þrótti R. í kvöld í Egilshöll kl 19:00
athugasemdir: 0
lesa áframHjörtur til PSV
01-02-2012
Hinn bráðefnilegi Hjörtur Hermannsson er genginn í raðir hollenska stórliðsins PSV Eindhoven. Hjörtur hefur verið undir smásjá fjölmargra liða í Evrópu og hefur farið til æfinga víða.
athugasemdir: 2
lesa áframUmfjöllun: Rúrik tryggði sigur á Val undir lokin
29-01-2012
Fylkismenn unnu mjög góðan sigur á sterku Valsliði 3-2 í Egilshöllinni á föstudagskvöldið. Valsmenn komust tvisvar yfir í leiknum en okkar menn sýndu mikinn karakter og jöfnuðu í tvígang og skoruðu síðan sigurmarkið undir lok leiksins.
athugasemdir: 0
lesa áframRvk mótið - Leikur við Val í kvöld
27-01-2012
Fylkir spilar sinn annan leik í Reykjarvíkurmótinu í kvöld. Fyrsti leikur Fylkis endaði með 2-2 jafntefli gegn Fjölni þar sem Fylkir var 2-0 yfir í hálfleik en klúðraði niður forustunni í restina. Leikurinn í kvöld er við Val
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Fylkir - Fjölnir 2-2
23-01-2012
Fylkismenn gerðu jafntefli í sínum fyrsta leik í Reykjavíkurmótinu gegn Fjölni. Eftir að hafa komið sér í þægilega stöðu í fyrri hálfleik með tveimur góðum mörkum voru okkkar menn værukærir í þeim síðari og Fjölnismenn náðu að jafna áður en yfir lauk.
athugasemdir: 0
lesa áframStórsigur á Gróttu
18-01-2012
Mjög ungt lið Fylkis átti ekki í miklum vandræðum með Gróttumenn og unnu að lokum 5-1.
athugasemdir: 0
lesa áframÆfingaleikur við Gróttu í kvöld
17-01-2012
Fylkismenn leika í kvöld æfingaleik í Egilshöll gegn Gróttu kl 20:00. Þetta er annar leikur liðsins á nýju ári
athugasemdir: 0
lesa áframÖruggur sigur gegn Haukum
16-01-2012
Fylkismenn unnu í gær öruggan 3-0 sigur á Haukum. Fylkismenn voru sterkari aðilinn allan tímann og spiluðu nokkuð góðan leik.
athugasemdir: 0
lesa áframLeikur í dag
15-01-2012
Fylkismenn leika í dag æfingaleik í Kórnum gegn Haukum kl 17:30. Þetta er fyrsti leikur liðsins á nýju ári og verður spennandi að fylgjast með því hvernig liðið kemur út. Við hvetjum fólk að sjálfsögðu til að mæta og styðja okkar menn til sigurs.
athugasemdir: 0
lesa áframHerrakvöld Fylkis föstudaginn 20.janúar
09-01-2012
Herrakvöld Fylkis 2012 verður á bóndadaginn, föstudaginn 20. janúar. Miðasala er hafin í Fylkishöll í síma 567-6467
athugasemdir: 0
lesa áframFutsal leikur á föstudaginn
05-01-2012
Gleðilegt ár kæra Fylkisfólk og takk fyrir samfylgdina á liðnum árum. Lítið er að frétta af meistaraflokki þessa dagana en æfingar eru nú að hefjast að nýju eftir jólafrí. Fyrsti leikurinn á nýju ári er Futsal leikur gegn Fjölni á morgun (föstudag) í Laugardalshöll kl 18:30
athugasemdir: 0
lesa áframJóns Ellerts minnst á föstudaginn
28-12-2011
Vinir Jóns Ellerts Tryggvasonar ætla að hittast á Blásteini á föstudaginn og minnast vinar síns og eiga notalega stund saman. Þetta byrjar um kl 18:00 og myndasýning af Jóni mun ganga á breiðtjöldum.
athugasemdir: 0
lesa áframFlugeldasala Fylkis í Fylkishöll - Hefst 28.desember
27-12-2011
Flugeldasala Fylkis verður í Fylkishöll ( tengibyggingu ) og hefst 28. desember klukkan 16:00. Hægt er að skrá sig í happadrættisleik og fara þá í sannkallaðan sprengipott.
athugasemdir: 0
lesa áframJón Ellert Tryggvason látinn
25-12-2011
Einn mesti stuðningsmaður Fylkis og góður félagi Jón Ellert Tryggvason er nú fallinn frá, 44 ára að aldri.
athugasemdir: 1
lesa áframGleðileg jól!
25-12-2011
Við á fylkismenn.is óskum öllum Fylkismönnum gleðilegra jóla og vellíðan yfir hátíðirnar.
athugasemdir: 0
lesa áframÞorláksmessuskötuveisla í Fylkishöll
22-12-2011
Fylkisfélagar og Club Orange standa fyrir Þorláksmessuskötuveislu í Fylkishöll 23. desember frá kl 11-14. Verð kr. 2900-með kaffi. Nú er um að gera að panta strax !! Borðapantanir í síma 892-4598 (Jón) eða 824-0403 (Sigrún)
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir - KB 9-6
16-12-2011
Fylkir sigraði KB í hörkuleik í Fylkishöllinni í Íslandsmótinu í Futsal. Okkar menn leiddu 4-3 í hálfleik og lokatölur urðu 9-6 fyrir okkar menn.
athugasemdir: 0
lesa áframRiðill Fylkis í Lengjubikarnum
14-12-2011
Búið er að draga í riðla í Lengjubikarnum. Fylkir er í riðli með FH, Fjölni, Grindavík, Hetti, Leikni R., Þór, og Val. Þá eru einnig komin drög að leikjaniðurröðun og fyrsti leikurinn er við Valsara 17. febrúar á nýju ári.
athugasemdir: 0
lesa áframFutsal á fullu
14-12-2011
Fylkismenn standa í ströngu í hinni stórundarlegu íþrótt futsal en Íslandsmótið í futsal stendur nú yfir. Tveir síðustu leikir hafa farið vel, tveir sigrar á Aftureldingu og KB.
athugasemdir: 0
lesa áframKári Ársælsson hættur að æfa með Fylki
03-12-2011
Kári Ársælsson sem æft hefur með Fylki að undanförnu er hættur að æfa hjá félaginu. Kári spilaði gegn Þrótti R. í síðustu viku en nú er ljóst að þetta verður eini leikur hans í Fylkisbúningi, í bili að minnsta kosti.
athugasemdir: 0
lesa áframTap og jafntefli um helgina
03-12-2011
Meistaraflokkur Fylkis stóð í ströngu um helgina og spilaði tvo leiki. Þann fyrri á föstudagskvöld í Íslandsmótinu í Futsal þar sem okkar menn töpuðu 3-4 fyrir Víkingi Ólafsvík í Fylkishöllinni. Niðurstaðan var heldur betri í síðari leiknum sem fór fram í morgun (laugardagsmorgun) en þar skildu Fylkir og Breiðablik jöfn 2-2 í Fífunni.
athugasemdir: 0
lesa áframTap gegn Þrótti R.
30-11-2011
Fylkismenn áttu arfaslakan leik gegn Þrótturum í Egilshöllinni fyrr í kvöld. Þróttarar sigruðu 1-4 og okkar menn voru í mesta basli með varnarleikinn. Þá var sóknarleikurinn einnig mjög bitlaus og greinilegt að mikil vinna er framundan hjá þjálfarateyminu.
athugasemdir: 0
lesa áframLeikur í kvöld gegn Þrótti R.
29-11-2011
Fylkismenn leika æfingaleik í kvöld við Þrótt R. Leikurinn hefst kl 20:00 í Egilshöllinni. Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til að mæta, enda verður gaman að sjá hvernig liðið kemur út.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir- Afturelding/Hvíti Riddarinn 12-12
25-11-2011
Fylkir og Afturelding/Hvíti Riddarinn mættust í íþróttahúsinu í Kórnum í gær og urðu lokatölur í athyglisverðari kantinum en leikurinn endaði með jafntefli 12-12. Næsti leikur okkar manna er æfingaleikur gegn Þrótti R. á þriðjudaginn í Egilshöll.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir tekur þátt í Íslandsmótinu innanhúss (Futsal) - Fyrsti leikur í kvöld!
24-11-2011
Fylkir tekur þátt í Íslandsmótinu innanhúss 2011. Fylkir er í riðli með athyglisverðum liðum en hin liðin í riðlinum eru Afturelding/Hvíti Riddarinn, KB og Víkingur Ólafsvík, en leikin er tvöföld umferð Fyrsti leikurinn er í kvöld gegn Mosfellingum í iþróttahúsinu í Kórnum.
athugasemdir: 0
lesa áframRiðill Fylkis í Reykjavíkurmótinu
24-11-2011
Búið er að raða niður riðlunum í Reykjavíkurmótinu sem hefst í janúar 2012. Fylkir er í B-riðli ásamt Fjölni, Valsmönnum og Þrótti R. Fyrsti leikurinn er gegn Fjölni sunnudaginn 22. janúar í Egilshöll.
athugasemdir: 0
lesa áframFinnur Ólafsson í Fylki
23-11-2011
Finnur Ólafsson sem leikið hefur með ÍBV var nú rétt í þessu að skrifa undir þriggja ára samning við Fylki. Finnur sem er miðjumaður hefur verið frábær í liði Eyjamanna undanfarin tvö ár.
athugasemdir: 4
lesa áframViðtöl við Ásmund og Ásgeir Börk
16-11-2011
Hér koma viðtöl við Ásmund Arnarsson þjálfara Fylkis og Ásgeir Börk Ásgeirsson sem tekin voru eftir æfingaleik Fylkis og Fjölnis í gærkvöldi.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir - Fjölnir 1-2
15-11-2011
Fylkir og Fjölnir áttust við í kvöld í æfingaleik í Egilshöll. Fjölnismenn sigruðu með tveimur mörkum gegn einu og var það Rúrik Andri Þorfinsson sem skoraði mark okkar manna
athugasemdir: 0
lesa áframÁsgeir Börkur framlengir til tveggja ára
15-11-2011
Ásgeir Börkur Ásgeirsson var nú rétt í þessu að skrifa undir nýjan tveggja ára samning. Eru þetta frábær tíðindi og gríðarlega mikilvægur liður í að okkur takist að byggja upp gott lið. Ásgeir var mjög eftirsóttur og ræddi við nokkur lið, en valdi að vera áfram í Árbænum.
athugasemdir: 2
lesa áframÆfingaleikur: Fylkir - Fjölnir
15-11-2011
Fylkir og Fjölnir eigast við í æfingaleik í Egilshöll í kvöld og hefst leikurinn kl.20:00. Fylkir er með glænýtt þjálfara teymi og nokkra nýja leikmenn sem samkvæmt heimildum okkar spila allir í kvöld. Hvetjum alla fylkismenn til að gera sér ferð upp í Egilshöll og kíkja á strákana.
athugasemdir: 0
lesa áframUpprifjun á stöðu mála - Síðan komin aftur í gang!
14-11-2011
Nú er síðan okkar loksins komin upp eftir röð tæknilegra vandamála. Á meðan á þessu stóð hefur heldur betur margt gerst hjá okkar mönnum, nýjir leikmenn og þjálfarar hafa bæst við, auk þess sem nokkrir leikmenn hafa horfið á braut. Við skulum rifja upp hvað hefur gengið á.
athugasemdir: 1
lesa áframFifa 12 mót nr.2 á Blásteini í kvöld!
11-11-2011
Við hér á fylkismenn.is ætlum að standa fyrir FIFA 12 móti nr.2 í kvöld. Mótið verður haldið á Blásteini og hefst stundvíslega kl. 19:00. Þátttökugjaldið er 1000 krónur á mann og fer það allt upp í vinninga. Það eru eins og venjulega tveir saman í liði
athugasemdir: 1
lesa áframLeikmaður ársins að mati stuðningsmanna!! Vilt þú taka þátt?
13-10-2011
Stuðningsmenn Fylkis hafa kosið leikmann ársins síðustu ár og taka fjölmargir þátt í valinu. Kosningin stendur yfir akkúrat núna og ef þú vilt hafa áhrif á valið þá biðjum við þig lesandi góður um að senda okkur póst á valurinn@hotmail.com fyrir miðnætti á föstudag
athugasemdir: 0
lesa áframÁhorfendastúka hjá Fylki ? Pistill frá formanni
11-10-2011
Mikið hefur verið rætt á meðal mannaí Árbæjarhverfi um aðstöðumál áhorfenda við aðalknattspyrnuvöll Fylkis. Fylkir hefur mátt búa við það mörg undanfarin ár að vera með lélegustu aðstöðu fyrir áhorfendur af þeim félagsliðum sem spila í efstu deild KSÍ bæði í karla- og kvennaflokki.
athugasemdir: 0
lesa áframFifa mót Fylkismenn.is föstudaginn 14.Október
11-10-2011
Við hér á fylkismenn.is ætlum að standa fyrir FIFA 12 móti á föstudaginn næsta. Mótið verður haldið á Blásteini og er þátttökugjaldið 1000 krónur á mann. Það eru tveir saman í liði og allt þáttökugjaldið fer upp í vinninga.
athugasemdir: 1
lesa áframKnattspyrnuferill Ásmundar Arnarssonar
11-10-2011
Ásmundur Arnarsson var fyrir skömmu ráðinn þjálfari meistaraflokks Fylkis næstu þrjú árin. Ásmundur sem er aðeins 39 ára gamall hefur þjálfað Fjölni undanfarin sjö ár en þar áður var hann spilandi þjálfari hjá Völsungi á Húsavík en Ásmundur er uppalinn Húsvíkingur. Skoðum nánar feril Ásmundar sem leikmaður og þjálfari.
athugasemdir: 0
lesa áframÁsmundur Arnarsson tekur við Fylki
10-10-2011
Ásmundur Arnarsson verður í kvöld ráðinn þjálfari Fylkis en þetta var staðfest á heimasíðu Fjölnis nú rétt í þessu. Tekur hann við starfinu af Ólafi Þórðarssyni sem tók við Víking á dögunum. Ásmundur hefur þjálfað lið Fjölnis frá árinu 2004.
athugasemdir: 13
lesa áframVideo af gólfmótinu 10.september
10-10-2011
Hér sjáum við stórskemmtilegt video sem var klippt saman af golfmóti fylkismanna.is þann 10. september síðastliðinn. Eins og sést þá voru keppendur ansi skrautlegir og mörg skondin atvik áttu sér stað.
athugasemdir: 0
lesa áframLeikmanna og þjálfaraglugginn - Hverja viljum við fá og hverjum viljum við halda?
06-10-2011
Þá er komið að því að leikmanna og þjálfaramarkaðurinn sé kominn á fullt. Nú ætlum við að henda upp lista yfir samningslausa (bæði hjá Fylki og annarsstaðar) sem og áhugaverða leikmenn sem gætu verið í boði. Við viljum fá ykkur skoðun kæru notendur á því hverja við eigum að fá og ekki síst hver á að þjálfa liðið.
athugasemdir: 10
lesa áframUmfjöllun: Nóg af fjöri í Árbænum
05-10-2011
Fylkismenn enduðu í sjöunda sæti Pepsi deildarinnar eftir 3-5 tap í lokaleiknum á Fylkisvelli. Leikurinn var bráðfjörugur eins og tölurnar gefa til kynna og mörkin hefðu hæglega getað orðið talsvert fleiri.
athugasemdir: 0
lesa áframViðtal við Óla Þórðar eftir leik Fylkis og FH
02-10-2011
Viðtal við Óla Þórðar eftir leik Fylkis og FH. Spjallað var aðeins um leikinn og síðan var stiklað á stóru um feril Óla hjá félaginu.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir endaði í sjöunda sæti
01-10-2011
Fylkismenn töpuðu í dag 3-5 fyrir FH í lokaleik tímabilsins. Þetta var jafnframt lokaleikur Ólafs Þórðarsonar sem þjálfara og ljóst að finna þarf nýjan mann í brúnna fyrir næsta tímabil. Þar sem Blikar unnu Stjörnuna og við töpuðum er ljóst að okkar menn enduðu í 7. sæti með 25 stig.
athugasemdir: 0
lesa áframTippari vikunnar - Ólafur Björgvin Pétursson
30-09-2011
Tippari vikunnar er liður hjá okkur á fylkismenn.is. Hann gengur út á að við fáum einn speking fyrir hverja umferð til að spá og spekúlera í leiki umferðarinnar. Við hvetjum notendur síðunnar að koma með sína spá í kommentakerfið og einnig er hægt að gera það gegnum facebook.
athugasemdir: 2
lesa áframUpphitun: Lokaleikur tímabilsins
30-09-2011
Fylkismenn leika lokaleik sinn á tímabilinu gegn FH á Fylkisvelli á morgun. Ekki er hægt að tala um að leikurinn sé sá mikilvægasti í sögu félaganna en hann gæti þó orðið fínasta skemmtun.
athugasemdir: 0
lesa áframÓlafur Þórðarson hættir með Fylki
30-09-2011
Ólafur Þórðarson verður ekki þjálfari Fylkis á næsta tímabili. Eitthvað greinir nú fjölmiðlum á hvort Fylkir eða Óli hafi ekki viljað halda samstarfinu áfram, en við hér á fylkismenn.is lofum ítarlegu viðtali við Óla eftir leikinn á morgun gegn FH.
athugasemdir: 3
lesa áframLokaball Fylkis
29-09-2011
Lokaball Fylkis fer fram næstkomandi laugardagskvöld 1. október. Páll Óskar heldur uppi stuðinu frá 23:00-3:00. Miðasala er í fullum gangi.
athugasemdir: 1
lesa áframUmfjöllun: Fylkismenn stóðu í KR-ingum
26-09-2011
Fylkismenn þurftu að sætta sig við 3-2 tap í Vesturbænum á sunnudaginn þrátt fyrir hetjulega baráttu. Þeir gáfu KR-ingum ekkert eftir og hefðu hæglega getað fengið eitthvað út úr leiknum. Með sigrinum tryggðu KR-ingar sér Íslandsmeistaratitilinn.
athugasemdir: 0
lesa áframValur Fannar ekki að hætta
26-09-2011
Auðvitað er leiðinlegt að gefa víti, fá rautt og tapa. Maður getur ekki hætt svoleiðis, maður verður að hætta á betri nótum en það sagði Valur Fannar Gíslason. ,,Ég stefni að því að taka 1-2 tímabil í viðbót. Skrokkurinn er fínn og ég hef gaman að þessu en þetta er aðallega spurning um tíma."
athugasemdir: 0
lesa áframViðtal við Óla Þórðar eftir leik
25-09-2011
Upphitun: Ná Fylkismenn að skemma sigurgleði KR-inga?
25-09-2011
Næsti leikur okkar manna er á KR-vellinum. KR-ingar geta tryggt sér titilinn með sigri að því gefnu að FH vinni ÍBV í Krikanum. Okkar markmið er að koma í veg fyrir að það gerist með öllum tiltækum ráðum.
athugasemdir: 1
lesa áframUmfjöllun: Enn eitt tapið á heimavelli
25-09-2011
Fylkismenn töpuðu enn einum heimaleiknum síðastliðinn mánudag þegar þeir þurftu að lúta í lægra haldi fyrir Stjörnumönnum. Stjörnumenn skoruðu þrjú mörk á um tíu mínútna kafla og kláruðu leikinn. Fylkismenn náðu reyndar að klóra í bakkann með tveimur mörkum en þau komu allt of seint.
athugasemdir: 0
lesa áframTippari vikunnar - Frosti Guðlaugsson
23-09-2011
Tippari vikunnar er nýr liður hjá okkur á fylkismenn.is. Hann gengur út á að við fáum einn speking fyrir hverja umferð til að spá og spekúlera í leiki umferðarinnar. Við hvetjum notendur síðunnar að koma með sína spá í kommentakerfið og einnig er hægt að gera það gegnum facebook.
athugasemdir: 4
lesa áframViðtöl eftir leik Fylkis og Stjörnunnar
22-09-2011
Hér koma viðtöl sem tekin voru eftir leik Fylkis og Stjörnunnar. Rætt var við Ólaf Þórðarson og Gylfa Einarsson.
athugasemdir: 0
lesa áframGylfi Einarsson leggur skóna á hilluna
19-09-2011
Gylfi Einarsson fyrirliði Fylkismanna hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Gylfi lék kveðjuleik sinn í kvöld þegar Fylkir tapaði fyrir Stjörnunni 2-3 á Fylkisvelli.
athugasemdir: 1
lesa áframLeik Fylkis og Stjörnunnar frestað - Fer fram kl 17 á morgun (mánudag)
18-09-2011
Leik Fylkis og Stjörnunnar hefur verið frestað vegna veðurs. Leikurinn mun því fara fram á morgun mánudaginn 19. september kl 17:00
athugasemdir: 0
lesa áframTippari vikunnar - Gunnar Steinn Þórsson
17-09-2011
Tippari vikunnar er nýr liður hjá okkur á fylkismenn.is. Hann gengur út á að við fáum einn speking fyrir hverja umferð til að spá og spekúlera í leiki umferðarinnar. Við hvetjum notendur síðunnar að koma með sína spá í kommentakerfið og einnig er hægt að gera það gegnum facebook.
athugasemdir: 5
lesa áframHjörtur yngsti markaskorari Fylkis
17-09-2011
Hjörtur Hermannsson skráði sig í sögubækurnar hjá Fylki á dögunum þegar hann varð yngsti markaskorari Fylkis frá upphafi í efstu deild þegar hann skoraði jöfnunarmarkið gegn Víkingum 11. september síðastliðinn. Hjörtur var 16 ára og 215 daga gamall. Fyrra metið átti Finnur Kolbeinsson en hann var 17 ára og 161 dags gamall þegar hann skoraði gegn Val 28. ágúst 1989
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Stjörnumenn koma í heimsókn - Hörkuleikir í enska boltanum á Blásteini fyrir leik
16-09-2011
Nú er leikið með stuttu millibili í Pepsi deildinni og á sunnudaginn koma Stjörnumenn í heimsókn í Árbæinn. Okkur hefur gengið vel með Stjörnuna á heimavelli en höfum hins vegar átt í basli með þá á „teppinu”.
athugasemdir: 1
lesa áframFylkir tapaði fyrir Þór
15-09-2011
Fylkismenn töpuðu 2-0 fyrir Þórsurum á Akureyri í kvöld. David Disztil og Sveinn Elías Jónsson skoruðu mörk Þórsara. Fylkismenn eru þar með nokkurnveginn fastir í 6.sætinu með 25 stig og sigla hinn fræga lygna sjó.
athugasemdir: 0
lesa áframTippari vikunnar - Ólafur Gunnar Pétursson
15-09-2011
Tippari vikunnar er nýr liður hjá okkur á fylkismenn.is. Hann gengur út á að við fáum einn speking fyrir hverja umferð til að spá og spekúlera í leiki umferðarinnar. Við hvetjum notendur síðunnar að koma með sína spá í kommentakerfið og einnig er hægt að gera það gegnum facebook.
athugasemdir: 3
lesa áframUpphitun: Fylkismenn halda norður
14-09-2011
Enn heldur pepsi deildin áfram og að þessu sinni mætast Þór og Fylkir á Þórsvelli. Tímasetningin er ekki sú hentugasta fyrir vinnandi fólk en leikurinn hefst kl 17:15.
athugasemdir: 3
lesa áframUmfjöllun: Loksins heimasigur
14-09-2011
Fylkismenn unnu góðan 2-1 sigur á Víkingum síðastliðinn sunnudag. Leikurinn var hundleiðinlegur framan af og batnaði ekki þegar Víkingar komust yfir á 82 mínútu. Þá fóru Fylkismenn loks í gang og svöruðu með tveimur mörkum í blálokin og náðu í þrjú mikilvæg stig.
athugasemdir: 0
lesa áframFjalar: Ásgeir Örn var hetjan
13-09-2011
Hér koma viðtöl sem tekin voru eftir leik Fylkis og Víkings. Rætt var við Ólaf Þórðarson og Fjalar Þorgeirsson og svo kíktum við á fögnuð drengjanna inn í klefa að leik loknum
athugasemdir: 1
lesa áframTippari vikunnar : Leifur Árnason
11-09-2011
Tippari vikunnar er nýr liður hjá okkur á fylkismenn.is. Hann gengur út á að við fáum einn speking fyrir hverja umferð til að spá og spekúlera í leiki umferðarinnar. Við hvetjum notendur síðunnar að koma með sína spá í kommentakerfið og einnig er hægt að gera það gegnum facebook.
athugasemdir: 1
lesa áframUpphitun: Krafa um heimasigur gegn Víkingi
10-09-2011
Þá er komið að því að boltinn rúlli aftur í pepsi deildinni. Við fáum botnlið Víkinga í heimsókn á Fylkisvöllin og að sjálfsögðu er krafan þrjú stig enda hafa Víkingar ekki riðið feitum hesti í Pepsi deildinni í allt sumar.
athugasemdir: 0
lesa áframFréttir af Golfmótinu 10. spetember - Rútuferð í boði fyrir þátttakendur, örfá sæti laus
08-09-2011
Fylkismenn.is standa fyrir sínu fyrsta árlega golfmóti laugardaginn 10. september næstkomandi. Spilaðar verða 9 holur með texas scramble fyrirkomulagi, svo allir eiga að geta verið með. Tveir saman í liði. Mótið hefst kl 15 á Þorláksvelli í Þorlákshöfn. Rútuferðir í boði fyrir þátttakendur. Mæting kl 13:30 á Blástein og rútan fer ekki seinna en 14:00.
athugasemdir: 0
lesa áframViðtöl eftir leik
01-09-2011
Hér koma viðtöl sem tekin voru eftir leik Fylkis og Keflavíkur í Reykjanesbæ. Rætt var við Óla þjálfara, Alla og hinn unga og stórefnilega Hjört Hermannsson
athugasemdir: 0
lesa áframFylkismenn.is Golfmótið 10. september
31-08-2011
Fylkismenn.is standa fyrir sínu fyrsta árlega golfmóti laugardaginn 10. september næstkomandi. Spilaðar verða 9 holur með texas scramble fyrirkomulagi, svo allir eiga að geta verið með. Tveir saman í liði og menn velja sig saman í lið. Mótið hefst kl 15 á Þorláksvelli í Þorlákshöfn og verða mögulegar sætaferðir í boði fyrir þá sem ekki geta komið sér á staðinn. Þáttökugjald er aðeins 3000 kr á mann.
athugasemdir: 1
lesa áframIngimundur á lán til Sandness Ulf
31-08-2011
Ingimundur Níels Óskarsson, leikmaður meistaraflokks Fylkis, hefur verið lánaður til norska fyrstu deildar félagsins Sandnes Ulf og gildir samningurinn til næstu áramóta.
athugasemdir: 4
lesa áframUmfjöllun: 21 árs bið á enda
30-08-2011
Fylkismenn unnu sögulegan sigur á Keflvíkingum þegar þeir höfðu betur 1-2 á Nettóvellinum. Albert Brynjar Ingason og Ingimundur Níels Óskarsson sáu um markaskorun fyrir Fylki en Guðmundur Steinarsson skoraði mark Keflvíkinga.
athugasemdir: 5
lesa áframRútur til keflavíkur - Blásteinn opnar kl.16:00
29-08-2011
Blásteinn ætlar að bjóða öllum Fylkismönnum upp á rútuferð til Keflavíkur á eftir. Blásteinn opnar kl. 16:00 í dag og rútan fer þaðan kl. 17:15. Við hvetjum alla Fylkismenn til að nýta sér rútuferðina og spara sér nokkra dropa af bensíni í leiðinni.
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Fylkismenn halda til Keflavíkur
29-08-2011
Næsti leikur hjá okkur Fylkismönnum er í Keflavík á Nettóvellinum. Báðum liðum hefur gengið afspyrnu illa upp á síðkastið og því ljóst að bæði lið munu berjast til síðasta blóðdropa fyrir stigunum þremur.
athugasemdir: 1
lesa áframTippari vikunnar : Jón Ellert Tryggvason
26-08-2011
Tippari vikunnar er nýr liður hjá okkur á fylkismenn.is. Hann gengur út á að við fáum einn speking fyrir hverja umferð til að spá og spekúlera í leiki umferðarinnar. Við hvetjum notendur síðunnar að koma með sína spá í kommentakerfið og einnig er hægt að gera það gegnum facebook.
athugasemdir: 3
lesa áframUmfjöllun: Sama sagan enn á ný
24-08-2011
Fylkismenn voru klaufar að tapa fyrir Blikum 1-2 á Fylkisvelli á mánudagskvöld. Fylkir komst yfir eftir aðeins 52 sekúndur en tókst ekki að láta kné fylgja kviði og Blikar náðu að jafna í síðari hálfleik og tóku síðan öll stigin þrjú með marki í blálokin.
athugasemdir: 2
lesa áframUpphitun: Kópavogspiltar mæta í Árbæinn - ókeypis hamborgarar á Blásteini fyrir leik!
21-08-2011
Þá er komið að næsta heimaleik Fylkis og að þessu sinni eru það Blikar sem koma í heimsókn. Báðum liðum hefur gengið frekar illa að undanförnu og því alveg á hreinu að það verður hart barist fyrir þeim þremur stigum sem í boði eru.
athugasemdir: 1
lesa áframTippari vikunnar : Gunnar Egill Daníelsson
21-08-2011
Tippari vikunnar er nýr liður hjá okkur á fylkismenn.is. Hann gengur út á að við fáum einn speking fyrir hverja umferð til að spá og spekúlera í leiki umferðarinnar. Við hvetjum notendur síðunnar að koma með sína spá í kommentakerfið og einnig er hægt að gera það gegnum facebook.
athugasemdir: 4
lesa áframSumarhátíð Blásteins og nágranna
20-08-2011
Næsta sunnudag þann 21. ágúst býður Blásteinn í samvinnu við Vífilfell, nágrönnum sínum til lítillar hverfishátíðar á túninu við Hraunbæ 102. Hátíðin hefst kl. 14 og stendur fram eftir degi.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Enn og aftur búið í hálfleik
19-08-2011
Fylkismenn töpuðu 3-1 fyrir Valsmönnum á Vodafone vellinum sl. mánudag. Enn var staðan okkur einkar óhagstæð þegar flautað var til leikhlés en Valsmenn höfðu 3-0 yfir í hálfleik og gátu tekið lífinu með ró í seinni hálfleik. Valur Fannar Gíslason náði að klóra í bakkann fyrir Fylkismenn áður en yfir lauk og loka niðurstaðan 3-1.
athugasemdir: 0
lesa áframViðtöl eftir leik
16-08-2011
Upphitun: Útileikur gegn Valsmönnum
15-08-2011
Næsti leikur okkar manna er gegn Valsmönnum á útivelli. Valsmenn eru sem stendur í fjórða sætinu en okkar piltar tveimur sætum neðar með sex stigum minna. Það yrði því óneitanlega ekki leiðinlegt að ná sigri, þó að jafntefli væri í raun ekki slæm úrslit heldur miðað við gengi okkar að undanförnu.
athugasemdir: 0
lesa áframTippari vikunnar - Guðni Páll Viktorsson
13-08-2011
Tippari vikunnar er nýr liður hjá okkur á fylkismenn.is. Hann gengur út á að við fáum einn speking fyrir hverja umferð til að spá og spekúlera í leiki umferðarinnar. Við hvetjum notendur síðunnar að koma með sína spá í kommentakerfið og einnig er hægt að gera það gegnum facebook.
athugasemdir: 5
lesa áframTommi framlengir til 2014
10-08-2011
Tómas Joð Þorsteinsson leikmaður Fylkis skrifaði á dögunum undir nýjan þriggja ára samning. Hann verður í herbúðum félagsins næstu þrjú árin. Þetta er mikið fagnaðarefni þar sem Tommi er einn af lykilmönnum liðsins.
athugasemdir: 2
lesa áframUmfjöllun: Lítilfjörlegt í Laugardalnum
08-08-2011
Fram og Fylkir skildu 0-0 í lítilfjörlegum leik í Laugardalnum. Fylkismenn fengu gullið tækifæri til að klára leikinn undir lokin en það fór forgörðum og niðurstaðan því markalaust jafntefli.
athugasemdir: 0
lesa áframViðtal eftir leik
08-08-2011
Upphitun: Fylkismenn mæta botnliðinu
06-08-2011
Fylkismenn eiga mikilvægan leik fyrir höndum á morgun þegar þeir mæta Frömurum á Laugardalsvelli. Bæði lið þurfa nauðsynlega á þremur stigum að halda og því má búast við miklum baráttuleik.
athugasemdir: 0
lesa áframTippari vikunnar: Skúli Þór Sveinsson
06-08-2011
Tippari vikunnar er nýr liður hjá okkur á fylkismenn.is. Hann gengur út á að við fáum einn speking fyrir hverja umferð til að spá og spekúlera í leiki umferðarinnar. Við hvetjum notendur síðunnar að koma með sína spá í kommentakerfið og einnig er hægt að gera það gegnum facebook.
athugasemdir: 6
lesa áframUmfjöllun: Eyjamenn í þægilegri lautarferð
04-08-2011
Eyjamenn þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að hirða þrjú stig á Fylkisvelli. Þeir komust yfir snemma og bættu síðan við mörkum. Staðan var 0-3 í hálfleik og Fylkismenn áttu enga von eftir það. Fylkismenn náðu reyndar að klóra í bakkann rétt fyrir leikslok og lokatölur urðu 1-3.
athugasemdir: 0
lesa áframÓli: Algjört metnaðarleysi
04-08-2011
Ólafur Þórðarson var ómyrkur í máli í viðtali við okkur eftir leik og ljóst að hann er allt annað en ánægður með gang mála hjá liðinu
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Eyjamenn mæta á Fylkisvöll
03-08-2011
Fylkismenn taka á móti sprækum Eyjapeyjum í 13. umferð Pepsi deildarinnar á Fylkisvelli. Leikurinn hefst kl 19:15 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
athugasemdir: 0
lesa áframAddi til Haugasund - Fylkir búið að samþykkja tilboðið!
29-07-2011
Andrés Már Jóhannesson er að fara til Haugasund í Noregi. Fylkir samþykkti nú í morgun tilboð Haugasund en þetta staðfesti Addi. Addi fór út í byrjun þessarar viku spilaði æfingaleik og skoðaði aðstæður. Þar spilaði hann hægri bakvörð og leist þeim strax vel á hann. Í gær hófust svo viðræður milli félaganna og Fylkir samþykkti svo í morgun tilboð Normannanna.
athugasemdir: 4
lesa áframAddi spilaði æfingaleik í Noregi
26-07-2011
Andrés Már Jóhannesson fór eins og allir vita út til Noregs í gær, þar sem hann verður að skoða aðstæður hjá Haugasund út vikuna. Addi spilaði í dag æfingaleik með liðinu gegn Sandnes sem er í fyrstu deildinni í Noregi. Haugasund unnu leikinn 2-1 og spilaði Addi fyrri hálfleikinn sem hægri bakvörður.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Frábær seinni hálfleikur lykilinn að góðum sigri
26-07-2011
Fylkismenn sóttu gríðarlega mikilvæg þrjú stig til Grindavíkur á sunnudagskvöldið þegar þeir unnu stórsigur 1-4. Grindvíkingar höfðu 1-0 yfir í hálfleik en okkar drengir settu í fluggírinn í seinni hálfleik og keyrðu yfir andstæðinga sína. Þetta var fyrsti sigur okkar eftir hlé og við erum nú með 18 stig í sjötta sæti með jafnmörg stig og Stjarnan sem er sæti ofar.
athugasemdir: 0
lesa áframAlli skoraði mark nr. 300 á þessari öld
26-07-2011
Albert Brynjar Ingason framherji Fylkis fékk blómvönd fyrir æfingu í kvöld (mánudagskvöld) en hann náði þeim merka áfanga að skora mark nr. 300 sem Fylkir hefur skorað í efstu deild á þessari öld (talið frá og með árinu 2001, ekki 2000). Markið var skorað í leik FH og Fylkis nú fyrir stuttu í 2-2 jafntefli en Alli skoraði fyrra mark Fylkismanna í leiknum.
athugasemdir: 0
lesa áframGaupahornið með Óla Þórðar og í stúkunni
26-07-2011
Ég vil hvetja þá sem hafa misst af Gaupahorninu að tjekka á því hér en þar fer Óli Þórðar á kostum þegar Gaupi hittir hann í vinnunni. Einnig er fótbolti.net með skemmtilegan lið sem heitir "í stúkunni" og þeir voru mættir með kameruna í Grindavík í gær. Hægt er að sjá það hér
athugasemdir: 0
lesa áframTommi: Megum ekki líta á þetta sem frí
25-07-2011
Hér koma stórskemmtileg viðtöl sem við tókum eftir leik í gær. Rætt er við Óla Þórðar, Tomma Joð og svo komu þeir félagar Alli og Addi saman í létt viðtal í lokin.
athugasemdir: 0
lesa áframAndrés á reynslu til Haugasund
25-07-2011
Andrés Már Jóhannesson er á leið til Haugasund á reynslu og jafnvel til Odd Grenland síðar í næstu viku en þetta staðfesti Andrés í viðtali við Fylkismenn.is eftir leikinn í kvöld. Andrés fer út á morgun (mánudag) og kemur heim næsta laugardag. Hann mun skoða aðstæður hjá Haugasund og æfa með liðinu í vikunni og síðan er möguleiki á því að Odd Grenland hafi einnig áhuga á að skoða hann, það er þó ekki staðfest!
athugasemdir: 0
lesa áframStórsigur í Grindavík
25-07-2011
Fylkismenn styrktu stöðu sína verulega í Pepsi deildinni með gríðarlega mikilvægum 1-4 útisigri á Grindavík í kvöld. Ingimundur Níels Óskarsson, skoraði tvö og þeir Andri Þór Jónsson og Tómas Joð Þorsteinsson sitt markið hvort.
athugasemdir: 1
lesa áframTippari vikunnar: Þorbjörn Garðarsson
23-07-2011
Tippari vikunnar er nýr liður hjá okkur á fylkismenn.is. Hann gengur út á að við fáum einn speking fyrir hverja umferð til að spá og spekúlera í leiki umferðarinnar. Við hvetjum notendur síðunnar að koma með sína spá í kommentakerfið og einnig er hægt að gera það gegnum facebook.
athugasemdir: 3
lesa áframUpphitun: Fylkismenn ætla sér þrjú stig í Grindavík
23-07-2011
Fylkismenn halda til Grindavíkur á morgun til að freista þess að ná í dýrmæt þrjú stig. Nú er kominn tími á að vinna leik og henda okkur ofar í töfluna. Grindavíkurvöllur hefur nýst okkur vel því við höfum borið sigur úr býtum þar síðustu þrjú ár.
athugasemdir: 0
lesa áframDaníel Freyr Guðmundsson lánaður í Fjarðabyggð - Ásgeir Örn snýr til baka
22-07-2011
Daníel Freyr Guðmundsson hefur verið lánaður í Fjarðarbyggð. Lið Fjarðabyggðar leikur í 2. deild og er þar í 6. sæti sem stendur. Þetta er þriðja árið í röð sem Daníel er lánaður austur. Þá hefur Ásgeir Örn Arnþórsson snúið til baka úr lánsdvöl hjá Aftureldingu sem er í 5.sæti í 2. deild. Ásgeir hefur leikið alla 12 leiki liðsins í sumar.
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Undanúrslitaleikur við KR á föstudaginn - Grill við Fylkishöll kl 18
20-07-2011
Fylkisstelpur mæta KR í undanúrslitum Valitor bikarsins á Fylkisvelli á föstudaginn. Með sigri komast stelpurnar í bikarúrslitaleikinn 20. ágúst sem yrði frábær áfangi fyrir félagið. Fylkisstúlkur hafa einu sinni áður komist í undanúrslit bikarsins árið 2009 þegar þær töpuðu fyrir Breiðablik eftir framlengingu. Við hvetjum alla til að mæta og styðja stelpurnar til sigurs í þessum mikilvæga leik.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Jafntefli í kaflaskiptum leik
18-07-2011
Fylkismenn sýndu gríðarlegan karakter þegar þeir náðu að jafna leikinn gegn FH eftir að hafa lent tveimur mörkum undir snemma leiks. Okkar menn fengu síðan færi til að ná í öll stigin en því miður tókst það ekki.
athugasemdir: 1
lesa áframGylfi Einarsson endaði á slysó: Þetta var nasty
18-07-2011
,,Þetta var svolítið nasty," sagði Gylfi Einarsson leikmaður Fylkis í samtali við Fótbolta.net vegna meiðsla sem hann varð fyrir á ökkla sínum gegn FH í gær.
athugasemdir: 0
lesa áframFH - Fylkir: Viðtöl fyrir og eftir leik.
18-07-2011
Vilhjálmur Darri æfir með Fylki
17-07-2011
Vilhjálmur Darri Einarsson æfir með Fylki þessa daganna. Vilhjálmur er miðjumaður og er fæddur árið 1991 og er uppalinn í KR. Hann hefur spilað 7 landsleiki fyrir u17 og u19ára landslið Íslands.
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: FH næsti andstæðingur - Upphitun á Blásteini hefst 17:00
16-07-2011
Fylkismenn eiga gríðarlega erfitt verkefni fyrir höndum á morgun þegar þeir mæta FH-ingum í Kaplakrika. Það er kominn tími til að okkar menn rífi sig upp úr þeirri ládeyðu sem hefur einkennt þá að undanförnu og berjist af fullum krafti.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir - KR: Viðtöl fyrir og eftir leik
14-07-2011
Umfjöllun: Fylkismenn heillum horfnir
13-07-2011
Fylkismenn áttu lítinn möguleika gegn KR-ingum sem kláruðu leikinn á fyrsta hálftímanum með því að skora þrjú mörk. KR-ingar hefðu getað bætt við mörkum en Fylkismenn fengu hinsvegar fá færi. Ef spilamennskan verður áfram með þessum hætti er ljóst að okkar menn eiga erfiða tíma framundan.
athugasemdir: 0
lesa áframRisaupphitunarpakki: KR-ingar mæta í Árbæinn
08-07-2011
Næsti leikur Fylkismanna er heimaleikur gegn toppliði KR. Leikurinn er tilvalið tækifæri fyrir okkar menn að rífa sig upp eftir dapran leik gegn Stjörnunni.
athugasemdir: 1
lesa áframUmfjöllun:Fylkismenn rassskelltir
07-07-2011
Fylkismenn spiluðu líklega sinn versta leik á tímabilinu þegar þeir lágu 4-1 fyrir Stjörnunni í Garðabænum í gær. Fylkismenn náðu forystunni í leiknum en Stjörnumenn voru samt sem áður sterkari allan tímann og unnu verðskuldaðan sigur.
athugasemdir: 0
lesa áframStjarnan - Fylkir. Viðtöl eftir leik
07-07-2011
Hér koma viðtöl eftir leik Stjörnunar og Fylkis, við ræddum nánar við þá Ólaf Þórðarson og Gylfa Einarsson
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Fylkismenn mæta á gervigrasið í Garðabæ - Grill á Blásteini kl 17
06-07-2011
Næsti leikur Fylkismanna er á „teppinu” í Garðabæ þegar við heimsækjum Stjörnuna. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið og því ljóst að hart verður tekist á í kvöld.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir mætir KR í Valitor bikar kvenna
05-07-2011
Fylkisstúlkur voru nokkuð heppnar þegar dregið var í undanúrslit Valitor bikarsins. Þær fá heimaleik og mæta þar KR-ingum. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast svo Afturelding og Stjarnan.
athugasemdir: 1
lesa áframBikarleikur gegn FH í kvöld á Fylkisvelli kl 18
01-07-2011
Fylkir mætir FH í 8 liða úrslitum Valitor bikar kvenna á Fylkisvelli í kvöld kl 18. Fylkisstúlkur hafa verið á ágætis siglingu að undanförnu og hafa sigrað í síðustu þremur leikjum sínum. Fyrst unnu þær frækinn 0-1 útisigur á Þór/KA á Akureyri í 16-liða úrslitum bikarsins og hafa fylgt þeim sigri eftir með góðum sigrum á Þrótti og KR.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir - Þór Ak. Viðtöl í hálfleik og eftir leik
28-06-2011
Við spjölluðum aðeins við Sigrúnu á grillinu í hálfleik og ræddum síðan við Óla þjálfara eftir leik.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Tvö dýrmæt stig í súginn
27-06-2011
Fylkismenn voru klaufar að leggja ekki Þór á Fylkisvelli í gær. Þórsarar náðu forystunni en Fylkismenn voru snöggir að jafna metin. Okkar menn fóru svo gríðarlega illa með mörg góð tækifæri og leikurinn endaði 1-1.
athugasemdir: 1
lesa áframFylkir samþykkir tilboð frá Kaiserslautern í Ragnar Braga
27-06-2011
Fylkir hefur samþykkt tilboð frá Kaiserslautern í Ragnar Braga Sveinsson en þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður leikmannsins í samtali við Fótbolta.net í dag.
athugasemdir: 1
lesa áframHeimaleikur gegn Þór í dag kl 17
26-06-2011
Vegna anna starfsmanna síðunnar verður engin upphitun fyrir leik dagsins. Stuðningsmenn Fylkis ætla að hittast á Blásteini kl 15 og hita upp fyrir leikinn. Þar fá líklega nokkrar pylsur að fljúga á grillið. Leikurinn gegn Þór hefst svo kl 17 á Fylkisvelli. Umfjöllun og viðtöl koma svo inn eftir leik að venju, fylgist vel með því!
athugasemdir: 0
lesa áframMenn segja: Ef þú mættir velja einn leikmann úr Pepsi deildinni til að koma í Fylki hver yrði það?
21-06-2011
Menn segja er skemmtilegur liður hér á fylkismenn.is þar sem glerharðir stuðningsmenn Fylkis sem eru auðvitað allir miklir sparkspekingar svara nokkrum skemmtilegum spurningum. Að þessu sinni er spurt ef þú mættir velja einn leikmann úr Pepsi deildinni til að koma í Fylki hver yrði það?
athugasemdir: 0
lesa áframMenn segja: Hverjir verða íslandsmeistarar?
12-06-2011
Menn segja er skemmtilegur liður hér á fylkismenn.is þar sem glerharðir stuðningsmenn Fylkis sem eru auðvitað allir miklir sparkspekingar svara nokkrum skemmtilegum spurningum. Að þessu sinni er spurt hverjir verða íslandsmeistarar
athugasemdir: 1
lesa áframUmfjöllun: Fylkismenn áfram með hreðjatak á Víkingum
07-06-2011
Fylkismenn unnu geysilega mikilvægan 1-3 sigur á Víkingum á Víkingsvelli í gærkveldi. Ingimundur, Baldur Bett og Alli sáu um markaskorun en Pétur Georg Markan skoraði fyrir heimamenn. Fylkismenn geta því farið kátir inn í fríið með 13 stig í farteskinu.
athugasemdir: 0
lesa áframMyndir úr leiknum
07-06-2011
Hér sjáum við þær fjölmörgu myndir sem stórljósmyndarinn Einar Ásgeirsson tók í Víkinni í gær.
athugasemdir: 0
lesa áframAddi: Bara æfing á morgun og hinn og hinn og hinn...
07-06-2011
Við spjölluðum við hressa og káta Fylkismenn eftir leik. Járnmaðurinn Ásgeir Börkur kíkti í spjall og síðan ræddum við ítarlega við annan járnmann, Óla Þórðar. Að lokum heyrðum við í vonarstjörnu okkar Fylkismanna Adda sem er á leiðinni með U-21 árs landsliðinu til Danmerkur.
athugasemdir: 0
lesa áframSigur á Víking
06-06-2011
Flottur 3-1 sigur hjá strákunum okkar í Víkinni í kvöld. Flott spilamennska og sannfærandi sigur
athugasemdir: 1
lesa áframUpphitun: Síðasti leikur fyrir frí - Grill og ganga frá Blásteini
05-06-2011
Sælir lesendur. Næsti leikur okkar Fylkismanna er útileikur gegn nágrönnum okkar í Víkingi R. Leikið er í 7.umferð Pepsi-deildar 2011 og er þetta síðasta umferð fyrir tveggja vikna frí.Víkingar hafa ekki riðið feitum hesti í viðureignum gegn Fylki síðastliðin 20 ár og má því segja að við höfum gott tak á Víkingum og vonum við að það haldi áfram.
athugasemdir: 0
lesa áframMenn segja: Hver er besti leikmaður Fylkis frá upphafi?
03-06-2011
Menn segja er skemmtilegur liður hér á fylkismenn.is þar sem glerharðir stuðningsmenn Fylkis sem eru auðvitað allir miklir sparkspekingar svara nokkrum skemmtilegum spurningum. Að þessu sinni er spurt hver sé besti leikmaður Fylkis frá upphafi.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Ingimundur hetjan í blálokin
31-05-2011
Ingimundur Níels Óskarsson mun eflaust stela flestum fyrirsögnunum eftir leik Fylkis og Keflavíkur enda skoraði hann bæði mörk Fylkis í sigrinum gegn Keflavík. Keflvíkingar komust yfir en Fylkismenn náðu að jafna fyrir hálfleik. Þegar allt virtist stefna í jafntefli kom sigurmarkið á 90 mínútu og gríðarlega sætur sigur þar með í höfn.
athugasemdir: 1
lesa áframIngimundur: Ógeðslega sætt
31-05-2011
Við spjölluðum við sigurreifa Fylkismenn eftir leik. Addi, Ingimundur og Óli Þórðar kíktu í spjall til okkar og síðan sjáum við gríðarlegan fögnuð okkar manna í klefanum eftir leik.
athugasemdir: 0
lesa áframSigur á Keflavík
31-05-2011
Fylkismenn náðu frábærum 2-1 sigri gegn Keflavík. Ingimundur Níels Óskarsson skoraði bæði mörk Fylkis eftir að Jóhann B. Guðmundsson hafi náð forystunni fyrir Keflvíkinga.
athugasemdir: 5
lesa áframUpphitun: Keflvíkingar koma í heimsókn - Club Orange fyrir leik
30-05-2011
Sælir lesendur. Næsti leikur okkar Fylkismanna er gegn Keflavík í 6.umferð Pepsi-deildarinnar 2011. Bæði lið sigla lygnan sjó um miðja deild og munar aðeins einu stigi á milli liðanna. Leikir þessara liða hafa í gegnum tíðina verið miklir markaleikir og það verður eflaust engin breyting á því í þessum leik.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir 44 ára
29-05-2011
Í tilefni af 44 ára afmæli Fylkis síðastliðinn laugardag viljum við sýna stuðning okkar með því að allir stuðningsmenn Fylkis standi upp og klappi fyrir liðinu á 44 mínútu og klappi samfleytt í eina mínútu í leiknum gegn Keflavík næsta mánudag.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Föstu leikatriðin felldu Fylkismenn
27-05-2011
Fylkismenn voru klaufar að tapa gegn FH í framlengdum leik í gær. Föstu leikatriðin reyndust okkur dýrkeypt en Fylkismenn voru alls ekki slakara liðið í leiknum. Fylkismenn komust tvisvar sinnum yfir í leiknum en það dugði ekki til og bikardraumarnir eru því horfnir þetta árið.
athugasemdir: 0
lesa áframAlli: Ég er alvöru karlmaður
27-05-2011
Við ræddum við Óla Þórðar og Albert Brynjar eftir tapleikinn gegn FH í gærkvöldi.
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Fylkismenn mæta brjálaðir í Krikann
25-05-2011
Fylkismenn fá verðugt verkefni á fimmtudagskvöldið þegar þeir spila fyrsta leik sinn í Valitor bikarnum. Við drógumst gegn bikarmeisturum FH á útivelli í 32 liða úrslitum og því ljóst að okkar menn þurfa toppleik til að komast áfram í 16 liða úrslit.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir áfrýjar brottvísun Fjalars
24-05-2011
Knattspyrnudeild Fylkis hefur sent inn til Aganefndar KSÍ athugasemdir varðandi brottvísun Fjalars Þorgeirssonar í leiknum gegn Breiðablik á sunnudag.
athugasemdir: 0
lesa áframAlli ekki með gegn FH
24-05-2011
Albert Brynjar Ingason, framherji Fylkis, verður ekki með liðinu þegar það mætir FH í Valitor-bikarkeppni KSÍ á fimmtudaginn en hann fór meiddur af velli gegn Breiðablik á sunnudaginn. Hann segir þó að aðeins sé um bólgur í ökklanum að ræða.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Dapurt tap í Kópavogi
23-05-2011
Fylkismenn þurftu að sætta sig við 3-1 tap á Kópavogsvelli í gær gegn Breiðabliki. Það sem var enn verra var að okkar menn luku leiknum níu eftir að Valur Fannar Gíslason og Fjalar Þorgeirsson markvörður fengu báðir vafasöm rauð spjöld.
athugasemdir: 0
lesa áframÓli: Ákvörðun dómarans óskiljanleg
23-05-2011
Upphitun: Fylkismenn fara í Kópavoginn - Grill á Blásteini kl 17
22-05-2011
Komiði öll sæl og blessuð. Á sunnnudaginn 22 maí, skreppa Fylkismenn í heimsókn á Kópavogsvöll þar sem við mætum Breiðablik. Þetta er 5.umferð Pepsi-deildarinnar. Fylkir átti góðan leik í síðustu umferð gegn Val og sigruðu sanngjarnt 2-1. Blikar sóttu aftur á móti gott stig til Vestmannaeyja í 1-1 jafntefli gegn ÍBV.
athugasemdir: 0
lesa áframBreiðablik - Fylkir færður til sunnudags
19-05-2011
Leik Fylkis og Breiðabliks hefur verið flýtt til sunnudagsins 22. maí. Upphaflega átti leikurinn að fara fram degi síðar en því hefur nú verið breytt. Fylkismenn sækja því Íslandsmeistarana heim á Kópavogsvöll á sunnudag kl. 19:15.
athugasemdir: 3
lesa áframManstu eftir honum? - Errol McFarlane
19-05-2011
Hver man ekki eftir honum Errol, stór og stæðilegur senter sem Bjarni Jó fékk til félagsins á vormánuðum 2001 frá Al-Nejmeh í Líbanon. Errol karlinn átti að vera þvílíkur striker sem raðaði mörkum inn eins og enginn væri morgundagurinn.
athugasemdir: 0
lesa áframMenn segja: Í hvaða sæti lendir Fylkir í sumar?
18-05-2011
Menn segja er nýr liður hér á fylkismenn.is þar sem glerharðir stuðningsmenn Fylkis svara nokkrum skemmtilegum spurningum. Að þessu sinni er spurt í hvaða sæti Fylkir muni enda þegar Pepsi deildinni lýkur 1.október n.k.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Verðskuldaður sigur
16-05-2011
Fylkismenn lönduðu mjög góðum sigri gegn Valsmönnum á Fylkisvelli í gær. Þórir Hannesson og Albert Brynjar Ingason komu Fylki í góða stöðu en Valsmenn náðu að minnka muninn undir lok leiksins en komust ekki lengra og Fylkir sigraði 2-1.
athugasemdir: 0
lesa áframFYLKIR - valur: Viðtöl fyrir og eftir leik
16-05-2011
Sigur gegn Valsmönnum
15-05-2011
Fylkir sigraði Val í kvöld 2-1 á Fylkisvelli og náði þannig í sinn fyrsta heimasigur á tímabilinu. Staðan í leikhléi var 1-0 fyrir heimamenn en mörk Fylkis skoruðu Þórir Hannesson og Albert Brynjar Ingason. Nánari umfjöllun um leikinn er væntanleg.
athugasemdir: 3
lesa áframUpphitun: Afmælisdrengirnir mæta á Fylkisvöll
14-05-2011
Næsti leikur okkar manna er gegn Valsmönnum er þeir mæta í heimsókn í lautina. Valur fagnaði 100 ára afmæli félagsins á miðvikudag síðastliðnum þegar Valur og ÍBV áttust við. Þessari afmælisveislu Valsmanna lauk síðan með 0-1 ósigri. Fylkir gerði hinsvegar markalaust jafntefli við Fram í miklum baráttuleik á Fylkisvelli.
athugasemdir: 1
lesa áframViðtöl eftir leik - Óli: Menn þurfa að fara átta sig á því að þetta er karlmennskuíþrótt
12-05-2011
Ólafur Þórðarson þjálfari, Kristján Valdimarsson varnartröll og stuðpinninn Oddur Ingi Guðmundsson ræddu við okkur að leik loknum í gær.
athugasemdir: 2
lesa áframUmfjöllun: Vonbrigði á heimavelli
12-05-2011
Fylkismenn og Framarar gerðu markalaust jafntefli í lítilfjörlegum leik í Árbænum í kvöld. Fylkismenn hafa nú krækt í fjögur stig í þremur leikjum en aðeins eitt þeirra hefur komið á heimavelli.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir 0-0 Fram
11-05-2011
Fylkir og Fram skildu jöfn í markalausum leik á Fylkisvelli í kvöld. Nánari umfjöllun er væntanleg.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir mætir FH í Valitor-bikarnum
10-05-2011
Rétt í þessu var dregið í 32-liða úrslit Valitor-bikarsins í höfuðstöðvum KSÍ. Fór svo að Fylkir dróst gegn FH og verður leikið í Kaplakrika. Leikurinn fer fram 26. maí kl. 19:15.
athugasemdir: 9
lesa áframUpphitun: Framarar mæta stigalausir á Fylkisvöll
10-05-2011
Heilir og sælir góðir lesendur. Á miðvikudaginn, 11 maí hefst 3.umferð Pepsi-Deildar karla 2011. Næsta fórnarlamb Fylkismanna er Safamýraliðið Fram. Búast má við hörkuleik þar sem bæði lið vilja taka öll stigin.
athugasemdir: 1
lesa áframAlli með bæði í frábærum sigri Fylkismanna í Eyjum
07-05-2011
Fylkismenn voru nú rétt í þessu að landa frábærum útisigri á ÍBV 1-2. Albert Brynjar Ingason var hetja dagsins og skoraði bæði mörkin. Það fyrra á 14 mínútu eftir sendingu frá Gylfa og það síðara eftir góða fyrirgjöf frá Gústa. Í millitíðinni jafnaði Rasmus Christiansen fyrir ÍBV.
athugasemdir: 4
lesa áframUpphitun: Heimaey kallar - Bein textalýsing á mbl.is og fotbolti.net
07-05-2011
Í dag mætast ÍBV og Fylkir á Hásteinsvelli í 2.umferð Pepsi-Deildar karla 2011. Þar förum við Fylkismenn í heimsókn með það í huga að sækja 3 stig.
athugasemdir: 1
lesa áframBjarni Þórður fingurbrotinn - Fjalar í markinu í Eyjum
05-05-2011
Bjarni Þórður Halldórsson er fingurbrotinn og missir í það minnsta af næsta leik Fylkismanna. Þetta er ljóst eftir æfingu Fylkisliðsins nú rétt áðan og þýðir það að Fjalar Þorgeirsson mun standa í marki Fylkismanna í leiknum gegn ÍBV.
athugasemdir: 1
lesa áframTilboð fyrir lesendur fylkismenn.is
05-05-2011
Orange pizza býður öllum lesendum Fylkismenn.is allar 16“ pizzur með 2. áleggjum á 1.000 kr. í maí. Eina sem þarf að segja er að segjast vera félagi í Fylkismenn.is.
athugasemdir: 0
lesa áframVídjóviðtöl eftir leik - Óli Þórðar, Gylfi og Bjarni
03-05-2011
Fylkismenn.is tók nokkra menn tali eftir tapleikinn við Grindavík í kvöld. Við ræddum við Ólaf Þórðarson og nýju drengina Gylfa Einarsson fyrirliða og Bjarna Þórð Halldórsson.
athugasemdir: 1
lesa áframUmfjöllun: Pirrandi tap í fyrsta leik
02-05-2011
Fylkismenn fóru illa að ráði sínu þegar þeir glutruðu niður tveggja marka forskoti gegn Grindvíkingum í Kórnum í kvöld. Grindvíkingar náðu að jafna 2-2 og tryggðu sér svo sigurinn með marki í blálokin. Fylkismenn skoruðu aftur á móti fyrstu tvö mörk Pepsi deildarinnar 2011, það fyrra Gylfi Einarsson og síðan Ingimundur Níels Óskarsson.
athugasemdir: 0
lesa áframTap í fyrsta leik
02-05-2011
Fylkir tapaði í kvöld 2-3 fyrir Grindavík í 1. umferð Pepsi-deildarinnar. Fylkismenn komust í 2-0 eftir um 25 mínútna leik með mörkum frá Gylfa Einarssyni og Ingimundi Níels Óskarssyni. Grindvíkingar svöruðu þó með þremur mörkum í kjölfarið. Næsti leikur Fylkis er gegn ÍBV í Vestmannaeyjum á laugardaginn kemur.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 2011 - Freyr Gústavsson
02-05-2011
Enn styttist í að flautað verði til leik í Pepsi deildinni. Í ljósi þess hafa starfsmenn fylkismenn.is tekið sig til og ætla að spá fyrir um hvernig deildin mun enda í sumar. Freyr Gústavsson er næstur.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 2011 - Arnór Ásgeirsson
01-05-2011
Enn styttist í að flautað verði til leik í Pepsi deildinni. Í ljósi þess hafa starfsmenn fylkismenn.is tekið sig til og ætla að spá fyrir um hvernig deildin mun enda í sumar. Arnór Ásgeirsson er næstur.
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Grindvíkingar andstæðingar í fyrsta leik - Grillveisla og rútuferðir frá Blásteini
01-05-2011
Á mánudag hefst fyrsti leikur Fylkis í Pepsi-deild karla 2011 er Grindavík kemur í „heimsókn”. Upphaflega var gert ráð fyrir að leikurinn færi fram á Fylkisvelli, en vegna slæmra vallarskilyrða á Fylkisvelli var ákveðið að færa leikinn innanhús á gervigras í Kórnum. Er þetta í fyrsta sinn í sögu Íslandsmótsins sem leikur er leikinn innandyra.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 2011 Pepsi deild karla – Valur Ingi Johansen
30-04-2011
Nú er aðeins einn dagur þar til Pepsi deildin hefst. Í ljósi þess hafa starfsmenn fylkismenn.is tekið sig til og ætla að spá fyrir um hvernig deildin mun enda í sumar. Valur Ingi Johansen er næstur.
athugasemdir: 0
lesa áframRitstjórnargrein: Röng ákvörðun
29-04-2011
Nú er orðið ljóst að fyrsti leikur okkar manna í Pepsi deildinni fer ekki fram á okkar heimavelli, Fylkisvelli. Þess í stað munu okkar menn leika gegn Grindvíkingum á hlutlausum velli og verður þetta fyrsti leikurinn sem spilaður er innandyra frá upphafi í efstu deild. Við munum því leika 10 heimaleiki þetta árið en ekki 11 eins og öll hin liðin í deildinni.
athugasemdir: 0
lesa áframFyrsti leikur Íslandsmótsins í Kórnum
29-04-2011
Leikur Fylkis og Grindavíkur hefur verið færður í Kórinn. Var þetta staðfest á vef KSÍ nú fyrir skömmu. Leiktíminn er óbreyttur, 2. maí kl. 19:15. Er þetta gert þar sem Fylkisvöllur er ekki tilbúinn. Mun þetta vera í fyrsta sinn í sögu íslenskrar knattspyrnu sem leikur í efstu deild karla fer fram innandyra. Þetta er þó ekki einsdæmi á norðurlöndum en sem dæmi má nefna að Stabæk í Noregi leikur alla sína heimaleiki innanhúss í Telenor höllinni.
athugasemdir: 2
lesa áframLeikmannakynning á föstudag
28-04-2011
Leikmannakynning knattspyrnudeildar Fylkis fer fram næsta föstudag 29. apríl kl. 19:00 í Fylkishöll. Kynntir verða leikmenn meistaraflokks karla og kvenna sem munu spila fyrir félagið í sumar. Kvöldið hefst reyndar á grillveislu. Kostar 1000 fyrir fullorðna og frítt fyrir börn.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 2011 - Kristján Gylfi
28-04-2011
Enn styttist í að Pepsi deildin hefjist. Í ljósi þess hafa starfsmenn fylkismenn.is tekið sig til og ætla að spá fyrir um hvernig deildin mun enda í sumar. Kristján Gylfi Guðmundsson er næstur.
athugasemdir: 0
lesa áframTap gegn Val
26-04-2011
Fylkismenn töpuðu í gær úrslitaleik Lengjubikarsins gegn Val 3-1 eftir framlengdan leik. Ingimundur Níels Óskarsson skoraði mark Fylkis. Undirbúningi fyrir Pepsi deildina er þar með lokið og nú tekur alvaran við.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir leikur til úrslita
25-04-2011
Fylkismenn leika í kvöld til úrslita í Lengjubikarnum. Andstæðingar Fylkis eru Valsmenn en þeir sigruðu fyrir sömmu Reykjavíkurmótið og lögðu meðal annars Fylki að velli í undanúrslitum eftir vítaspyrnukeppni. Það má því búast við hörku leik í kvöld kl. 19 en leikurinn fer fram í Kórnum. Við hvetjum sem flesta til að mæta og hvetja okkar menn.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 2011 - Sverrir Rafn
24-04-2011
Nú er aðeins um það bil vika þar til Pepsi deildin hefst. Í ljósi þess hafa starfsmenn fylkismenn.is tekið sig til og ætla að spá fyrir um hvernig deildin mun enda í sumar. Sverrir Rafn Sigmundsson ríður á vaðið og síðan munu fleiri birtast síðar.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá Fótbolta.net: 8. sæti
23-04-2011
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Fylkir endi í áttunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 13 sérfræðingar spá í deildina þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Fylkir fékk 70 stig út úr þessu, talsvert meira en liðin fyrir neðan.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkismenn komnir í úrslitaleik Lengjubikarsins
20-04-2011
Fylkismenn tryggðu sér í kvöld sæti í úrsltaleik Lengjubikarsins með 1-0 sigri á KR. Ingimundur Níels Óskarsson skoraði sigurmarkið á 49 mínútu eftir frábæra stoðsendingu frá Bjarna Þórði markmanni. Fylkir mætir því annaðhvort Val eða FH sem mætast í hinum undanúrslitaleiknum á Skírdag. Úrslitaleikurinn verður svo leikinn í Kórnum á annan í páskum.
athugasemdir: 1
lesa áframFylkir - KR í kvöld á Fylkisvelli kl 19
20-04-2011
Við viljum minna á leik Fylkis og KR í kvöld í undanúrslitum Lengjubikarsins. Leikurinn hefst kl 19:00 og verður leikinn á gervigrasinu á Fylkisvelli. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta á þennan spennandi leik. Fyrir þá sem ekki komast þá er leikurinn einnig sýndur á SportTV inná www.sporttv.is.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir í Pepsi-deildinni og sögumolar
17-04-2011
Komandi tímabil verður það tólfta í röðinni sem Fylkir leikur í Úrvalsdeild og hafa Fylkismenn þar með náð þeim árangri að hafa verið lengst allra núverandi liða í deildinni samfellt, að KR undanskildu.
athugasemdir: 1
lesa áframTilboð fyrir lesendur fylkismenn.is
17-04-2011
Blásteinn og Orange Pizza hafa gerst stuðningsaðilar Fylkismanna.is Bjóðum af því tilefni öllum lesendum Fylkismenn.is allar 16“ pizzur með 2. áleggjum á 1.000 kr. í apríl. Eina sem þarf að segja er að segjast vera félagi í Fylkismenn.is
athugasemdir: 4
lesa áframRagnar Bragi á reynslu til Kaiserslautern
16-04-2011
Ragnar Bragi Sveinsson, leikmaður Fylkis, mun næstkomandi mánudag fara til þýska félagsins Kaiserslautern á reynslu. Ragnar Bragi, sem er 16 ára, lék sinn fyrsta leik með Fylki í Pepsi-deildinni í fyrra og varð um leið yngsti leikmaður félagsins frá upphafi.
athugasemdir: 0
lesa áframDagur 5 á Spáni
14-04-2011
Meistaraflokkur karla hélt síðastliðinn laugardag til Spánar í æfingaferð fyrir komandi tímabil. Hópurinn heldur til á stað sem heitir Oliva Nova sem er fyrir norðan Alicante og eru aðstæður þar hinar bestu. Fararstjórarnir munu senda okkur fréttir af því hvernig gengur reglulega og hér er það dagur 5
athugasemdir: 0
lesa áframDagur 4, kaffivélin bjargaði deginum !
14-04-2011
Meistaraflokkur karla hélt síðastliðinn laugardag til Spánar í æfingaferð fyrir komandi tímabil. Hópurinn heldur til á stað sem heitir Oliva Nova sem er fyrir norðan Alicante og eru aðstæður þar hinar bestu. Fararstjórarnir munu senda okkur fréttir af því hvernig gengur reglulega og hér kemur dagur 4
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir mætir KR í undanúrslitum
13-04-2011
Búið er að draga í undanúrslit í deildabikar karla í fótbolta, Lengjubikarnum. Fylkir mætir KR og Valur leikur við FH. Valsmenn og FH-ingar eigast því við tvisvar með stuttu millibili því liðin mætast í fyrstu umferð Íslandsmótsins mánudaginn 2. maí.
athugasemdir: 3
lesa áframDagur 3, liðstjórinn í vandræðum !
12-04-2011
Meistaraflokkur karla hélt síðastliðinn laugardag til Spánar í æfingaferð fyrir komandi tímabil. Hópurinn heldur til á stað sem heitir Oliva Nova sem er fyrir norðan Alicante og eru aðstæður þar hinar bestu. Fararstjórarnir munu senda okkur fréttir af því hvernig gengur reglulega og hér kemur dagur 3
athugasemdir: 0
lesa áframNý skoðanakönnun
12-04-2011
Þá er loksins komin ný skoðanakönnun hér á síðunni. Nú þegar stutt er í mót er um að gera könnun á því í hvaða sæti Fylkir muni lenda í Pepsi deildinni.
athugasemdir: 0
lesa áframFréttir frá Spáni, dagur 1 og 2.
12-04-2011
Meistaraflokkur karla hélt síðastliðinn laugardag til Spánar í æfingaferð fyrir komandi tímabil. Hópurinn heldur til á stað sem heitir Oliva Nova sem er fyrir norðan Alicante og eru aðstæður það hinar bestu. Fararstjórarnir munu senda okkur fréttir af því hvernig gengur reglulega og hér koma fyrstu tveir dagarnir.
athugasemdir: 0
lesa áframLeikmenn og þjálfarar Fylkis 2011 - Myndaveisla
11-04-2011
Hér ætlum við að líta yfir hvernig leikmannahópur og Fylkis 2011 er samsettur og hvernig hann tekur sig út í nýju búningunum frá Hummel. Þá skoðum við einnig þjálfarana í splunkunýjum þjálfarabúningum. Myndirnar tók Einar Ásgeirsson.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkismenn komnir í undanúrslit Lengjubikarsins
09-04-2011
Fylkismenn komust í dag í undanúrslit lengjubikarsins og það án þess að spila sjálfir, en með sigri ÍBV á Fram í dag varð ljóst að Fylkir fer í undanúrslit með bestan árangur í öðru sæti.
athugasemdir: 0
lesa áframFriðrik Ingi Þráinsson á lán til Hattar á Egilsstöðum
08-04-2011
Friðrik Ingi Þráinsson leikmaður Fylkis er farinn á lán til Hattar á Egilsstöðum og mun hann spila með liðinu á komandi sumri. Friðrik Ingi er miðjumaður uppalinn hjá Árbæjarfélaginu og skoraði hann meðal annars mark í sigri liðsins gegn FH í bikarúrslitum hjá öðrum flokki árið 2009.
athugasemdir: 0
lesa áframBaráttusigur gegn Haukum og undanúrslitasæti enn mögulegt
07-04-2011
Fylkismenn sóttu Hauka heim á teppið á Ásvöllum í gærkvöldi. Fyrir leikinn var Fylkir með 13 stig eftir 6 umferðir og þurfti lífsnauðsynlega á sigri að halda, til að halda möguleikanum um undanúrslita sæti á lofti
athugasemdir: 2
lesa áframBónus og BYR styrktaraðilar knattspyrnudeildar Fylkis
07-04-2011
Knattspyrnudeild Fylkis, Bónus og BYR skrifuðu undir nýjan samstarfssamning síðastliðinn mánudag. Bónus og BYR hafa verið styrktaraðilar félagsins lengi og því mikið gleðiefni að samstarfið haldi áfram.
athugasemdir: 2
lesa áframFylkir-Haukar 6.apríl á Ásvöllum
05-04-2011
Fylkir spilar á morgun sinn síðasta leik í riðlakeppni Lengjubikarsins í ár. Leikurinn fer fram á Ásvöllum heimavelli Hauka og hefst hann kl.20:00. Verð ég að vekja undrun mína á leiktíma og leikdegi þar sem Meistaradeild Evrópu er á sama kvöldi og á nánast sama tíma. Mér finnst KSÍ stundum ekki pæla í neinu varðandi þessa leiktíma þegar að stórum leikjum í sjónvarpi kemur, þar má til dæmis nefna HM í sumar. Mætti halda að Birkir Sveinsson mótastjóri KSÍ væri alltaf í tímabundnu leyfi, en alltaf þegar er kvartað yfir einhverju er hann í fríi. Var ekki hægt að spila leikinn á fimmtudegi í stað miðvikudags?? En nóg af þessu væli.
athugasemdir: 0
lesa áframGóður sigur á Grindavík
02-04-2011
Fylkir hélt lífi í baráttunni um að komast í undanúrslit Lengjubikarsins með 2-1 sigri á Grindavík í gær. Tómas Þorsteinsson og Þórir Hannesson voru á skotskónum fyrir Árbæinga.
athugasemdir: 1
lesa áframFjalar á leið til Víkings - APRÍLGABB!
01-04-2011
Fjalar Þorgeirsson markvörður Fylkismanna er á leið til Víkings R. Eins og menn vita hefur verið hörð samkeppni um markvarðarstöðuna í vetur. Samkvæmt okkar heimildum hefur Ólafur Þórðarson tjáð Fjalari að Bjarni Þórður Halldórsson verði aðalmarkvörður í sumar. Fjalar hefur því viljað róa á önnur mið og í dag kom tilboð frá Víkingum sem Fylkir féllst á. Fjalar skrifar undir við Víkinga seinna í dag.
athugasemdir: 0
lesa áframLeikur Fylkis og Grindavíkur kl. 19:00 en ekki 20:00
31-03-2011
Leikur Fylkis og Grindavíkur sem fram fer á morgun verður leikinn kl. 19:00 en ekki 20:00. Leikurinn verður á gervigrasinu á Fylkisvelli og hvetjum við alla til að líta við og skoða liðið nú þegar aðeins um mánuður er í Íslandsmót.
athugasemdir: 1
lesa áframFylkismenn í landsliðum
30-03-2011
Við Fylkismenn áttum nokkar fulltrúa bæði í A-landsliðinu og u21 landsliðinu í síðastliðinni viku. Í A-landsliðinu voru þeir Helgi Valur Daníelsson og Ólafur Ingi Skúlason og í u21 landsliðinu áttum við Fylkismenn tvo fulltrúa, það voru þeir Andrés Már Jóhannesson og Guðlaugur Victor Pálsson
athugasemdir: 0
lesa áframSeiglusigur á Reykjavíkur-Þrótti
28-03-2011
Fylkismenn unnu góðan 3-2 sigur á Þrótti R. eftir að hafa lent undir 0-2 í Lengjubikarnum í gærkvöldi. Markamaskínan Albert Brynjar Ingason virðist vera að taka við sér og hann tryggði Fylki sigur með tveimur mörkum í síðari hálfleik.
athugasemdir: 1
lesa áframFylkir og ÍR skyldu jöfn
18-03-2011
Fylkir og ÍR gerðu 1-1 jafntefli í bragðdaufum leik í Egilshöllinni í gærkvöldi. ÍR komst yfir með marki frá Elíasi Inga Árnasyni og var staðan 1-0 í hálfleik ÍR í vil. Fylkismenn komu síðan grimmari inn í seinni hálfleikinn og náðu að jafna en þar var að verki markamaskínan Albert Brynjar Ingason.
athugasemdir: 0
lesa áframLengjubikarinn í kvöld: Fylkir - ÍR eigast við.
17-03-2011
Fylkismenn taka á móti ÍR-ingum í 4 umferð Lengjubikarsins í kvöld. Leikurinn fer fram í Egilshöll og hefst hann kl. 19:10 Skyldu þrjú stig í boði ef við ætlum áfram í þessu móti svo við hvetjum alla til að kíkja á liðið. Áfram Fylkir
athugasemdir: 0
lesa áframStaða mála hjá Fylki
15-03-2011
Það er ansi langt síðan ný frétt birtist hér á síðunni og því um að gera að líta yfir stöðu mála. Síðan lá einnig niðri um stundarsakir vegna vírusar sem herjaði á okkur en því hefur sem betur fer verið kippt í liðinn.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir - B68 á sunnudaginn
02-03-2011
Fylkir leikur á sunnudaginn næsta 6. mars æfingaleik við færeyska liðið B68. Leikurinn fer fram í Kórnum í Kópavogi og hefst kl. 17:30. B68 lenti í 7. sæti í efstu deild Færeyja á síðasta tímabili. Hvetjum við alla Fylkismenn til að gera sér ferð í Kórinn á sunnudaginn til að sjá spennandi og skemmtilegan leik.
athugasemdir: 0
lesa áframSigur á BÍ/Bolungarvík
27-02-2011
Fylkismenn fara vel af stað í Lengjubikarnum og hafa nú sex stig eftir tvo leiki. Þeir sigruðu BÍ/Bolungarvík með einu marki gegn engu og var það Rúrik Andri Þorfinsson sem skoraði eina mark leiksins á 80 mínútu.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir - Bí/Bolungarvík. Minningarleikur um Brynjar Þór Ingason
23-02-2011
Næsti leikur Fylkis er gegn BÍ/Bolungarvík í Lengjubikarnum næsta laugardag í Egilshöll kl 15:00. Leikurinn verður minningaleikur um Brynjar Þór Ingason. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta á þennan forvitnilega leik.
athugasemdir: 0
lesa áframGóð byrjun í Lengjubikarnum
21-02-2011
Fylkir sigraði Stjörnuna 2-1 í fyrsta leik liðanna í Lengjubikarnum s.l. laugardag. Andrés Már Jóhannesson og Ingimundur Níels Óskarsson voru á skotskónum fyrir Fylkismenn.
athugasemdir: 0
lesa áframFréttir af aðalfundi - Björn Gíslason kjörinn formaður Fylkis
18-02-2011
Nú er nýlokið aðalfundi Fylkis þar sem Björn Gíslason var kjörinn nýr formaður félagsins. Þá var einnig kosið milli fimm frambjóðenda í þrjú laus sæti í aðalstjórn. Þórir Örn Árnason, Benedikt Guðmundsson og Guðrún Ósk Jakobsdóttir voru kjörnir fulltrúar í aðalstjórn. Aðrir í aðalstjórn eru Gunnlaugur Jónsson, Magnea Ragna Ögmundsdóttir og Kristinn Eiríksson sem kjörin voru til tveggja ára á síðasta aðalfundi.
athugasemdir: 0
lesa áframAðalfundur Fylkis - Björn og Guðrún í formannsslag
15-02-2011
Aðalfundur Fylkis fer fram n.k. fimmtudag kl 20:30. Kosið verður milli Björns Gíslasonar og Guðrúnar Óskar Jakobsdóttur til embættis formanns.
athugasemdir: 0
lesa áframTap gegn Val í undanúrslitum Reykjarvíkurmótsins
15-02-2011
Valsmenn fóru með sigur af hólmi þegar Fylkir og Valur mættust í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins síðasliðinn föstudag. Staðan var 1-1 að venjulegum leiktíma loknum og grípa þurfti til vítaspyrnukeppni þar sem Valsmenn höfðu betur. Valsmenn voru sterkari í fyrra hálfleik en Fylkir voru miklu betri í seinni hálfleik og fengu aragrúa marktækifæra en tókst ekki að knýja fram sigur og því fór sem fór.
athugasemdir: 0
lesa áframUndanúrslit Rvk mótsins á föstudaginn kl.20:45
10-02-2011
Okkar menn etja kappi við Valsmenn í undanúrslitum Reykjarvíkurmótsins á föstudaginn. Leikurinn hefst kl. 20:45 og er að sjálfsögðu spilaður í Egilshöll. Við hvetjum sjálfsögðu alla Fylkismenn til að kíkja á leikinn en fyrir þá sem komast ekki þá er leikurinn sýnur beint á www.sporttv.is
athugasemdir: 6
lesa áframAðalfundur Fylkis 17. febrúar - Nýr formaður kjörinn
09-02-2011
Aðalfundur Fylkis fer fram 17. febrúar n.k. kl. 20:30 í Fylkishöllinni. Þar verður nýr formaður félagsins krýndur þar sem núverandi formaður Karl Sigurðsson gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Hér að neðan má lesa ávarp fráfarandi formanns:
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir sigraði Fjölni
07-02-2011
Fylkir tryggði sér sæti í undanúrslitum Reykjavíkurmóts karla með 4-2 sigri á Fjölni í fjörgum leik í Egilshöllinni.
athugasemdir: 0
lesa áframLokaumferð riðlakeppni Rvk mótsins á föstudaginn k: 21:00
03-02-2011
Fylkir tekur á móti Fjölni í lokaumferð riðlakeppni Reykjarvíkurmótsins á föstudaginn kl. 21:00. Leikurinn fer að sjálfsögðu fram í Egilshöll eins og allir aðrir leikir í þessu móti. Við verðum að vinna til að komast áfram í undanúrslit keppninar. Mikið er undir og hvetjum við fólk til að kíkja í höllina, en fyrir þá sem nenna ekki úr húsi þá er leikurinn sýndur beint á www.sporttv.is
athugasemdir: 3
lesa áframFrábær sigur gegn Víkingi
31-01-2011
Fylkismenn unnu gríðarlega sannfærandi sigur 4-0 í Reykjavíkurmótinu í gær. Mörk Fylkis skoruðu Ásgeir Örn, Andrés Már, Valur Fannar og Ingimundur Níels
athugasemdir: 5
lesa áframRvk mótið á sunnudaginn- Fylkir-Víkingur kl.20:00 - Sýndur í beinni á SportTV
29-01-2011
Fylkir og Víkingur eigast við í Reykjarvíkurmótinu á sunnudaginn kl.20:00 og fer leikurinn fram í Egilshöll. Liðin eru bæði með 3 stig en Víkingar þó búnir að spila 3 leiki. Bæði eiga þau sameinginlegt að hafa unnið ÍR og tapað fyrir KR, en Víkingur tapaði einnig fyrir Fjölni. Þjálfari Víkinga er okkur Fylkismönnum góðkunnugur,
athugasemdir: 0
lesa áframTap gegn KR
22-01-2011
Fylkismenn töpuðu 6-4 í ansi hreint fjörugum leik á fimmtudagskvöldið. KR-ingar skoruðu fyrstu fimm mörk leiksins og virtust á góðri leið með að niðurlægja okkar menn en Fylkismenn sýndu karakter og tókst að skora fjögur mörk áður en yfir lauk.
athugasemdir: 0
lesa áframGylfi fær ekki leikheimild fyrr en 20.febrúar
15-01-2011
Gylfi Einarsson einn af nýjum liðsmönnum Fylkis mun ekki fá leikheimild strax og missir því af öllu Reykjavíkurmótinu nema ef Fylkir kemst í úrslitaleikinn 6.mars. Gylfi fær ekki leikheimild fyrr en 20.febrúar.
athugasemdir: 0
lesa áframÞægilegur 2-0 sigur á ÍR
14-01-2011
Fylkismenn unnu sannfærandi 2-0 sigur á ÍR-ingum í Egilshöllinni í kvöld. Baldur Bett og Andrés Már skoruðu mörk Fylkis en ÍR-ingar léku manni færri lungann af síðari hálfleik.
athugasemdir: 2
lesa áframRvk mótið hefst í kvöld - Fylkir-ÍR kl.21:00 - Sýndur í beinni á SportTV
13-01-2011
Fylkir og ÍR eigast við í fyrsta leik Reykjavíkurmótsins í kvöld. Leikurinn fer fram í Egilshöllinni og hefst kl. 21:00. Við Fylkismenn erum búnir að bæta nokkrum leikmönnum við í safnið frá síðasta tímabili og verður gaman að sjá þessi nýju andlit í kvöld.
athugasemdir: 3
lesa áframHerrakvöld Fylkis á morgun 21. janúar!!!
11-01-2011
Herrakvöld Fylkis 2011 verður á bóndadaginn, föstudaginn 21. janúar. Miðasala er hafin í Fylkishöll og er hægt að panta borð með því að senda póst á netfangið herrakvold@fylkir.com
athugasemdir: 10
lesa áframFylkir lagði Gróttu
09-01-2011
Fylkir lagði Gróttu í æfingaleik í gær (laugardag) 2-1. Mörk Fylkis skoruðu Andrés Már Jóhannesson og Tómas Joð Þorsteinsson.
athugasemdir: 5
lesa áframGleðileg jól
24-12-2010
Fylkismenn.is óskar öllum Fylkismönnum og velgjörðarmönnum félagsins nær og fjær, til sjávar og sveita gleiðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
athugasemdir: 0
lesa áframUppgjör - Einkunnargjöf sumarsins
23-12-2010
Já komið öll sæl og blessuð. Nú er komið að því að gera árið upp hjá leikmönnum. Eins og flestir vita fóru Kristján Gylfi og Valur Ingi á kostum á lokahófi Fylkis, þegar þeir fóru yfir tímabilið hjá liðinu í heildina. En nú er komið að því að birta meðaleinkunnir leikmanna.
athugasemdir: 3
lesa áframMyndband
21-12-2010
Til að stytta okkur stundir í bið okkar eftir jólunum er um að gera að rifja upp þetta vídjó af stórskemmtilegu atviki sem gerðist í kvennaleik á Fylkisvelli fyrir nokkrum árum. Sjón er sögu ríkari!
athugasemdir: 3
lesa áframRiðill Fylkis í Lengjubikarnum
16-12-2010
Fylkir lenti í Riðli 3 í A-deild karla og er í riðli með BÍ/Bolungarvík, FH, Grindavík, Haukum, ÍR, Stjörnunni og Þrótti R. Einnig eru komin drög að leikjaprógramminu og er þar gert ráð fyrir að fyrsti leikur Fylkis sé sunnudaginn 20.febrúar og sá síðasti miðvikudaginn 6. apríl.
athugasemdir: 0
lesa áframNýju búningarnir kynntir
11-12-2010
Í dag var undirritaður samningur við Hummel og Bros um að Fylkisliðið leiki í varningi frá Hummel næstu fjögur árin. Fylkismenn.is kíktu á svæðið og látum myndirnar sem Einar Ásgeirsson tók tala sínu máli.
athugasemdir: 13
lesa áframJólamarkaður um helgina í Fylkishöll
10-12-2010
Um þessa helgi á morgun 11. og á sunnudaginn 12. desember fer fram jólamarkaður í Fylkishöll þar sem hægt er að gera frábær kaup á fatnaði, sælgæti, ís og fleira. Markaðurinn verður á 2. hæð og verður opinn 10-22 báða dagana. Nýr búningasamningur Handknattleiks og Knattspyrnudeildar verður undirritaður á laugardaginn kl. 14:00. Nýir æfinga og keppnisbúningar verða frumsýndir og verða til sýnis alla helgina.
athugasemdir: 0
lesa áframTrausti Björn í Fylki
09-12-2010
Trausti Björn Ríkharðsson hefur gengið í raðir Fylkis en hann kemur til félagsins frá ÍR.Þessi 25 ára gamli hægri bakvörður hefur gert þriggja ára samning við Fylki.
athugasemdir: 5
lesa áframStjáni framlengir !
08-12-2010
Kristján Valdimarsson, leikmaður Fylkis, hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu tveggja ára. Kristján er varnarmaður og hefur spilað 141 leiki í efstu deild og bikar, og skorað í þeim 1 mark. Hann kom uppúr yngriflokkastarfi félagsins og hefur spilað með meistaraflokki félagsins allar götur síðan 2001
athugasemdir: 5
lesa áframFylkismenn í riðli með KR, Fjölni, ÍR og Víking R. í Reykjavíkurmótinu
07-12-2010
Búið er að birta riðlaskiptingu og leikjaplan í Reykjavíkurmóti karla og kvenna en keppni hefst í janúar. Fylkir lenti í riðli með KR, Fjölni, ÍR og Víking R. Alls taka níu lið þátt í Reykjavíkurmóti karla og hefja okkar menn leik gegn ÍR fimmtudaginn 13. janúar.
athugasemdir: 1
lesa áframSigur gegn ÍA í æfingaleik
04-12-2010
Fylkismenn heimsóttu nú í morgun lið ÍA upp á Skipaskaga og spilað var í frystikistunni þar sem Fylkismenn höfðu betur 2-1. Það var hrikalegur kuldi í Akraneshöllinni í morgun, en leikmenn beggja liða létu það ekki á sig fá og hart var barist um hvern einasta bolta sem var mjög gaman að sjá.
athugasemdir: 3
lesa áframFylkir mun leika í Hummel búningum næstu fjögur ár
03-12-2010
Fylkir mun leika í Hummel búningum næstu fjögur ár a.m.k. en nýr búningasamningur verður undirritaður laugardag 11 desember kl. 14 á Jóla Lager Markaði Fylkis og þá mun ný æfinga og keppnisbúningalína verða frumsýnd.
athugasemdir: 9
lesa áframFylkismenn þurfa að bæta áhorendaaðstöðuna fyrir 2012
03-12-2010
ÍBV gæti neyðst til að leika heimaleiki sína annars staðar en í Vestmannaeyjum frá og með 2012 ef að félagið kemur ekki upp áhorfendaaðstöðu sem uppfyllir skilyrði leyfiskerfis KSÍ. ÍBV er þó ekki eina félagið sem er í þessum vandræðum því að Fylkismenn þurfa einnig að bæta áhorfendaaðstöðu sína fyrir árið 2012.
athugasemdir: 4
lesa áframRúrik Andri Þorfinnsson í Fylki
26-11-2010
Rúrik Andri Þorfinnsson er genginn til liðs við Fylki frá Fram og skrifaði undri þriggja ára samning við Árbæjarfélagið undir kvöld. Rúrik sem er 18 ára gamall hefur spilað einn leik með meistaraflokki Fram sem var gegn Þrótti í Pepsi-deildinni sumarið 2009. Rúrik er mikill markaskorari og hefur mikinn hraða. Hann er sóknarmaður sem skoraði 24 mörk með 2. flokki Fram á síðustu leiktíð.
athugasemdir: 7
lesa áframDrög að leikjaprógrammi Fylkis í Pepsi - deildinni
25-11-2010
Drög að leikjaprógrammi Pepsi deildar hafa verið birt á KSÍ. Ég tók saman hvernig okkar leikjaprógramm lítur út í Pepsi deildinni 2011. Við hefjum leik á heimavelli á verkalýðsdaginn 1. maí sem ku vera sunnudagur á árinu 2011. Við ljúkum svo keppni með heimaleik gegn FH nákvæmlega fimm mánuðum síðar eða laugardaginn 1. október.
athugasemdir: 1
lesa áframTap gegn Þrótti
24-11-2010
Fylkismenn töpuðu 2-3 gegn Þrótti R. fyrr í kvöld. Andrés Már Jóhannesson skoraði bæði mörk Fylkis það fyrra með laglegri afgreiðslu í bláhornið og það síðara með skalla eftir frábæran undirbúning hins stórefnilega Ragnars Braga Sveinssonar.
athugasemdir: 1
lesa áframÆfingaleikir framundan
22-11-2010
Fylkismenn eru auðvitað byrjaðir að æfa af fullum krafti og undirbúa sig fyrir tímabilið sem hefst eftir rúmlega fimm mánuði. Liðið mun leika tvo æfingaleiki á næstunni og er sá fyrri gegn Þrótti á morgun 23. nóvember kl 18:30 í Egilshöll.
athugasemdir: 1
lesa áframBrot af því besta
02-11-2010
Hér kemur það loksins. Brot af því besta úr viðtölum sumarsins. Hér fáum við lengri útgáfuna, en styttri útgáfan var sýnd á uppskeruhátíð Fylkis sl. laugardag en komst ekki nægilega vel til skila vegna hljóðvandamála. Hér fyrir neðan sjáum við 18 mín af skemmtun og því besta úr vídjóefni sumarsins.
athugasemdir: 1
lesa áframAðalfundur Knattspyrnudeildar 2.nóvember kl 20:30 - Framboð til stjórnar knattspyrnudeildar Fylkis
02-11-2010
Aðalfundur knattspyrnudeildar fer fram þriðjudagskvöldið 2. nóvember kl 20:30 í Fylkishöll. Uppstilinganefnd hafa borist neðangreind framboð til stjórnar knattspyrnudeildar Fylkis;
athugasemdir: 0
lesa áframFréttir af Lokahófi Fylkis
01-11-2010
Lokahóf Fylkis var haldið með miklum glæsibrag síðastliðið laugardagskvöld og var gríðarlega góð stemming. Verðlaun á hófinu féllu á eftirtalin veg.
athugasemdir: 0
lesa áframBjarni Þórður kominn heim!
27-10-2010
Bjarni Þórður Halldórsson er komin aftur heim í Árbæinn. Bjarni skrifaði undir 3 ára samning við Fylki og bjóðum við Bjarna hjartanlega velkominn heim.
athugasemdir: 11
lesa áframJói Þórhalls skrifaði undir nýjan samning
27-10-2010
Jóhann Markabíll Þórhallsson, leikmaður Fylkis, hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið en samningur hans rann út núna eftir tímabilið.
athugasemdir: 7
lesa áframUppskeruhátíð Fylkis 2010 - Laugardaginn 30.október
26-10-2010
Laugardaginn 30.október verður haldin Uppskeruhátíð eldri flokka Fylkis 2010. Þar er sjálboðaliðum í kringum starfið í sumar þakkað fyrir sitt framlag til félagsins með glæsilegu kvöldi. Félag eins og Fylkir á mikið úrval á frábæru fólki sem er alltaf til staðar svo að svona félag geti starfað.
athugasemdir: 0
lesa áframJóhann Þórhalls líklega áfram hjá Fylki þrátt fyrir áhuga frá Þór
19-10-2010
Jóhann Þórhallsson, framherji Fylkis, býst við að leika áfram í Árbænum næst sumar. Jóhann verður samningslaus í lok mánaðarins en hann á í viðræðum um nýjan samning.
athugasemdir: 5
lesa áframFjalar Þorgeirsson prúðasti leikmaðurinn
18-10-2010
Lokahóf KSÍ var haldið með pompi og prakt sl. laugardag. Þar fengu Fylkismenn óvænt verðlaun þegar Fjalar Þorgeirsson fékk verðlaun sem prúðasti leikmaður deildarinnar. Það sem vakti þó mesta athygli var það sem stóð á verðlaunaskildinum sem Fjalar fékk í hendur.
athugasemdir: 4
lesa áframFylkismenn í landsliðum
13-10-2010
Fylkismenn hafa átt þó nokkra fulltrúa í landsliðum Íslands sem hafa verið í sviðsljósinu að undanförnu og er það alltaf skemmtilegt. Það er gaman að sjá okkar menn í landsliðsbúningnum og vonandi að það starf sem unnið er í félaginu skili upp enn fleiri landsliðsmönnum á næstu árum og misserum.
athugasemdir: 0
lesa áframGylfi Einarsson skrifar undir
12-10-2010
Gylfi Einarsson hefur skrifað undir 3 ára samning við Fylki. Hann er uppalinn Fylkismaður og lék síðast á Íslandi árið 2000 en það ár skoraði hann 10 mörk 18 leikjum fyrir Fylki. Alls hefur hann leikið 54 leiki með Fylki og gert 18 mörk.
athugasemdir: 7
lesa áframGylfi Einarsson í Fylki!
09-10-2010
Gylfi Einarsson sem hefur verið í atvinnumennsku í áratug er kominn aftur heim í Árbæinn. Hann fór frá Fylki til Lilleström í lok september árið 2000 eftir að hafa átt frábært tímabil með Fylki sem náði óvænt öðru sæti sem nýliðar í deildinni það árið. Þetta eru frábærar fréttir fyrir Fylkismenn og bindum við vonir við að koma hans muni styrkja okkar lið gríðarlega á næstu leiktíð.
athugasemdir: 9
lesa áframLeikmaður ársins að mati stuðningsmanna!! Vilt þú taka þátt?
06-10-2010
Stuðningsmenn Fylkis hafa kosið leikmann ársins síðustu ár og taka fjölmargir þátt í valinu. Kosningin stendur yfir akkúrat núna og ef þú vilt hafa áhrif á valið þá biðjum við þig lesandi góður um að senda okkur póst á valurinn@hotmail.com fyrir miðnætti á föstudag, en þá líkur kosningunni. ATH! Ekki verður tekið við atkvæðum sem koma í gegnum commenta kerfið hérna fyrir neðan.
athugasemdir: 2
lesa áframJón Páll Pálmason tekur við kvennaliðinu
05-10-2010
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fylkismenn.is hefur Fylkir fundið arftaka Bubba sem þjálfari meistaraflokks kvenna. Sá maður heitir Jón Páll Pálmason og þjálfaði hann lið Hattar í 2.deild karla núna í sumar. Undir hans stjórn náði Höttur að lenda í 4.sæti 2 deildarinnar. Jón er ungur að árum en hann er fæddur 1982 og hefur þjálfað alla yngri flokka FH undanfarin ár en hann hóf þjálfaraferil sinn haustið 2003. Samkvæmt okkar heimildum hefur Jón nú þegar haldið fund með leikmönnum og skrifar að öllum líkindum undir samning í dag.
athugasemdir: 0
lesa áframÁsgeir Örn framlengir
03-10-2010
Ásgeir Örn Arnþórsson, leikmaður Fylkis, hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið en samningur hans rann út núna eftir tímabilið. Ásgeir Örn er uppalinn Fylkismaður og gekk upp úr 2. flokki síðasta haust. Hann á að baki 23 leiki í efstu deild og bikar (þar af 21 leik í sumar) fyrir Fylki, og hefur skorað eitt mark.
athugasemdir: 0
lesa áframÞórir áfram í Árbænum
30-09-2010
Leikmannamarkaðurinn: Hverja eigum við að fá?
29-09-2010
Nú er kominn sá tími árs sem allt slúðrið byrjar og allir hafa skoðun á því hvort þurfi að styrkja liðið fyrir komandi átök eða ekki. Við Fylkismenn áttum erfitt tímabil í ár og hópurinn var ansi þunnur. Því biðjum við þig lesandi góður um að segja okkur þitt álit á því hvaða leikmenn stjórnarmenn okkar eiga að leggja mesta áherslu á að klófesta, því þetta er eitthvað sem allir hafa skoðanir á! Endilega takið líka þátt í nýrri skoðanakönnun þar sem við spyrjum um hvort og þá hversu mikið við þurfum að styrkja lið okkar.
athugasemdir: 18
lesa áframBjörn Kristinn hættur þjálfun Fylkiskvenna
28-09-2010
Björn Kristinn Björnsson er hættur þjálfun kvennaliðs Fylkis en samningur hans við félagið var að renna út. Hann staðfesti þetta við Fótbolta.net í kvöld. Hann tók við liðinu 11. september 2006 og var því að ljúka fjórða tímabilinu með liðinu.
athugasemdir: 0
lesa áframKR - Fylkir Viðtal eftir leik
27-09-2010
Hér er viðtalið sem var tekið upp eftir leik okkar gegn KR. Rætt er við Ólaf Þórðarson um sumarið, nýja samninginn og leikinn.
athugasemdir: 0
lesa áframÓlafur Þórðarson skrifar undir nýjan samning
25-09-2010
Ólafur Þórðarson þjálfari meistaraflokks karla hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Fylkis og mun því stjórna liðinu næstu tvö tímabil. Ólafur hefur stýrt Fylki síðastliðin tvö ár.
athugasemdir: 0
lesa áframMBL: Óli áfram - liðið styrkt
25-09-2010
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mbl.is hefur verið frá því gengið að Ólafur Þórðarson verði áfram þjálfari karlaliðs Fylkis í knattspyrnu. Ólafur tók við Árbæjarliðinu fyrir síðustu leiktíð og undir hans stjórn höfnuðu Fylkismenn í þriðja sæti deildarinnar.
athugasemdir: 2
lesa áframStúkumál: Deiliskipulagstillaga samþykkt í Borgarráði
25-09-2010
ins og flestum er kunnugt var lögð inn tillaga um breytingu á deiliskipulagi Fylkisvæðisins á vordögum þar sem gert er ráð fyrir stúku við aðalvöll félagsins. Tillagan fór hefðbundna leið í kynningarferli og var lítillega breytt til að koma til móts við athugasemdir sem bárust.
athugasemdir: 0
lesa áframNæsti Leikur: Mótinu líkur í Vesturbæ og Upphitun hefst á Steininum kl. 12:00!
24-09-2010
Á laugardaginn klárast Pepsi-deildin þegar Fylkir fer í Vesturbæ og sækir KR heim. Leikurinn hefur í sjálfu sér litla þýðingu fyrir okkar menn nema þá helst að hann gefur leikmönnum gott tækifæri til að sanna hvað í þeim býr og bæta um fyrir ófarirnar fyrr í sumar.
athugasemdir: 4
lesa áframLokaball Fylkis 2010 - Sálin hans Jóns míns
21-09-2010
Við minnum á lokaball Fylkis sem fer fram í Fylkishöll næsta laugardag, 25. september. Húsið opnar kl. 23:00 Miðaverð er aðeins kr. 2.500 og miðasala fer fram í Fylkshöll.
athugasemdir: 4
lesa áframFylkir - Haukar viðtöl fyrir og eftir leik.
20-09-2010
Hér eru viðtöl sem tekin voru eftir leik okkar gegn Haukum á Fylkisvelli í gærkvöldi. Við spurðum þá Ólaf Þórðarson, Þóri Hannesson, Andrés Má og Ingmund Níels Óskarsson nánar útí leikinn.
athugasemdir: 4
lesa áframFylkir 3-0 Haukar
19-09-2010
Fylkir vann í kvöld mjög sannfærandi sigur á Haukum á Fylkisvelli. Öll mörk dagsins komu í fyrri hálfleik en leiknum lauk með 3-0 sigri Fylkis. Mörk okkar manna komu frá Andrési Má sem skoraði 2 mörk og Ingimundi sem setti eitt laglegt mark.
athugasemdir: 12
lesa áframNæsti Leikur: 6 stiga leikur í Árbænum
18-09-2010
Á sunnudag fer fram mikilvægasti leikur Fylkis í langan tíma. Síðasti heimaleikur tímabilsins er framundan og það eru nýliðar Hauka sem mæta í Árbæinn. Bæði lið eiga eins og kunnugt er í harðri fallbaráttu ásamt Grindavík og Selfossi.
athugasemdir: 8
lesa áframLoksins loksins sigur (umfjöllun) og viðtöl eftir leik
18-09-2010
Fylkismenn unnu óhemju mikilvægan sigur á Grindvíkingum í gær. Það voru snillingarnir Davíð Þór Ásbjörnsson og Ingimundur Níels Óskarsson sem kláruðu leikinn á tveggja mínútna kafla undir lok leiksins. Frábært að vera loksins í þeim sporum að skora mörk á lokakaflanum í stað þess að fá á sig mörk.
athugasemdir: 1
lesa áframFylkisdagur á sunnudaginn - Síldarveislan
17-09-2010
Það verður sannkallaður Fylkisdagur á sunnudaginn þegar fram fara á Fylkisvellinum síðustu heimleikir Fylkis í pepsi-deild karla og kvenna. Stelpurnar eiga að spila við Aftureldingu kl. 13:00 og strákarnir eiga að spila við Hauka kl. 17:00.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir 2-0 Grindavík
16-09-2010
Fylkir vann í kvöld mikilvægan sigur á Grindavík, 2-0. Með sigrinum fóru Fylkismenn upp fyrir Grindvíkinga og í 9. sæti deildarinnar. Sigurinn tryggir þó ekki sætið í deildinni þar sem Haukar fóru einnig með sigur af hólmi en Fylkir og Haukar mætast á Fylkisvelli á sunnudaginn. Nánari umfjöllun um leikinn er væntanleg.
athugasemdir: 9
lesa áframRaggi yngsti leikmaður Fylkis í efstu deild
15-09-2010
Ragnar Bragi Sveinsson varð um síðustu helgi yngsti leikmaður Fylkis til að spila leik í efstu deild í Íslandsmóti með meistaraflokki félagsins þegar hann kom inn á í leik Fylkis og Breiðabliks í pepsi-deild karla.
athugasemdir: 5
lesa áframUpphitun: Grindvíkingar mæta á Fylkisvöll
15-09-2010
Á morgun eigum við Fylkismenn feykilega mikilvægan leik gegn Grindvíkingum á Fylkisvelli. Fylkir er í 10.sæti Pepsi deildarinnar en sigur mun að öllum líkindum bjarga okkur endanlega frá falli en þá myndum við fara í 21 stig og skjótast upp fyrir Grindavík sem situr sæti ofar með 20 stig.
athugasemdir: 3
lesa áframUmfjöllun: Skref í rétta átt
14-09-2010
Fylkismenn þurftu að sætta sig við tap fimmta leikinn í röð á Kópavogsvelli á sunnudagskvöld. Kristinn Steindórsson skoraði eina mark leiksins í upphafi síðari hálfleiks og kom sínu liði þar með á toppinn. Fylkismenn áttu sinn besta leik í langan tíma en því miður dugði það ekki til og því er falldraugurinn enn viðloðandi okkur.
athugasemdir: 1
lesa áframFrítt á Fylkisvöll fyrir þá sem mæta í appelsínugulu
14-09-2010
Á fimmtudaginn fer fram stórleikur í Árbænum þegar Grindavík sækir Fylki heim. Leikurinn er mikilvægur fyrir bæði lið. Ákveðið hefur verið að allir þeir sem mæta í ORANGE fái frítt á völlinn.
athugasemdir: 3
lesa áframBreiðablik - Fylkir viðtöl fyrir og eftir leik
13-09-2010
Hér koma viðtöl sem voru tekin fyrir og eftir leik gegn Breiðablik í gær.
athugasemdir: 0
lesa áframBreiðablik 1-0 Fylkir
12-09-2010
Fylkir tapaði í kvöld fyrir Breiðablik í 19. umferð Pepsi-deildarinnar. Eina mark leiksins kom í upphafi síðari háfleiks. Nánari umfjöllun um leikinn er væntanleg. Við minnum svo á að næsti leikur verður á Fylkisvelli gegn Grindavík þar sem okkar menn geta mögulega tryggt sæti sitt í deildinni.
athugasemdir: 0
lesa áframRisaupphitunarpakki - Upphitun í orðum og í myndbandsformi auk Peppmyndbands sem fær þig til að mæta á völlinn! UPPFÆRT!!!!!!!!!
11-09-2010
Nú er loksins komið að því okkar menn fara í Kópavoginn og taka á móti sterku liði Blika. Við hér á fylkismenn.is ætlum að hita rækilega upp fyrir leikinn. Sjáumst á vellinum!
athugasemdir: 9
lesa áframPistill frá fyrirliðanum : Ég skora því á þig Fylkismaður að mæta í Kópavoginn á sunnudaginn
10-09-2010
Kæru Fylkismenn Við erum í ansi skrýtinni stöðu núna við Fylkismenn. Eftir ótrúlega skemmtilegt og vel heppnað tímabil í fyrrasumar voru kröfurnar miklar fyrir þetta ár. Kröfurnar komu ekki frá ykkur stuðningsmenn og ekki frá stjórninni hún kom frá okkur sjálfum. Við ætluðum okkur of stóra hluti í sumar og því varð viljinn okkur að falli eða réttara sagt bar okkur ofurliði!
athugasemdir: 10
lesa áframFylkir vann Keflavík í æfingaleik
08-09-2010
Fylkir og Keflavík mættust í æfingaleik á Fylkisvelli í gær en bæði lið hafa verið í pásu undanfarna daga út af landsleikjahléinu. Leiknum lyktaði með 2-1 sigri okkar manna og þó að leikurinn hafi enga þýðingu var mikilvægt fyrir okkar stráka að kynnast því aftur hvernig það er að vinna leik.
athugasemdir: 0
lesa áframSinalco viðtölin: Andrés Már Jóhannesson
08-09-2010
Hér heyrum við skemmtilegt viðtal við eina landsliðsmannin í Fylkisliðinu en það er auðvitað Andrés Már Jóhannesson sem fer út um víðan völl í skemmtilegu spjalli um heima og geima.
athugasemdir: 1
lesa áframFréttatilkynning - Allir á völlinn á sunnudag. Leikurinn færður til 17:30
07-09-2010
Við hvetjum alla stuðningsmenn Fylkis nær og fjær að mæta í Kópavoginn og hvetja liðið til sigurs. Stjórn knattspyrnudeildar Fylkis og stjórn stuðningsmannafélagsins Kidda Tomm hafa nú tekið höndum saman og ætla að gera allt sem í okkar valdi stendur til að efla stuðninginn við liðið. Við erum jú tólfti maðurinn eins og svo oft hefur komið fram. Upphitun fer fram við Fylkishöll kl. 15:30 á sunnudaginn og fríar rútferðir í Kópavoginn.
athugasemdir: 7
lesa áframRitstjórnargrein: Klárum mótið með sæmd
07-09-2010
Fylkismenn eiga nú fjóra leiki eftir í Pepsi deildinni og því miður eru okkar menn enn í bullandi fallbaráttu. Því er ljóst að við öll sem berum hlýhug til félagsins verðum að róa öllum árum að því að tryggja að Fylkismenn haldi sér í deildinni. Með samhentu átaki leikmanna, þjálfara og stuðningsmanna er ég handviss um að það mun takast.
athugasemdir: 9
lesa áframKnattspyrndeild Fylkis riftir samningi við Pape
03-09-2010
Knattspyrndeild Fylkis hefur rift samningi við Pape Mamadou Faye, leikmann meistarflokks. Ástæða riftunarinnar er trúnaðarbrestur. Fylkir hefur bundið miklar vonir við þennan efnilega leikmann, sem hefur leikið knattspyrnu með Fylki frá unga aldri, og því er mjög sárt að þurfa að beita úrræðum sem þessu.
athugasemdir: 11
lesa áframLokaball Fylkis 2010: Sálin mætir á ný!
31-08-2010
Hið árlega lokaball Fylkis verður haldið í Fylkishöll laugardaginn 25.september næst komandi eða sama dag og lokaleikurinn í Pepsi deild karla er leikinn. Ein allra vinsælasta hljómsveit landsins, Sálin hans jóns míns leikur fyrir dansi. Húsið opnar 23:00 og kostar aðeins 2500 kr. Miðasala er í Fylkishöll og síminn þar er 567-6467. Mætum öll og skemmtum okkur saman með bestu ballhljómsveit landsins!
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir - ÍBV viðtal eftir leik.
30-08-2010
Hér kemur viðtal við Ólaf Þórðarson þjálfara Fylkis sem tekið var eftir leik Fylkis og ÍBV í gærkvöldi.
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Arnar Þór Úlfarsson
30-08-2010
ÍBV í heimsókn, Upphitun
28-08-2010
Nú er að duga eða drepast fyrir Fylkismenn. Verðum að fara að spíta í lófanna ef ekki á ílla að fara. Hvetjum alla Fylkismenn að mæta í Lautina á sunnudag og öskra úr sér lungun.
athugasemdir: 1
lesa áframYfirlýsing frá Tómasi J. Þorsteinssyni
27-08-2010
Hér að neðan er yfirlýsing frá Tómasi J. Þorsteinssyni vegna framkomu leikmannsins undir lok leiks Fylkis og KR.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir - KR viðtöl eftir leik.
27-08-2010
Hér eru viðtöl sem tekin voru eftir leik okkar gegn KR á Fylkisvelli í gærkvöldi. Við spurðum þá Ólaf Þórðarson, Jóhann Þórhallsson og Tómas J. Þorsteinsson nánar útí leikinn.
athugasemdir: 1
lesa áframUpphitun fyrir hörkuleik gegn KR! - Vídeóupphitun
25-08-2010
Nú er að duga eða drepast fyrir okkur Fylkismenn, KR-ingar koma í heimsókn og þurfa menn nú að sýna úr hverju þeir eru gerðir. Leikurinn hefst klukkan 18 í Lautinni og allir að mæta og hvetja Fylki áfram!
athugasemdir: 5
lesa áframUmfjöllun: Sama sagan - Forskotið hrynur
24-08-2010
Fylkismenn eru í slæmum málum eftir enn eitt tapið og að þessu sinni voru það FH-ingar sem hirtu þau þrjú stig sem í boði voru. Fylkir komst í góða stöðu með því að skora tvö fyrstu mörkin í leiknum en FH-ingar svöruðu heldur betur með fjórum mörkum. Með tapinu er staðan orðin ansi erfið fyrir okkar menn og alveg á hreinu að liðið verður að ná í stig í næstu leikjum.
athugasemdir: 2
lesa áframFH - Fylkir viðtöl eftir leik
23-08-2010
Hér eru viðtöl sem tekin voru eftir leik okkar gegn FH í Hafnarfirði í gærkvöldi. Við spurðum þá Ólaf Þórðarson og Ásgeir Börk nánar útí leikinn.
athugasemdir: 0
lesa áframNæsti Leikur: Íslandsmeistarar heimsóttir - Frítt inn!
22-08-2010
Bæði lið töpuðu leikjum sínum í seinustu umferð og verður því án efa hart barist um þau stig sem í boði eru í kvöd. Fylkismenn eru nú komnir í ansi slæma stöða í neðri hluta deildarinnar eftir tapleikinn gegn Val, sérstaklega þar sem að bæði Grindavík og Selfoss unnu sína leiki.
athugasemdir: 0
lesa áframHugsanleg félagskipti: Samningslausir leikmenn
20-08-2010
Nú styttist í að tímabilið klárist og því líður að því að stjórnarmenn setjist niður og skoði hvaða leikmenn eru samningslausir eftir tímabilið. Við skoðuðum hvaða leikmenn eru samningslausir bæði hjá okkar liði og annarstaðar. Hér ætlum við að kasta fram ansi mörgum áhugaverðum nöfnum sem Fylkir gæti mögulega krækt í. Endilega skoðið þetta og kommentið á hvaða leikmenn ykkur finnst spennandi á markaðnum.
athugasemdir: 5
lesa áframTap fyrir Val í ömurlegum leik
17-08-2010
Fylkismenn töpuðu fyrir 0-1 fyrir Val í 16. umferð Pepsi-deildarinnar í gær. Leikurinn var vægast sagt tilþrifalítill og gríðarlega leiðinlegur. Það er ljóst að eitthvað mikið þarf að breytast í leik okkar manna.
athugasemdir: 2
lesa áframNæsti Leikur: Mikilvægur leikur gegn Val
14-08-2010
Eftir landsleikjahlé er komið að því að Pepsi-deildin rúlli af stað á ný á mánudagskvöld en þá taka okkar menn í Fylki á móti Val í Árbænum. Hvorugt liðið hefur staðið undir væntingum það sem af er tímabili en þó eiga þau bæði ágæta möguleika á að nálgast baráttuna um Evrópusæti með sigri á mánudagskvöldið.
athugasemdir: 5
lesa áframUmfjöllun: Sætur vinnusigur á Frömurum í Laugardalnum.
10-08-2010
Fylkismenn lögðu útaf vananum á sunnudagskvöldið þegar þeir náðu að kreista fram sætan vinnusigur á Frömurum í Laugardalnum. Eftir að Fylkir komust yfir snemma í leiknum jöfnuðu Framarar úr umdeildri vítaspyrnu, en í stað þess að missa sigur niður í tap eins og svo oft hefur gerst þetta sumarið tóku okkar menn sig til og skoruðu sigurmarkið undir lok leiks til að tryggja stigin þrjú í Árbæinn.
athugasemdir: 4
lesa áframViðtöl eftir frábæran sigurleik gegn Frömurum
09-08-2010
Hér eru viðtöl sem tekin voru eftir leik okkar gegn Fram í Laugardalnum í gærkvöldi. Við spurðum þá Ólaf Þórðarson, Ingimund Níels Óskarsson og Kristján Valdimarsson nánar útí leikinn.
athugasemdir: 2
lesa áframFram - Fylkir 1-2
09-08-2010
Fylkismenn unnu kærkominn sigur í gærkvöldi gegn Fram í Laugardalnum. Þriðja leikinn í röð fengum við víti á okkur á lokamínútunum. Strákarnir sýndu karakter í þetta skipti og kláruðu dæmið og komu með þrjú gríðarlega mikilvæg stig í Árbæinn.
athugasemdir: 0
lesa áframHörku leikur í Laguardalnum
08-08-2010
Boðið verður uppá hörkuleik í Laugardalnum í kvöld þegar Fram og Fylkir etja kappi , búast má við marka leik og mikilli hörku. Liðinn hafa mæst tvisvar í sumar og má búast við að menn selji sig dýrt.
athugasemdir: 0
lesa áframViðtöl fyrir og eftir leik gegn Keflavík
06-08-2010
Hér eru viðtöl sem tekin voru fyrir og eftir leik okkar gegn Keflavík. Nokkrir stuðningsmenn voru spurðir út í leikinn og svo voru tekin viðtöl eftir leik við Þóri Hannesson og Ólaf Þórðarson.
athugasemdir: 0
lesa áframVegleg upphitun: Keflvíkingar koma í heimsókn í Lautina
04-08-2010
Boltinn er byrjaður að rúlla aftur eftir smá frí og eru Keflavík næstu mótherjar Fylkis. Allir að mæta í Lautina stundvíslega 19:15 og horfa á skemmtilegan fótboltaleik.
athugasemdir: 2
lesa áframFylkismenn erlendis - Helgi Valur Daníelsson
29-07-2010
Fylkismaðurinn Helgi Valur Daníelsson situr fyrir svörum í nýjum lið á Fylkismenn.is sem ber heitið „Fylkismenn erlendis”. Helgi Valur gekk í raðir hins fornfræga þýska félags Hansa Rostock í lok janúar á þessu ári þar sem hann kom frá sænska félaginu Elfsborg. Dvölin var þó stutt í Bundesligu 2 þar sem Hansa féll og gekk hann í kjölfarið til liðs við sænsku meistarana í AIK fyrir um mánuði síðan....
athugasemdir: 0
lesa áframFrábær sigur á Val - Viðtöl við þjálfarann og fyrirliðann
29-07-2010
Fylkisstelpur unnu frábæran 3-0 sigur á Val á þriðjudagskvöldið. Leikurinn var sögulegur fyir margra hluta sakir. Þetta var fyrsti sigur Fylkis á Val í meistaraflokki kvenna og í fyrsta skipti síðan 2003 sem Valsliðið skorar ekki eitt einasta mark í heilum leik. Anna Björg Björnsdóttir, Fjóla Dröfn Friðriksdóttir og Anna Sigurðardóttir skoruðu mörk Fylkis.
athugasemdir: 0
lesa áframViðtöl eftir leik gegn Stjörnunni
27-07-2010
Hér eru viðtöl sem tekin voru eftir leik okkar gegn Stjörnunni. Ólafur Þórðarson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson og Kristján Valdimarsson voru teknir tali og spurðir út í leikinn.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Enn tapast stig í lokin
27-07-2010
Fylkismenn misstu af einu stigi í blálokin á útivelli gegn Stjörnunni í Garðabæ. Ásgeir Börkur kom Fylki yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks en Stjörnumenn náðu að jafna um miðbik síðari hálfleiks. Ásgeir var svo aftur í sviðsljósinu þegar handlék knöttinn innan teigs og Stjörnumenn fengu víti sem þeir skoruðu úr og unnu 2-1.
athugasemdir: 1
lesa áframTap í Garðabænum
26-07-2010
Við Fylkismenn heimsóttum Stjörnuna á teppið í gærkvöldi. Leikar enduðu 2-1 fyrir heimamenn, þar sem okkar strákar fóru illa að ráði sínu í seinni hálfleik eftir að hafa verið yfir í hálfleik. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.
athugasemdir: 5
lesa áframUpphitun: 3.stig í boði á teppinu !
24-07-2010
Næsta verkefni okkar Fylkismanna er Stjarnan úti á teppinu í Garðabænum. Fylkisliðið vann frábæran og sigur um seinustu helgi og vonandi nær liðið að fylgja þeim sigri eftir í kvöld. Við hvetjum alla Fylkismenn til að fjölmenna á teppið og láta vel í sér heyra.
athugasemdir: 0
lesa áframLeikur Fylkis og KR verður spilaður fimmtudaginn 26. ágúst
23-07-2010
Nú er orðið ljóst að leikur Fylkis og KR í 11.umferð sem átti upphaflega að fara fram í gær(fimmtudag) en var frestað verður leikinn fimmtudaginn 26. ágúst á Fylkisvelli og verður því sautjándi leikur Fylkismanna í Pepsi deildinni.
athugasemdir: 0
lesa áframVef TV fyrir og eftir leik - Viðtöl og fleira góðgæti
20-07-2010
Upptökuvélin rúllaði heldur betur á Fylkisvelli fyrir og eftir leik Fylkis og Selfoss. Við tókum slatta af viðtölum fyrir og eftir leik við ýmsa mæta menn og fönguðum stemminguna inn í klefa að leik loknum. Þetta er tæplega 17 mín af efni sem skiptist í fyrri og seinni hluta þannig það er af nógu að taka. Góða skemmtun!
athugasemdir: 2
lesa áframUmfjöllun: Selfyssingar teknir í kennslustund
19-07-2010
Fylkismenn tóku Selfyssinga í kennslustund í Árbænum í gær. Lokatölur urðu 5-2 en Fylkismenn komust í 5-0 en Selfyssingar klóruðu í bakkann með tveimur mörkum.
athugasemdir: 0
lesa áframAlbert Brynjar Ingason besti leikmaður fyrri umferðar
19-07-2010
Nú þegar Fylkismenn hafa spilað helming leikja sinna í Pepsi deildinni langaði okkur hér á síðunni að verðlauna þann leikmann liðsins sem okkur finnst hafa staðið sig best í þessum 11 leikjum og höfum við ákveðið að Albert Brynjar Ingason sé sá besti.
athugasemdir: 0
lesa áframFrábær sigur gegn Selfoss - Næsti leikur er gegn Stjörnunni
18-07-2010
Fylkismenn kjöldrógu Selfyssinga 5-2 í frábærum leik í kvöld. Fylkismenn voru aðeins 1-0 yfir í hálfleik en gengu frá leiknum í síðari hálfleik þegar þeir komust í 5-0. Gestirnir gáfust þó ekki upp og náðu því miður að lauma inn tveimur mörkum sem voru mjög klaufaleg af okkar hálfu.
athugasemdir: 3
lesa áframUpphitun fyrir komu Selfyssinga
17-07-2010
Selfyssingar að detta í heimsókn í Lautina á morgun, verður flott veður og skemmtilegur fótbolti í boði. Allir að mæta, leikurinn hefst stundvíslega 19:15
athugasemdir: 3
lesa áframGylfi Einarsson á heimleið?
15-07-2010
Eins og allir vita þá opnaði félagskiptaglugginn í dag og samkvæmt heimildum íþróttadeildar rúv eru forráðamenn Fylkis að vinna að því að fá Gylfa Einarsson heim í Árbæinn á nýjan leik. Gylfi er með útrunninn samning við Brann eftir þetta tímabil í Noregi og samkvæmt heimildum okkar hér á fylkismenn.is hafði Gylfi þegar ákveðið að flytja heim á nýjan leik eftir að samingur hans við Brann rennur út.
athugasemdir: 4
lesa áframFylkir - Torpedo Zhodino 1-3 - Óli Þórðar í viðtali
09-07-2010
Fylkismenn töpuðu síðari leik sínum gegn Torpedo Zhodino 1-3 og samanlagt 1-6. Kristján Gylfi og Valur Ingi spjölluðu við þjálfarann Ólaf Þórðarson eftir leik og heyrðu viðbrögð hans að leik loknum.
athugasemdir: 2
lesa áframUpphitun: Torpedo Zhodino mætir á Laugardalsvöll - Ásgeir Börkur í viðtali
07-07-2010
Á morgun fer fram stórleikur hjá Fylkismönnum í Evrópukeppninni gegn Torpedo Zhodino. Stuðningsmenn ætla að hita upp með grillveislu á Blásteini kl. 17:30-18:30. 18:30 fer svo rúta af stað á Laugardalsvöll og leikurinn hefst svo kl.19:00.
athugasemdir: 4
lesa áframUmfjöllun: Grátleg örlög Fylkis á Vodafone velli
07-07-2010
Fylkismenn glutruðu tveimur dýrmætum stigum á lokamínútunum gegn Haukum. Fylkismenn komust yfir í seinni hálfleik með marki Alberts Brynjars Ingasonar en Haukar jöfnuðu í blálokin.
athugasemdir: 2
lesa áframFyrstu vídjóviðtölin tekin eftir leik okkar gegn Haukum
07-07-2010
Þeir sem standa að Fylkismenn.is hafa fest kaup á vídjó kameru sem verður notuð til að taka viðtöl og fleira skemmtilegt eftir leiki og ef eitthvað spennandi er að gerast í kringum Fylkisliðið. Þetta varð mögulegt vegna tekna af auglýsingum og viljum við þakka samstarfsaðilum okkar kærlega fyrir en þeir eru: Gámaþjónustan, Ölgerðin, Bros Bolir, Skalli og leggja.is
athugasemdir: 6
lesa áframHaukar - Fylkir 1-1
06-07-2010
Fylkismenn fóru illa að ráði sínu í kvöld þegar þeir misstu unnin leik niðrí jafntefli á síðustu andartökunum. Leikurinn endaði 1-1 og tvö dýrmæt stig í súginn.
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun, Annar leikur okkar á Vodafonevellinum
04-07-2010
Það verður hart barist á Vodafonevellinum á mánudagskvöld er við sækjum Hauka "Heim", leikurinn hefst 19:15 og skyldumæting fyrir alla FYLKISMENN.
athugasemdir: 3
lesa áframMyndir úr leiknum gegn Torpedo Zhodino
02-07-2010
Það eru komnar myndir inn á netið úr leik Fylkis og Torpedo sem fór fram í Hvíta Rússlandi í gær. Það var einhver óþekktur snillingur sem postaði þessu hér í commenta kerfið hjá okkur. Við þökkum honum kærlega fyrir það.
athugasemdir: 0
lesa áframTorpedo Zhodino-Fylkir 3-0 (leik lokið)
01-07-2010
Fylkir keppir þessa stundina við Torpedo Zhodino í Evrópukeppni félagsliða. Leikurinn var að klárast og 3-0 tap staðreynd!
athugasemdir: 9
lesa áframHaukar - Fylkir færður til mánudags - Evrópuleikur í dag kl.15:30
01-07-2010
Leik Hauka og Fylkis í Pepsi-deild karla hefur verið frestað um einn dag. Fylkir átti að mæta Haukum á sunnudagskvöld en nú er ljóst að leikurinn fer fram á mánudagskvöldið klukkan 19:15.
athugasemdir: 0
lesa áframLeikið verður í Laugardalnum í Evrópukeppninni og fjórir Fylkismenn dæmdir í leikbann
29-06-2010
Nú er endalega orðið ljóst að Fylkir spilar evrópuleikinn á Laugardalsvelli. Við hérna á fylkismenn.is vorum búnir að koma með þá tillögu um að spila á Vodafone vellinum eða einhverjum minni velli. Það gékk víst ekki upp í þetta skipti, þar sem ksí pressaði víst rosalega mikið á forráðamenn Fylkis
athugasemdir: 3
lesa áframUmfjöllun: Langþráður sigur í Grindavík
28-06-2010
Fylkir heimsótti Grindavík í dag og komu okkar menn með öll þrjú stigin sem í boði voru heim í Árbæinn.
athugasemdir: 1
lesa áframLoksins sigur hjá Fylki
27-06-2010
Fylkismenn náðu loksins sigri eftir langa bið þegar þeir lögðu Grindvíkinga 1-2 í Grindavík í dag. Jóhann Þórhallson var hetja Fylkismanna en hann skoraði bæði mörk okkar. Það fyrra kom strax í upphafi og það síðara skömmu fyrir leikslok.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá spekinga í 9.umferð
27-06-2010
Fylkismenn.is hefur fengið nokkra spekinga til liðs við sig til að spá fyrir í úrslit í Pepsi deildinni. Við ætlum að hafa 3-4 fasta spekinga sem spá í hverja umferð og svo er aldrei að vita hvort að leitað verði til annarra snillinga líka.
athugasemdir: 7
lesa áframUpphitun. Botnbaráttan!!!
26-06-2010
Hörkuleikur suður með sjó á sunnudag geng Grindavík. Skildu sigur ef við ætlum að vera í deildinni að ári
athugasemdir: 1
lesa áframUmfjöllun Fylkir-Fram: Maðurinn með flautuna í aðalhlutverki
25-06-2010
Fylkir og Fram áttust við í 16liða úrslitum Visa bikarkeppni karla í kvöld þar sem Frammarar fóru með sigur af hólmi 2-0.
athugasemdir: 2
lesa áframUpphitun fyrir bikarslag
23-06-2010
Upphitun fyrir skemmtilegan bikarslag í Lautinni, allir að mæta og styðja strákana.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Frágangur á nokkrum mínútum
22-06-2010
Það gengur allt á afturfótunum hjá Fylki og enn eitt tapið var niðurstaðan síðastliðið sunnudagskvöld. Þá voru það Blikar sem hirtu öll stigin á Fylkisvelli eftir að hafa sigrað 2-4. Fylkismenn hafa nú aðeins náð í 2 stig í síðustu sex deildarleikjum og ástandið dökknar með hverjum leik.
athugasemdir: 2
lesa áframFylkir til Hvíta-Rússlands
21-06-2010
Fylkir dróst gegn Torpedo Zhodino frá Hvíta-Rússlandi í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu karla. Tvö íslensk lið fara til Hvíta-Rússlands í sumar en fyrr í dag dróst FH gegn BATE Borisov í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
athugasemdir: 7
lesa áframDregið í Evrópudeildinni í dag
21-06-2010
Í dag verður dregið í fyrstu og aðra umferð forkeppni Evrópudeildarinnar 2010/11. Hægt er að fylgjast með drættinum beint á vef UEFA. Við munum svo flytja fréttir af því síðar í dag þegar drættinum er lokið.
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun. Fylkir - Breiðablik
20-06-2010
Fylkir spilar í dag klukkan 19:15 gegn Breiðablik á heimavelli í 8.umferð Pepsi-deildarinar. Hvetjum alla Fylkismenn að mæta og styðja sína menn til dáða
athugasemdir: 0
lesa áframÁsgeir Börkur: Já það er margir sem eiga mikið inni, en það er líka nóg eftir af þessu móti, þannig það þýðir ekkert að vola
15-06-2010
Valur Ingi og Kristján Gylfi voru í Eyjum og náðu í skottið á Geira eftir leik.
athugasemdir: 1
lesa áframUmfjöllun: Fylkir enn með 8 stig eftir tap í Eyjum
15-06-2010
Fylkismenn halda áfram að vera í vandræðum í Pepsi deildinni og þeir sóttu ekki gull í greipar Eyjamanna þegar liðin áttust við. Eyjamenn sigruðu 1-0 og Fylkismenn eru þar með enn með 8 stig og hafa ekki náð sigri í síðustu 5 deildarleikjum.
athugasemdir: 0
lesa áframTap í Eyjum
13-06-2010
Fylkismönnum gengur illa í pepsi-deildinni um þessar mundir og í dag töpuðu þeir á móti ÍBV 1-0 á Hásteinsvelli. Þórarinn Ingi Valdimarsson skoraði eina mark leiksins á 70.mínútu.
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Eyjan mín fagra græna
12-06-2010
Við hefjum sjöundu umferð með því að spila í Eyjum á sunnudagin gegn heimamönnum í Íþróttabandalagi Vestmannaeyja, þetta verður hörku leikur þar sem bæði liðin þurfa á sigri að halda og ekki auðvelt að fara á besta gras landsins að sækja þrjú stig.
athugasemdir: 1
lesa áframAlbert: Ég held ég megi ekki segja það eða jú jú segjum það bara, hann þarf að.......
09-06-2010
Valur Ingi og Kristján Gylfi spjölluðu við Alla eftir leik og hann uppljóstraði leynilega veðmálinu á milli hans og Óla þjálfara.
athugasemdir: 2
lesa áframValur Fannar: Það var sjálfsagt hægt að dæma víti og rautt á þetta og líka ekki neitt.
09-06-2010
Umfjöllun: Jafntefli í háspennuleik
09-06-2010
Fylkir og FH gerðu 2-2 jafntefli í afar fjörugum og spennandi leik á Fylkisvelli á mánudag. Fylkismenn komust í 2-0 en FH-ingar náðu að svara með tveimur mörkum. Bæði lið fengu svo góð tækifæri til að bæta við mörkum.
athugasemdir: 5
lesa áframFylkir 2-2 FH
07-06-2010
Fylkir gerði í kvöld 2-2 jafntefli við FH á Fylkisvelli. Fylkismenn komust í 2-0 með mörkum frá Alberti Brynjari en FH-ingar jöfnuðu með tveimur mörkum frá Atla Viðari Björnssyni.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir mætir Fram í 16 liða úrslitum VISA bikars karla
07-06-2010
Fylkismenn fengu heimaleik gegn Fram í 16-liða úrslitum VISA bikars karla nú rétt í þessu en það var Valur Fannar Gíslason fyrirliði sem dró andstæðing og uppúr kúlunni kom lið Framara
athugasemdir: 2
lesa áframUpphitun: Hafnfirðingar koma í heimsókn
06-06-2010
Þá er komið að sjöttu umferð Pepsi-deildarinnar og eru gestir okkar FH úr Hafnarfirði.
athugasemdir: 3
lesa áframUmfjöllun: Skyldusigur í Garði
05-06-2010
Fylkismenn sigruðu Víðismenn í Garðinum 0-2 í frekar tíðindalitlum leik. Tveir örfættir leikmenn sáu um markaskorun, Jóhann Þórhallsson og Tómas Þorsteinsson.
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Baldur Bett
05-06-2010
Baldur Bett er óðum að komast í gott form og í tilefni af því svarar hann hér nokkrum spurningum.
athugasemdir: 0
lesa áframSigur í bikarnum
03-06-2010
Fylkir sigraði Víði í Garði í 32-liða úrslitum VISA-bikarsins í kvöld. Mörk Fylkis skoruðu þeir Jóhann Þórhallsson og Tómas Joð Þorsteinsson.
athugasemdir: 2
lesa áframUmfjöllun: Skelfilegur varnarleikur
02-06-2010
Fylkismenn hlutu ærlega rasskellingu á Vodafone vellinum í gær þegar Valsmenn flengdu þá 5-2 í afar fjörugum leik. Bæði lið hefðu getað skorað fleiri mörk en óhætt er að segja að varnarleikur okkar manna var skelfilegur og Valsmenn fengu urmul færa í leiknum. Hér er hún komin umfjöllunin um leikinn og ég fullyrði að hún sé sú lengsta sem nokkru sinni hefur verið gerð (hvorki meira né minna en 2.416 orð) enda fullt af atriðum til að kryfja.
athugasemdir: 8
lesa áframBjörn Kristinn Björnsson: Gríðarlega mikilvægur sigur
02-06-2010
Umfjöllun: Góður sigur á Þór/KA
01-06-2010
Fylkisstelpur unnu mikilvægan sigur á Þór/KA 2-1 í kvöld og skelltu sér þar með í fjórða sætið. Þar sitja þær með 9 stig eftir fimm leiki jafnmörg og KR sem er sæti ofar á markatölu. Anna Björg Björnsdóttir og Fjóla Dröfn Friðriksdóttir skoruðu mörk Fylkis.
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Víðir Leifsson
01-06-2010
Albert Brynjar: Leiðinlegt að hita upp og fá ekki að spila
31-05-2010
Albert Brynjar Ingason, framherji Fylkis, mætir sínum gömlu félögum í Val í kvöld. Í leik liðanna á Vodafonevellinum í fyrra þurfti Albert Brynjar frá að hverfa eftir upphitun þar sem Fylkir hefði þurft að borga Val háa upphæð fyrir að nota framherjann í leiknum. Í kvöld eru hins vegar engin slík ákvæði og Albert Brynjar er spenntur fyrir því að fá að spila á Vodaofnevellinum.
athugasemdir: 1
lesa áframUpphitun: Skundum á Vodafonevöll
29-05-2010
Fimmta umferð fer að detta í gang í lok vikunnar og í byrjun þeirra næstu, leiknir verða fimm leikir en ekki sex eins og venjulega. Leik KR og Fram var frestað þar sem bæði lið eiga leikmenn í hópi Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara gegn Andorra á laugardag. Okkar menn í Fylki sækja heim Val á Vodafonevellinum, sem okkur hefur gengið vel á.
athugasemdir: 4
lesa áframMark nr. 200
29-05-2010
Markið sem Laufey Björnsdóttir skoraði í leik FH og Fylkis, var sögulegt, fyrir utan þess að vera einkar glæsilegt,en það var tvöhundraðasta markið sem Meistaraflokkur kvenna skorar á 21 öldinni.
athugasemdir: 0
lesa áframPepsi deild kvenna: Fylkir hirti öll stigin í Kaplakrika
27-05-2010
Fylkisstelpur fóru í heimsókn í Kaplakrika í kvöld, á hinn stórglæsilega völl þeirra FH-inga. Fylkisliðið landaði þremur stigum í hús í kvöld í baráttuleik.
athugasemdir: 4
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Ásgeir Börkur
27-05-2010
Pepsi deild kvenna: FH- Fylkir í kvöld kl 19:15
27-05-2010
Fylkir fer í heimsókn í Kaplakrika í dag í Pepsi deild kvenna. Leikurinn hefst kl. 19:15. Stelpurnar þurfa nauðsynlega á öllum stigunum að halda og hvetjum við fylkismenn til að kíkja við í krikanum í kvöld.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Klaufagangur í lokin kostaði sigurinn
26-05-2010
Fylkismenn geta nagað sig í handarbökin með að ná aðeins í eitt stig úr viðureign sinni við Fram. Þeir voru yfir nánast allan leikinn en það dugði ekki til því Framarar gáfust ekki upp og skoruðu tvö mörk í blálokin. Þetta var grátlegt að horfa uppá enda fóru þarna tvö dýrmæt stig í súginn.
athugasemdir: 2
lesa áframEinar Péturs: Þetta er bara óskiljanlegt
24-05-2010
Valur Ingi og Kristján Gylfi spjölluðu við menn eftir leik. Einar Pétursson var maður leiksins að mati fylkismenn.is í dag
athugasemdir: 1
lesa áframÓli Þórðar: Já við vorum bara að tapa leik!
24-05-2010
Valur Ingi og Kristján Gylfi spjölluðu við menn eftir leik. Óli Þórðar var að vonum ekki kátur
athugasemdir: 1
lesa áframPepsi deild karla: Fylkir-Fram 2-2
24-05-2010
Fylkir og Fram gerðu rétt í þessu 2-2 jafntefli þar sem Fylkismenn komust í 2-0 en Frammarar náðu að jafna í blá lokin. Mörk Fylkis skoruðu Albert og Einar, en Hjálmar Þórarinsson jafnaði fyrir Fram með tveimur mörkum í lokin. Nánari umfjöllun væntanleg.
athugasemdir: 0
lesa áframSigurvegari í Getraun: Elvar Örn Viktorsson
24-05-2010
Dregið var í dag úr réttum svörum í getraunaleik okkar og BK Kjúklings og úr hattinum kom nafn Elvars Arnar Viktorssonar. Elvar er mikill Fylkismaður og Fylkismenn þekkja hann betur sem Ella Feita eða Ella Eldsvuntu.
athugasemdir: 3
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Andrés Már Jóhannesson
23-05-2010
Upphitun: Framarar koma í heimsókn
23-05-2010
Fjórða umferð hefst á morgun, mánudag með þremur leikjum. Við munum koma til með að bjóða Safamýrapilta velkomna í Árbæinn. Fram hefur verið að spila vel það sem af er móti, 7 stig af 9 mögulegum og í öllum leikjum hafa þeir stilt upp sama liði og er spurning hvort Þorvaldur fari nokkuð að breyta því þegar svona vel gengur.
athugasemdir: 0
lesa áframPepsi deild kvenna: Tap í baráttu leik á Vodafonevellinum
22-05-2010
Í dag fór leikur Vals og Fylkis fram í Pepsi deild kvenna. Leikurinn fór fram á Vodafone vellinum. Leikurinn byrjaði af miklum krafti og Valsmenn byrjuðu strax að pressa, en Fylkis liðið var mjög þétt og ætlaði að láta Val hafa fyrir þessu.
athugasemdir: 0
lesa áframPepsi deild kvenna. Valur - Fylkir
22-05-2010
Stelpurnar okkar eru að Spila á móti Val á útivelli á eftir klukkan 14:00, Við hvetjum alla til að mæta og láta í sér heyra
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Fyrsta tap sumarsins
21-05-2010
Fylkismenn lutu í gras á Njarðtaksvelli í Reykjanesbæ í gær. Þar lágu þeir 2-1 gegn sterkum Keflvíkingum sem hafa nú fullt hús stiga á toppnum eftir þrjár umferðir. Fylkir hefði með góðu móti getað náð allavega jafntefli og hefði það líklega verið sanngjörnustu úrslitin.
athugasemdir: 3
lesa áframFylkir mætir Víði í Garði á Útivelli í 32-liða úrslitum VISA bikarsins - Leikið miðvikudaginn 2.júní
21-05-2010
Í þessum töluðu orðum er verið að draga í 32-liða úrslit VISA bikar karla og voru fyrstu liðin upp úr hattinum Víðir í Garði og Fylkir. Víðismenn fá heimaleik gegn okkur rétt eins og sumarið 2008 þegar við unnum 1-4 í 16-liða úrstlitum.
athugasemdir: 3
lesa áframFylkismenn.is tveggja ára
20-05-2010
Vefsíðan Fylkismenn.is fagnar í dag tveggja ára afmæli en fyrsta fréttin á síðunni var skrifuð 20.maí árið 2008
athugasemdir: 1
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Albert Brynjar Ingason
20-05-2010
Getraun - Gjafabréf frá BK Kjúkling í boði. Lokar kl 15:00 í dag - Allir að taka þátt
19-05-2010
Í tilefni dagsins ætlum við að bregða upp laufléttri getraun fyrir ykkur sem inniheldur þrjár spurningar úr heimi fótboltans.
athugasemdir: 2
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Fjalar Þorgeirsson
19-05-2010
Pepsi deild kvenna: Sanngjarn heimasigur í kvöld
18-05-2010
Fylkir og Haukar áttust við á Fylkisvelli í kvöld og leikurinn endaði með 3-1 sigri Fylkis í ágætis leik.
athugasemdir: 2
lesa áframPepsi deild kvenna: Fylkir- Haukar í kvöld kl 19:15
18-05-2010
Fylkisstelpur taka á móti Haukum í annari umferð Pepsi deild kvenna í kvöld. Fylkir töpuðu gegn Breiðablik í fyrstu umferð og eru stelpurnar því ákveðnar að bæta upp fyrir lélegan leik síðast. Leikurinn hefst kl. 19:15 á Fylkisvelli og hvetjum við alla Fylkismenn til að kíkja á völlinn
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Toppslagur í Njarðvík - Rútur leggja af stað kl.18:15
18-05-2010
Komið er að 3.umferð Pepsi deildarinnar sem hefur farið skemmtilega af stað.
athugasemdir: 3
lesa áframUmfjöllun: Fylkismenn á toppinn
17-05-2010
Fylkismenn hefja mótið með miklum glæsibrag, hafa sigrað í tveimur fyrsu leikjum sínum og eru nú einir á toppnum. Í gær sigruðu þeir Stjörnumenn á Fylkisvelli 3-1. Keflvíkingar geta reyndar jafnað okkur með sigri á Grindavík í kvöld en Fylkir mætir einmitt Keflvíkingum í næstu umferð á Njarðvíkurvelli.
athugasemdir: 4
lesa áframÓli Þórðar: Börkur var sérstaklega duglegur að stinga þessum boltum í gegn
17-05-2010
Valur Fannar: Við erum bara vél sem rúllar vel
17-05-2010
Fylkir 3-1 Stjarnan
16-05-2010
Fylkir vann í kvöld góðan sigur á Stjörnunni í Árbænum. Nánari umfjöllun er væntanleg.
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Fylkir - Stjarnan
15-05-2010
Næsti leikur okkar manna er á móti Stjörnunni. Fyrsti leikur okkar á heimavelli. Stjarnan byrjaði mótið á að flengja Grindavík á heimavelli 4-0 þar sem Stjörnumenn léku við hvurn sinn fingur í 90 mínútur. Gaman verður að sjá í hvernig formi þeir mæta í Árbæinn. Þetta er fyrsti leikur beggja liða á grasi þetta tímabilið, við byrjuðum á móti Selfoss á útivelli á gervigrasi og Stjarnan spilar að sjálfsögðu heimaleiki sína á gervigrasi.
athugasemdir: 2
lesa áframFelix lánaður til Fjarðarbyggðar
14-05-2010
Fjarðabyggð hefur fengið Felix Hjálmarsson á láni frá Fylki en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
athugasemdir: 0
lesa áframPistill: Möguleg spútniklið í sumar
14-05-2010
Það styttist óðum í hið langþráða fótboltasumar og því ekki úr vegi að velta aðeins vöngum yfir tilvonandi átökum. Í þessum pistli verður leitast við að skoða hvaða lið eru líkleg að mati ofanritaðs til að koma á óvart í sumar. Ljóst er að engin hávísindaleg vinnubrögð verða höfð að leiðarljósi heldur einungis persónulegt mat sem má svo gjarna skjóta niður, rökræða eða (helst) samþykkja.
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Ólafur Stígsson
14-05-2010
Grísasteik í Club Orange á sunnudag.
14-05-2010
Nú er að hefjast annað starfsár Restaurant Club Orange í Fylkishöll. Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og í fyrra. Panta þarf borð eða tilkynna fjölda fyrir hádegi á leikdegi í síma 824-0403 (Sigrún). Húsið opnar kl. 18:00.-
athugasemdir: 2
lesa áframFylkisstelpur lutu í gras á Kópavogsvelli
14-05-2010
Það er skemmst frá því að segja að Blikastelpur höfðu mikla yfirburði gegn Fylki í leik liðanna á Kópavogsvelli í gær og sigruðu að lokum 3-1. Fylkisstelpur áttu óvenju slakan leik. Anna Sigurðardóttir skoraði mark Fylkis þegar hún jafnaði í 1-1.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Selfyssingar lagðir að velli í fyrsta leik
13-05-2010
Fylkismenn hirtu þrjú dýrmæt stig á Selfossi í gær þegar þeir lögðu heimamenn að velli 1-3 í miklum bardagaleik. Markaskorarnir voru af athyglisverðri gerð; Ólafur Stígsson reið á vaðið og Pape Mamadou (eða Pappa eins og hann var nefndur í hátalarakerfinu í gær) bætti við marki áður en að okkar gamli vinur og félagi Sævar Þór Gíslason minnkaði muninn fyrir heimamenn. Jóhann Þórhallsson gerði síðan út um leikinn rétt áður en að honum lauk.
athugasemdir: 6
lesa áframViðtal við Pape
12-05-2010
Viðtal við Ásgeir Börk
12-05-2010
Selfoss 1-3 Fylkir
11-05-2010
Fylkir vann í kvöld fyrsta leik Pepsi-deildarinnar á Selfossi þar sem heimamenn voru lagðir með þremur mörkum gegn einu marki. Nánari umfjöllun er væntanleg.
athugasemdir: 0
lesa áframRúta á Selfoss. Fer af stað kl 18:15
11-05-2010
Rútuferðir verða frá Árbæjarkirkjuplani til að ferja Fylkisfólk á Selfoss. Rútan leggur af stað kl 18:15 og kostar sætið 800 kr.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 1.sæti: FH
11-05-2010
Spá 2.sæti: KR
11-05-2010
KR-ingar hafna í öðru sæti í okkar spá en ekki því fyrsta eins og nánast allsstaðar annarsstaðar.
athugasemdir: 0
lesa áframUpphitun: Selfoss vs Fylkir - Vinafélög mætast
10-05-2010
Á morgun þriðjudag byrjar boltinn að rúlla aftur hjá okkur Fylkismönnum, við erum á leiðinni austur að spila við Selfoss á þeirra heimavelli. Báðum liðum hefur gengið frekar illa að styrkja hópa sína fyrir tímabilið og ekki spilað nógu vel á undirbúningstímabilinu.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 3.sæti: Fylkir
10-05-2010
Við spáum því að Fylkir, okkar ástkæra lið nái sama árangri og í fyrra 3.sæti
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Valur Fannar Gíslason
10-05-2010
Fyirliðinn Valur Fannar Gíslason svarar spurningum okkar af mikilli reynslu
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Kjartan Ágúst Breiðdal
09-05-2010
Spá 5.sæti: Breiðablik
08-05-2010
Við setjum Blika í 5.sæti sem er heldur neðar en þeim hefur verið spáð annarsstaðar.
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Kristján Valdimarsson
08-05-2010
Hinn mikli snillingur og þúsundþjalasmiður Kristján Valdimarsson er næstur.
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Einar Pétursson
07-05-2010
Sjúkrabíll á æfingu Fylkis: Ólafur kippti Oddi Inga í hnélið
06-05-2010
Oddur Ingi Guðmundsson leikmaður Fylkis fór úr hnélið á æfingu liðsins í gær og óvíst hversu lengi hann verður frá. Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis aðstoðaði hann svo við að komast í hnélið að nýju áður en sjúkrabíll kom og flutti hann á sjúkrahús.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 7.sæti: Fram
06-05-2010
Svör leikmanna við spurningum: Oddur Ingi Guðmundsson
06-05-2010
Leikmannakynning á föstudaginn
05-05-2010
Á föstudaginn næsta 7. maí fer fram kynning á leikmönnum meistaraflokks karla og kvenna í Fylkishöll og hefst hún kl. 19:00. Boðið verður uppá Grill fyrir alla fjölskylduna.
athugasemdir: 1
lesa áframÁrskortin 2010
05-05-2010
Pepsi-deild karla og kvenna hefst í næstu viku og er hægt að panta árskort á heimleiki Fylkis með því að senda póst á korthafar@fylkir.net. Kaffi og meðlæti í hálfleik í hátíðarsal Fylkis er innifalið í verði allra korta.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 8.sæti: Grindavík
05-05-2010
Svör leikmanna við spurningum: Tómas J. Þorsteinsson
05-05-2010
Svör leikmanna við spurningum: Jóhann Þórhallsson
04-05-2010
Markabílinn eða "the goalscoring car" Jóhann Þórhallsson er næstur á blað
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 10.sæti: Stjarnan
03-05-2010
Við spáum því að Stjarnan hafni í 10.sæti og haldi þar með sæti sínu í efstu deild að ári.
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Þórir Hannesson
03-05-2010
Tap í úrslitaleik Lengjubikars kvenna
03-05-2010
Fylkisstelpur töpuðu í gær úrslitaleik Lengjubikarsins 2-0 fyrir Val. Leikurinn var mjög jafn og Fylkisstelpur brenndu af fullt af dauðafærum, 2.sætið því staðreynd, sem er bara mjög góður árangur. Mörk Vals skoruðu Kristín Ýr Bjarnadóttir og Dagný Brynjarsdóttir.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá 11.sæti: Selfoss
02-05-2010
Næstir í röðinni eru Selfyssingar sem við spáum 11.sæti og þar með falli. Kíkjum á lið Selfyssinga
athugasemdir: 0
lesa áframLengjubikar kvenna úrslit: Fylkir -Valur kl.14:00
02-05-2010
Fylkir tekur á móti Val í úrslitaleik Lengjubikars kvenna í dag kl.14:00 og fer leikurinn fram í Kórnum. Hvetjum við alla Fylkismenn til að kíkja á stelpurnar á eftir.
athugasemdir: 0
lesa áframSpá:12.sæti - Haukar
01-05-2010
Í dag hefjum við spá okkar í Pepsi deild karla 2010. Fjórir sparkspekingar settust niður og spáðu í spilin fyrir sumar. Við munum svo birta þessa spá hægt og bítandi fram að móti og fjalla um liðin
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir sigraði KA 1-0
01-05-2010
Fylkismenn sigruðu KA 1-0 í dag. Albert Brynjar Ingason skoraði markið með síðustu spyrnu leiksins í uppbótartíma.
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Fannar Baldvinsson
01-05-2010
Fannar Baldvinsson svarar næstur spurningum okkar en hann var lánaður til Aftureldingar á dögunum.
athugasemdir: 0
lesa áframÆfingaleikur við KA á morgun 1.maí
30-04-2010
Fylkir spilar sinn síðasta æfingaleik fyrir mót á morgun, laugardaginn 1.maí gegn KA. Leikurinn fer fram á Fylkisvelli og hvetjum við alla fylkismenn til að kíkja á strákana, svona rétt fyrir mót. Leikurinn hefst kl. 15:00
athugasemdir: 0
lesa áframFylkisskaupið 2009
30-04-2010
Hér er kominn stærstur hluti Fylkisskaupsins 2009 sem sýnt var á Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar í október síðastliðinn. Í aðahlutverkum eru Ásgeir Börkur Ásgeirsson sem leikur Ólaf Þórðarson og Fjalar Þorgeirsson sem leikur fréttamann og Pál Einarsson.
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Davíð Þór Ásbjörnsson
30-04-2010
Búningsklefinn: Fjalar Þorgeirsson
30-04-2010
Fjalar Þorgeirsson er í skemmtilegu sjónvarpsviðtali við fotbolti.net þar sem hann ljóstrar upp leyndarmálum búningsklefans Linkur á viðtalið: http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=90512
athugasemdir: 0
lesa áframÁsgeir Börkur: Er með betri skeggvöxt en Gattuso
30-04-2010
Hinn harðskeytti miðjumaður Ásgeir Börkur Ásgeirsson er í skemmtilegu viðtali á fotbolti.net
athugasemdir: 0
lesa áframÓlafur Þórðarson: Þetta eru frábærir spámenn
30-04-2010
Ólafur Þórðarson er í viðtali á fótbolti.net í tengslum við að Fylki er spáð 8.sætinu í Pepsi deildinni.
athugasemdir: 0
lesa áframFylki spáð 8.sæti á fótbolta.net
30-04-2010
Vinsælasta fótboltavefsíða landsins fotbolti.net spáir Fylkismönnum 8.sætinu í Pepsi deildinni í sumar. Vefsíðan fékk til síðan 10 gáfnaljós sem komust einhvernveginn að þeirri niðurstöðu að Fylkir myndi hafna í 8.sæti. Eins og svo oft áður er lítið að marka spár sem þessar, enda varð liðið í þriðja sæti á síðasta ári og markmiðið hjá liðinu er að sjálfsögðu að ná viðlíka árangri ef ekki betri í ár.
athugasemdir: 1
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Pape Mamadou Faye
29-04-2010
Fylkisstelpur i úrslit eftir sigur á Breiðablik
29-04-2010
Fylkisstelpur komust í kvöld í úrslit Lengjubikarsins eftir 1-0 sigur á Breiðablik. Leikurinn fór fram á gervigrasinu í Fagralundi og verð ég að vekja undrun mína á vallar vali hjá ksí, þar sem akkúrat enginn áhorfendaaðstaða er á þessum velli. En það skipti bara engu máli eftir á, því stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og unnu "prímadonnu" lið Breiðabliks 1-0 og var það bara nokkuð sanngjarnt.
athugasemdir: 1
lesa áframLeikjaplan Pepsi-deildar
29-04-2010
Nú þegar styttist í að Pepsi-deildin hefji göngu sína er vert að renna snögglega yfir leikjaplan okkar manna fyrir keppnistímabilið 2010. Fylkir byrjar mótið á Selfossi þann 11. maí næstkomandi þar sem heimamenn á Selfossi munu leika sinn fyrsta leik í efstu deild frá upphafi.
athugasemdir: 1
lesa áframStelpurnar spila í undanúrslitum í dag
29-04-2010
Fylkisstelpur spila í dag gegn Breiðablik í undanúrslitum Lengjubikars kvenna. Leikurinn fer fram á gervigrasinu í Fagralundi og hefst hann kl.19:00. Við hvetjum Fylkisfólk til að mæta og styðja stelpurnar sem eru búnar að standa sig mjög vel í Lengjubikarnum í ár. Við ætlum í úrslit og ekkert annað.
athugasemdir: 3
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Ásgeir Örn Arnþórsson
28-04-2010
Æfingaleikur við KA á Fylkisvelli 1.maí?
28-04-2010
Samkvæmt heimildum fylkismenn.is spila okkar menn æfingaleik gegn KA næsta laugardag á Fylkisvelli kl.15:00. Mun þetta verða síðasti leikur liðsins fyrir Íslandsmótið sem hefst 11.maí. Þannig við hvetjum fólk til að fjölmenna á laugardaginn og kíkja á liðið. Ath. Þetta verður staðfest síðar í vikunni
athugasemdir: 0
lesa áframSvör leikmanna við spurningum: Felix Hjálmarsson
27-04-2010
Jafnt í kuldanum í Árbænum
27-04-2010
Fylkir og Skagamenn áttust við í æfingarleik á Fylkisvelli í kvöld þar sem leikar enduðu 2-2. Bæði þessi lið duttu út í riðlakeppninni í Lengjubikarnum og því um að gera að ná sér í leikæfingu fyrir Íslandsmótið sem hefst 11.maí. Fylkismenn voru mun sterkari aðilinn í leiknum í kvöld og leit Fylkisliðið hreint út sagt mjög vel. Sóknarleikurinn sem hefur verið okkar vandamál það sem af er vetri, leit bara ansi vel út í kvöld
athugasemdir: 0
lesa áframÆfingaleikur við ÍA á Fylkisvelli í dag kl 18:00
27-04-2010
Fylkir mun spila æfingaleik gegn Skagamönnum á Fylkisvelli kl 18:00 í dag þriðjudaginn 27.apríl. Hér gefst tilvalið tækifæri fyrir stuðningsmenn að kíkja á liðið spila núna rétt fyrir mót. Allir að mæta!
athugasemdir: 1
lesa áframSpurningar: Friðrik Ingi Þráinsson
26-04-2010
Leikurinn við Selfoss færður aftur um einn dag
26-04-2010
Fimm leikir í 1. umferð Pepsi-deildarinnar 2010 hafa verið fluttir frá mánudegi yfir á þriðjudag. Þannig verður leikur Fylkismanna gegn nýliðum Selfoss á þriðjudeginum 11. maí og hefst kl. 19:15.
athugasemdir: 1
lesa áframSpurningar: Sölvi Þrastarson
26-04-2010
Sölvi Þrastarson situr næstur fyrir svörum, en hann verður á láni hjá Aftureldingu í sumar
athugasemdir: 0
lesa áframSpurningar: Daníel Freyr Guðmundsson
24-04-2010
Daníel Freyr Guðmundsson svarar hér spurningum okkar en hann verður á láni hjá Fjarðarbyggð í sumar en þar lék hann einnig í fyrra.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkismenn.is stórhuga í sumar - Sigurður Þór svarar spurningum
23-04-2010
Við á fylkismenn.is ætlum að reyna að vera duglegir við að stytta fólki stundir meðan það bíður eftir að Pepsi-deildin hefjist. Við tókum okkur til og sömdum nokkrar spurningar sem við báðum síðan alla leikmenn meistaraflokks að svara. 12 dögum fyrir mót verður síðan spá okkar birt, auk þess sem við fjöllum aðeins um öll liðin í Pepsi-deildinni
athugasemdir: 0
lesa áframÓlafur Þórðarson í viðtali á X-inu á morgun
23-04-2010
Rúmar tvær vikur eru í að flautað verði til leiks í Pepsi-deildinni og í þættinum á morgun verður haldið áfram að hita upp fyrir mótið. Almarr Ormarsson, leikmaður Fram, kíkir í heimsókn og Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis og Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, verða báðir í viðtali.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir í Pepsi-deildinni og sögumolar
22-04-2010
Tímabilið 2010 verður það ellefta í röðinni sem Fylkir leikur í Úrvalsdeildinni og hafa Fylkismenn þar með náð þeim árangri að hafa verið lengst allra núverandi liða í deildinni samfellt, að KR undanskildu.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir sigraði Þrótt R. 3-1
20-04-2010
Fylkismenn sigruðu Þrótt R. 3-1 í æfingaleik í dag. Jóhann Þórhallsson og Oddur Ingi Guðmundsson skoruðu fyrir Fylki og eitt markanna var sjálfsmark.
athugasemdir: 0
lesa áframStuðningsmannapartý á Miðvikudagskvöld kl 20:00
19-04-2010
Stuðningsmenn Fylkis ætla að gera sér glaðan dag á miðvikudagskvöldið 21.apríl. Gleðin verður haldin á Kónginum Sportbar í Grafarholti sem er til húsa að Kirkjustétt 4. Vonumst til að sjá sem flesta til að mynda góða stemningu og pegga í döðlur.
athugasemdir: 1
lesa áframLeikir framundan
18-04-2010
Fylkir spilar við Þrótt R. í æfingaleik næstkomandi þriðjudag og líklega við KA 1.maí. Leikirnir fara fram á Fylkisvelli. Leikurinn við Þrótt hefst 17:30
athugasemdir: 2
lesa áframIngimundur Níels og Davíð Þór framlengja
18-04-2010
Ingimundur Níels Óskarsson og Davíð Þór Ásbjörnsson hafa skrifað undir nýja samninga við Fylki sem gilda út tímabilið 2012.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir 0-0 Grindavík
16-04-2010
Fylkir lauk keppni í Lengjubikarnum í gærkvöldi með markalausu jafntefli við Grindavík í Egilshöll. Fylkismenn ljúka keppni í riðlinum með 9 stig í 7 leikjum. Úrslit Fylkis í riðlinum voru eftirfarandi:
athugasemdir: 0
lesa áframÓlafur Stígsson tekur fram skóna að nýju
14-04-2010
Ólafur Stígsson, hefur orðið við beiðni meistarflokksráðs og þjálfara Fylkis um að taka fram skóna að nýju og spila með liðinu í sumar. Óli Stígs, sem er leikjahæsti leikmaður Fylkis í efstu deild, lagði skóna á hilluna eftir frábært tímabil í fyrra.
athugasemdir: 4
lesa áframFréttir af meistaraflokki Fylkis - Bazi fær leikheimild á morgun - Sölvi og Fannar lánaðir
13-04-2010
Þórður Gíslason formaður meistaraflokksráðs karla fræddi okkur um nokkur forvitnleg mál er varða meistaraflokk Fylkis. Þar ber hæst að í dag fékk loks keppnisleyfi fyrir ástralska markvörðinn Andrew Bazi sem æft hefur með Fylki síðan í febrúar. Bazi er fæddur 1989 og er því á tvítugasta og fyrsta aldursári. Hann fær leikheimild á morgun og verður því orðinn löglegur fyrir leikinn gegn Grindvíkingum á fimmtudagskvöldið.
athugasemdir: 0
lesa áframEl Clasico sýndur í Fylkishöll í kvöld
10-04-2010
Stórleikur Real Madrid og Barcelona í kvöld verður sýndur á stórum skjá í tengibyggingunni í Fylkishöll. Ískaldur öl verður til sölu á vægu verði fyrir þá sem vilja láta ágóðan af drykkju sinni renna til Fylkis. Leikurinn hefst kl 20:00 og hvetjum við að sjálfsögðu alla til að mæta og horfa á besta fótbolta í heimi í góðra vina hópi.
athugasemdir: 0
lesa áframFylkismenn höfðu betur gegn Austfirðingum
10-04-2010
Fylkismenn unnu sigur á Fjarðarbyggð 2-1 í lengjubikarnum. Rafn Heiðdal kom Austanmönnum yfir en Fylkismenn svöruðu með mörkum frá Ingimundi Níelsi Óskarssyni og Einari Péturssyni.
athugasemdir: 0
lesa áframHeimaleikir Fylkis í Evrópukeppninni
06-04-2010
Á komandi sumri munum við fylkismenn spila í Europa League sem þýðir að við fáum evrópskt lið í heimsókn, þó ekki í Lautina, heldur lítur allt út fyrir það að við þurfum að spila í Laugardalnum, nánar tiltekið á Laugardalsvelli. Upp hefur komið sú umræða meðal stuðningsmanna að sú stemming sem menn vilja ná upp á Evrópuleikjum muni ekki myndast í Laugardalnum og þar af leiðandi vilja margir meina að við ættum að leita á önnur mið.
athugasemdir: 3
lesa áframTap á teppinu í Hafnarfirði
31-03-2010
Fylkir og Haukar áttust við í kvöld í Lengjubikarkeppni karla og endaði leikurinn með 2-1 sigri Hauka. Haukar komust yfir með marki frá Hilmari T. Arnarssyni, en Ingimundur jafnaði leikinn fyrir okkar menn. Sigurmarkið kom svo í uppbótartíma, en þar var að verki Guðjón Pétur Lýðsson sem skoraði beint úr aukaspyrnu og úrslitin voru ráðin.
athugasemdir: 1
lesa áframHaukar - Fylkir í kvöld kl 19:00
31-03-2010
Fylkismenn taka á móti Haukum í kvöld á Ásvöllum kl 19:00. Enn eru snillingarnir í KSÍ að brillera í tímasetningunni en leikurinn stangast á við stórleik Arsenal og Barcelona sem hefst á Stöð 2 Sport kl 18:45. Arsenal - Barcelona ætti að vera sýndur á Sport 3 kl 20:40 á sama tíma og meistaramörkin byrja á aðalrásinni (Stöð 2 Sport)
athugasemdir: 0
lesa áframKristinn Guðbrandsson ráðinn aðstoðarþjálfari Fylkis (staðfest)
31-03-2010
Kristinn Guðbrandsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks Fylkis í knattspyrnu næstu tvö tímabil en þetta staðfesti Þórður Gíslason formaður meistaraflokksráðs í yfirlýsingu á fylkir.com fyrr í dag.
athugasemdir: 1
lesa áframKristinn Guðbrandsson næsti aðstoðarþjálfari Fylkis?? - Óli Stígs hættur
29-03-2010
Samkvæmt heimildum fylkismenn.is verður Kristinn Guðbrandsson líklega næsti aðstoðar þjálfari Fylkis í fótbolta. Óli Stigs er samkvæmt okkar heimildum hættur. Það var leitað til Óla núna um daginn en svo virðist sem kallinn hafi ekki tíma í þetta. Viðræður við Kristinn hafa staðið yfir, og er hann talinn vera líklegastur til að vera aðstoðarþjálfari hjá Óla Þórðar næsta sumar.
athugasemdir: 3
lesa áframÞór 3-3 Fylkir
28-03-2010
Þór og Fylkir gerðu 3-3 jafntefli í Lengjubikarnum í kvöld í fjörugum leik í Boganum. Þórsarar leiddu 3-0 í hálfleik en Fylkismenn náðu að koma til baka og Jóhann Þórhallsson skoraði jöfnunarmarkið í viðbótartíma gegn sínum gömlu félögum.
athugasemdir: 0
lesa áframUmfjöllun: Skagamönnum færður sigurinn í lokin
20-03-2010
Fylkismenn þurftu að sætta sig við tap gegn ÍA í Akraneshöllinni á fimmtudagskvöldið. Leikurinn var í járnum lengst af en afleit ákvörðun Kristins Jakobssonar FIFA dómara um að dæma vítaspyrnu nokkrum andartökum fyrir leikslok færði Skagamönnum sigurinn í uppbótartíma.
athugasemdir: 0
lesa áframTap á Skaganum staðreynd - Vafasama vítaspyrnu þurfti til
19-03-2010
Fylkir og ÍA áttust við í Lengjubikarnum upp á skaga í gær, þar sem heimamenn fóru með sigur af hólmi 2-1. Fannar Freyr Gíslason kom skagamönnum yfir, en Tommi jafnaði fyrir okkur með þrumuskoti niður í bláhornið og þannig var staðan í hálfleik. Það þurfti svo vafasama vítaspyrna á 90 mín til að heimamenn næðu að tryggja sigurinn, en þar var að verki Ragnar Leósson sem skoraði úr spyrnunni af miklu öryggi. Verð ég að setja spurningamerki við Kristinn Jakobsson dómara leiksins
athugasemdir: 0
lesa áframFylkir-ÍA í Akraneshöllinni kl.18:00 á eftir
18-03-2010
Við fylkismenn sækjum ÍA heim í Akraneshöllina á eftir kl.18:00. Þetta er þriðji leikur okkar í Lengjubikarnum í ár, en við höfum þegar unnið Stjörnuna og gert jafntefli við Njarðvík í síðasta leik. Fylkir og ÍA spiluðu æfingleik í vetur og unnu skagamenn okkur 6-0 þá, svo þetta er ágætis tækifæri til að leiðrétta þann leik. Minnum einnig á að kvennalið Fylkis spilar á morgun á Fylkisvelli kl.20:00 við KR.
athugasemdir: 0
lesa áframSparkspekingur
17-03-2010
Ofanritaður Kristján Gylfi Guðmundsson var fenginn til að vera fulltrúi stuðningsmanna Fylkis og svara nokkrum spurningum á stuðningsmannasíðu Selfyssinga (selfoss.org). Þar er skemmtilegur liður sem kallast spekingar andstæðinganna þar sem Selfyssingar spjalla við einn fulltrúa frá öllum liðunum í Pepsi deildinni í sumar. Þar sem ofanritaður er gríðarlega sjálfhverfur einstaklingur fylgir mynd af honum með þar sem hann skartar fagurri mottu.
athugasemdir: 2
lesa áframUmfjöllun: Dapurt gegn Njarðvík
15-03-2010
Fylkismönnum mistókst að skora mark í leik sínum gegn Njarðvík síðastliðinn laugardag og endaði leikurinn 0-0 rétt eins og leikur liðanna í Lengjubikarnum 2009. Það er því líklega best að sleppa því að mæta á völlinn ef liðin mætast í Lengjubikarnum 2011.
athugasemdir: 0
lesa áframAndrew Bazi á leið til Fylkis? - 1-2 tap gegn Keflavík
06-03-2010
Ástralskur markvörður að nafni Andrew Bazi hefur verið á reynslu hjá Fylki undanfarið og lék seinni hálfleik gegn Keflvíkingum í gær. Sá leikur endaði 1-2 og var það Fannar Baldvinsson sem skoraði mark Fylkis í síðari hálfleik.
athugasemdir: 1
lesa áframFjalar og Valur Fannar í landsliðshópi Íslands
06-03-2010
Fylkismennirnir Fjalar Þorgeirsson og Valur Fannar Gíslason voru valdir í landsliðshóp Íslands sem mætir Færeyjum og Mexíkó í vinátttulandsleikum í mars.
athugasemdir: 0
lesa áframÆfingaleikur við Keflavík á morgun, föstudag kl.17:15 á gervigrasi Fylkis
04-03-2010
Á morgun föstudaginn 5 mars spilar Fylkir æfingaleik við Keflavík á gervigrasi Fylkis. Leikurinn hefst kl. 17:15 og hvetjum við alla til að kíkja á strákana. Þetta er þriðji æfingaleikur Fylkis á þessu undirbúningstímabili en hinir voru gegn ÍA og Þrótt. Eins og allir vita er Willum Þór Þórsson tekinn við Keflavík og eru þeir á fljúgandi siglingu þessa daganna. Þeir unnu Grindavík í úrslitaleik Suðurnesjamótsins á dögunum. Sjáumst á vellinum!
athugasemdir: 0
lesa áframDaníel Freyr Guðmundsson á láni til Fjarðarbyggðar
04-03-2010
Varnarmaðurinn ungi Daníel Freyr Guðmundsson hefur verið lánaður til Fjarðarbyggðar út næsta tímabil. Daníel Freyr sem er borinn og barnfæddur Fylkismaður þekkir vel til hjá Fjarðabyggð því að hann lék með liðinu í fyrstu deildinni síðastliðið sumar þar sem að hann var fastamaður í miðri vörninni.
athugasemdir: 0
lesa áfram